Morgunblaðið - 26.06.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019FRÉTTIR
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Harðasta skotið á rafmyntina líbru
kom úr óvæntri átt. Chris Hughes,
sem var herbergisfélagi Marks Zuc-
kerbergs á heimavist Harvard-
háskóla, og gerðist síðar einn af
stofnendum Facebook, sendi Fin-
ancial Times langt bréf þar sem
hann varar við þeirri hættu sem
gæti stafað af líbrunni.
Þar bendir hann á að ef líbran
nær ágætisútbreiðslu væri þar með
verið að flytja stjórn peningamála
frá stjórnvöldum og yfir til einkafyr-
irtækja. „Það er óhjákvæmilegt að
þessi fyrirtæki muni setja sína eigin
hagsmuni – hagnað sinn og ítök – of-
ar hagsmunum almennings,“ skrifar
Hughes sem óttast jafnframt að
voldugur alþjóðlegur rafrænn gjald-
miðill eins og líbran geti gert að
engu mikilvæg hagstjórnartæki
stjórnvalda víða um heim.
Gæti orðið eins og á Grikklandi
„Aðstandendur líbrunnar hafa á
réttu að standa þegar þeir segja að
nýr, auðseljanlegur og stöðugur
gjaldmiðill myndi höfða sterklega til
almennings í nýmarkaðslöndum.
Raunar væri slíkur gjaldmiðill svo
ómótstæðilegur að ef nógu margir
byrja að nota hann í staðinn fyrir
sinn þjóðargjaldmiðil myndu stjórn-
völd eiga í vanda með að stýra pen-
ingamagni og jafnvel missa tökin á
inn- og útstreymi fjármagns,“ segir
hann og líkir því tjóni sem líbran
gæti valdið við vanda Grikklands í
kjölfar fjármálakreppunnar. „Ver-
andi hluti af evrusvæðinu hafði
Grikkland ekkert vald yfir eigin
peningastefnu og gat því ekki fellt
gengið. Áratug síðar er gríska hag-
kerfið enn þá fjórðungi smærra en
það var fyrir hrun og atvinnuleysi
mælist hvergi meira innan evru-
svæðisins. Líbran gæti gert seðla-
banka í öðrum löndum álíka bjarg-
arlausa þegar bregðast þyrfti við
niðursveiflu.“
Lagaflækjur og lítið traust
Gagnrýnisraddirnar hafa komið
úr öllum áttum, og spjótin ekki síst
beinst að Facebook, og þá hvort
óhætt væri að fela fyrirtækinu að
stýra heilum gjaldmiðli, jafnvel þótt
það verði í gegnum svissneskt dótt-
urfélag þar sem allir samstarfsaðilar
samfélagsmiðilsins hafa jafnan at-
kvæðisrétt. Öðrum eins glappa-
skotum hafa Zuckerberg og félagar
orðið uppvísir að.
FT bendir á að jafnvel þeir sem
þykir hugmyndin að líbrunni góð,
hafi miklar efasemdir um að hægt
verði að komast í kringum allar þær
lagalegu hindranir sem þarf að
glíma við, og þær nýju hindranir
sem stjórnvöld um allan heim væru
vís til að reisa ef þeim þykir raf-
myntin ógna almannahagsmunum. Í
lesendabréfi sínu nefnir Hughes ein-
mitt að stjórnendum líbrunnar væri
mögulega í lófa lagið að knésetja
heilu fyrirtækin með því að útiloka
þau frá líbru-hagkerfinu. „Rík-
isstjórnir um allan heim hafa ekki
efni á að bíða og sjá hvað gerist,“
skrifar hann.
Engir afslættir gefnir
Og stjórnvöld virðast svo sann-
arlega ekki ætla að láta líbruna fram
hjá sér fara. Má greina á tóninum í
tilsvörum seðlabankastjóra um allan
heim að líbru-verkefninu verði ekki
beinlínis tekið opnum örmum.
Franski seðlabankastjórinn,
Francois Villeroy de Galhau, sagði
fjölmiðlum t.d. að líbran myndi
þurfa að fullnægja öllum kröfum um
varnir gegn peningaþvætti og að að-
standendur rafmyntarinnar myndu
þurfa að fá bankaleyfi áður en þeir
fengju að bjóða upp á þjónustu á
borð við að geyma innstæður.
Domenico Gammaldi, seðla-
bankastjóri Ítalíu, kvartaði yfir því
hve lítið væri að finna af haldbærum
upplýsinum í kynningarefni líbrunn-
ar, og Andrew Bailey, stjórnandi
breska fjármálaeftirlitsins, tók í
sama streng þegar hann sagði á
fundi með þingnefnd að ekki væru
nægilegar upplýsingar fyrirliggj-
andi til að hægt væri að skilja líb-
runa til fulls. Sagði hann afdrátt-
arlaust að leyfi stjórnvalda fáist ekki
fyrr en allt verður komið á hreint.
Mark Carney, stjórnandi Eng-
landsbanka, sagði stax í byrjun síð-
ustu viku að líbru-verkefninu verði
mætt „með opnum huga en ekki með
galopna hurð“. Þá kallaði Alþjóða-
greiðslubankinn eftir því á laug-
ardag að stjórnvöld um allan heim
stilltu saman strengi sína til að geta
leyst vel úr því þegar tæknirisar á
borð við Facebook láta að sér kveða
á fjármálasviðinu.
Var það helst að Svisslending-
arnir væru ósköp rólegir yfir komu
líbrunnar. „Mér þykir þetta áhuga-
verð þróun og hef ekki miklar
áhyggjur af þessu,“ hafði Reuters
eftir Thomas Moser sem situr í
stjórn svissneska seðlabankans.
„Þau hafa gefið það skýrt til kynna
að þau vilja spila eftir reglunum og
hafa verið að setja sig í samband við
stjórnvöld.“
Stígi á bremsuna
Hughes, meðstofnandi Zucker-
bergs, segir boltann núna hjá
stjórnvöldum í Bandaríkjunum og
Sviss því þar verði tónninn gefinn
fyrir þær kröfur sem líbru-viðskipti
þurfa að fullnægja, s.s. hvað snertir
varnir gegn peningaþvætti. Hann
telur að bankar í nýmarkaðslöndum
þurfi að hægja á útbreiðslu rafmynt-
arinnar: „Ef líbru-notandi getur
ekki lagt gjaldmiðilinn inn á banka-
reikning í heimalandi sínu eða notað
líbrur til að kaupa þjóðargjaldmið-
ilinn, þá er ólíklegt að rafmyntin nái
verulegri útbreiðslu [á því markaðs-
svæði] skrifar hann. „Þetta þýðir
ekki að banna þurfi líbruna til fram-
búðar, en veitir stjórnvöldum meiri
tíma til að hugsa dæmið alveg til
enda.“
Varar Hughes stjórnvöld við því
að vanmeta getu samfélagsmiðilsins
til að hrista rækilega upp í pen-
ingamörkuðum: „Í gegnum tíðina
hafa stjórnvöld ítrekað vanmetið
Facebook og leyft fyrirtækinu að
gleypa upp keppinauta á borð við
Instagram og WhatsApp. Að þessu
sinni dugar ekki að stjórnvöld verði
neitt minna en einstaklega varkár.“
Taka líbrunni ekki opnum örmum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Seðlabankar og alþjóð-
legar fjármálastofnanir eru
á tánum vegna fyrirhug-
aðrar rafmyntar Facebook
og samstarfsaðila sam-
félagsmiðilsins. Ef líbran
næði mikilli útbreiðslu gæti
hún veikt tök stjórnvalda á
eigin peningamörkuðum
og torveldað hagstjórn í
niðursveiflum.
AFP
Chris Hughes, vinur Marks Zuckerbergs úr háskóla og einn stofnenda Facbook, varar við alls kyns hættum sem rafmyntin líbra gæti haft í för með sér.