Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019SJÓNARHÓLL FORRITIÐ Eitt erfiðasta og um leið afdrifarík- asta verkefni stjórnenda er að ráða til sín gott fólk. Fara þarf rækilega í saumana á starfsumsóknum, ræða við meðmælendur og reyna að mæla út umsækjandann í viðtali. En hvað svo? Yfirleitt láta stjórnendur þar við sitja, og láta svo tímann leiða í ljós hvort valið var rétt. HireDelightful er áhugavert nýtt forrit sem notar gervigreind og mælingar til að sigta út þá eiginleika sem auka líkurnar á að tiltekinn um- sækjandi falli vel (eða illa) að vinnu- staðnum. Forritið gerir alls kyns mælingar á umsækjendum, bæði fyrir og eftir ráðningu, og lærir þannig hvaða hæfni það er sem virð- ist auka líkurnar á að starfsmaður standist allar væntingar og rúmlega það. Niðurstöður mælinganna má síðan nota eftirleiðis til að grisja starfsumsóknir með markvissum hætti. Um leið fær stjórnandinn vonandi betri skilning á menningu og gildum vinnustaðarins og getur komið auga á tækifæri til að gera enn betur, efla hópinn og leggja rækt við styrkleik- ana. ai@mbl.is Til að vita hvaða um- sækjendur ætti að varast Vistarband, eins og það þekktist fyrr á tíð, heyrir núsögunni til. Þannig eru menn frjálsir að því aðskipta um vinnu nærri því að vild. Þó eru ýmsar reglur auk ákvæða í samningum sem þarf að virða í þessu sambandi. Í einfaldri mynd kann að vera umsamið, ýmist sérstaklega eða almennt í ákvæðum kjarasamnings, að gagnkvæmur uppsagnarfrestur sé tiltekinn vikna- eða mánaðarfjöldi. Því geta menn ekki gengið út fyr- irvaralaust né þeim gert að hætta samstundis, án þess að það geti haft eftirmál, nema um sérstakar aðstæður sé að ræða. Má þar nefna vanefnd annars hvors aðilans, starfs- manns eða vinnuveitanda, alvarleg brot í starfi svo varði riftun ráðningarsamnings og svo framvegis. Í mörgum atvinnufyrirtækjum er litið svo á að verðmætasta eign félagsins sé mannaflinn sem þar vinnur, vegna þekkingar, þjálf- unar og færni hans. Í seinni tíð hefur orðið vart við að sett séu sérstök samkeppnis- ákvæði í ráðningarsamninga, þar sem starfsmaður gengst undir bann við því að hefja starf hjá keppinaut eða aðila á sama eða sambærilegum markaði, í tiltek- inn tíma, stundum að viðlögðum sektum. Um ýmislegt af þessu tagi hefur verið tekist á fyrir dóm- stólum. Í hæstaréttarmáli nr. 124/2003 var aðstaðan sú að starfsmaður hafði ráðið sig til fyrir- tækis og í ráðningarsamningi skuldbatt starfsmaðurinn sig til að hefja ekki störf hjá fjórum tilgreindum fyr- irtækjum innan tveggja ára frá starfslokum sínum, að við- lögðu févíti sem ákveðið var kr. 12.000 á dag. Svo fór að starfsmaðurinn sagði upp störfum og hóf störf hjá einu þessara tilgreindu félaga innan tveggja ára tímabilsins. Var hann krafinn um kr. 3.120.000 í févíti í samræmi við ákvæði ráðningarsamningsins. Í málinu hélt starfsmað- urinn því meðal annars fram að samkeppnisbannið og við- urlögin gengju gegn stjórnarskrárvörðum rétti hans til atvinnufrelsis. Rétturinn komst hins vegar að þeirri nið- urstöðu að samningsákvæðið væri þröngt, afmarkað og hnitmiðað og væri sett í því skyni að vernda tiltekna sam- keppnishagsmuni. Févítið væri í reynd samningsbundnar bætur og því ekki þörf á að sanna tjón vegna brots á samkeppnisákvæði samningsins. Þegar kom hins vegar að fjárhæðinni væri réttara að líta til mánaðarlauna starfs- mannsins og varð niðurstaðan að honum var gert að greiða kr. 900.000 í févíti. En það er fleira sem vert er að nefna í þessu sambandi. Í lögum nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu er ákvæði í 16. gr. c. sem er athyglisvert í þessu samhengi. Segir þar að sá sem fengið hafi vitn- eskju um eða umráð yfir atvinnuleyndarmálum í starfi sínu megi ekki án heimildar veita upplýsingar um eða hag- nýta sér eða veita öðrum afnot af slíkum upplýsingum. Segir jafnframt að þeim sem trúað er fyrir uppdráttum, lýs- ingum, uppskriftum, líkönum eða þess háttar, sé óheimilt að hagnýta sér eða veita öðrum afnot af slíku án sérstakrar heimildar. Bann við hagnýt- ingu upplýsinga af þessu tagi nær einnig til fyrirtækis sem notfærir sér þær. Eftirlit með þáttum sem falla undir lögin er í höndum Neytendastofu. Í úrskurði hennar nr. 10/2006 er komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi starfsmaður fyrirtækis hafi í störfum fyrir nýjan vinnuveitanda hag- nýtt upplýsingar í eigu fyrri vinnuveitanda með ólögmæt- um hætti. Umræddar upplýsingar vörðuðu hverjir voru viðskiptavinir fyrrverandi vinnuveitanda. Talið var einnig að nýr vinnuveitandi hefði einnig gerst brotlegur við 16. gr. c. því upplýsingarnar voru veittar í hans þágu. Það er því að ýmsu að hyggja þegar menn skipta um vist og rétt að íhuga hvort áhugi nýs vinnuveitanda sé bundinn við færni og þekkingu, fremur en upplýsingar sem menn kunna að búa yfir og þeir hafa öðlast í starfi sínu hjá fyrrverandi vinnuveitanda. Má nýta þekkingu, sem aflað er, í þágu nýs vinnuveitanda? LÖGFRÆÐI Jón Þórisson lögfræðingur og starfar hjá Dranga lögmönnum ehf. ” … hefur orðið vart við að sett séu sérstök samkeppn- isákvæði í ráðningar- samninga, þar sem starfs- maður gengst undir bann við því að hefja starf hjá keppinaut eða aðila á sama eða sambærilegum mark- aði, í tiltekinn tíma, stundum að viðlögðum sektum. EGGERT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.