Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 16

Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 H úseigendur sem eru að leita að ódýru gólfefni en hugnast ekki hefðbundið plastparket ættu að íhuga að líma OSB-plötur á gólf- ið og endurvekja þannig gömlu góðu spónaparketsstemminguna. Margir muna vel eftir íslenska spónaparketinu sem framleitt var hér á landi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar en víða í eldri sum- arhúsum má enn sjá það á gólfum. Spónap- arketið hafði skemmtilegan karakter því útlit þess var mjög lifandi og óhreinindi og skemmdist sáust ekki vel á því. Með því að nota lakkaðar OSB-plötur á gólfið má ná fram svipuðum áhrifum. Samanborið við plastparket þá er kostn- aðurinn líklega svipaður þegar allt er talið með. OSB-plöturnar hafa þó ýmsa kosti fram yfir fljótandi parket. Vinnan við undirlagið er til að mynda minni, það er hægt að leggja efnið á gólf sem ekki er rétt af, gólflistar eru ekki nauðsynlegir og auðvelt er að fella efnið að óreglulegum línum. Fyrir hóflega upphæð er útkoman heiðarlegt gólfefni sem ekki er að þykjast vera neitt annað en það er. Gólf- efni með karakter úr hlýlegum ekta við sem hægt er að pússa upp þegar það er orðið tuskulegt. Hvað er OSB? OSB (Oriented Strand Board) er bygg- ingarefni sem minnir á eitthvað á milli spóna- plötu og krossviðar. Það er búið til úr grófum tréspæni sem pressaður er saman í plötur. Oftast eru mismunandi gerðir af spæni not- aðar í plöturnar sem gefur skemmtilegt útlit því spónræmur í mismunandi litatónum liggja þvers og kruss í efninu. Plöturnar eru til í mismunandi þykktum en 9 og 12 milli- metra plötur eru algengastar og algengasta plötustærðin er 120x250 eða þar um kring. Efnið er til að mynda notað í klæðningar, sem innra lag í tvöfaldri klæðningu á milli- vegg eða í burðarvirki gólfs og þaks. Fyrir áhugasama má benda á að á vef Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands er að finna ágætis upplýsingarrit um efnið skrifað af Jóni Sig- urjónssyni en hægt er að hlaða því rafrænt niður gegn greiðslu. OSB-gólf í þremur skrefum Það fer eftir því hversu stórt rýmið er og hvernig undirlagið er hvort hægt er að leggja plötunar niður í heilu lagi eða hvort hentugra er að búta þær niður í smærri einingar. Und- irlagið í stóru rými þarf að vera tiltölulega slétt ef leggja á plöturnar niður heilar, ann- ars er hætta á því að þær séu á lofti. Ef gólf- ið er ekki alveg jafnt er betra að skera plöt- urnar niður í renninga í nokkrum stærðum, til dæmis í 60 og 40 cm breiddir. Hreinsa þarf gólfið áður en hafist er handa og gott er að rykbinda með umferð af akrýl- grunni. Dregin er lína í rýminu og unnið út frá henni. Hægt er að byrja að leggja hvar sem er út frá línunni. Parketlím er dregið á lítinn flöt í einu með tenntum spaða og renn- ingarnir lagðir niður. Notið flísaklossa til að mynda fallega fúgurönd á milli renninga. Ef sleppa á við gólflista þarf að fella efnið alveg að veggjum. Þar sem gólfið hallar sitt á hvað er nauð- synlegt að setja eitthvað þungt ofan á renn- ingana til þess að þeir límist örugglega niður. Betra er að nota 9mm þykkar plötur heldur en 12 mm ef gólfið er ójafnt því það er auð- veldara að móta þynnra efni. Ef undirlagið er gróft þá fer meira af lími. Þegar plöturnar eru komnar á allt gólfið er fúgað með akrýl- kítti. Gott er að nota málningarlímband til þess að fá góðar línur, ekki nema viðkomandi sé þeim mun vanari með kíttissprautuna. Þegar kíttið er þornað er endað á að lakka yfir. Pólíúritan-lakk er slitsterkara en akrýl- lakk en það er líka dýrara. Þar sem yfirborðð er gljúpt þarf gott magn af lakki í fyrstu um- ferð en minna í þá seinni. Áður en byrjað er að lakka þarf að strjúka létt yfir með sand- pappír nr. 120 til að tryggja viðloðun. Ódýrar OSB- plötur með karakter Spónaparket var vinsælt gólfefni á níunda og tíunda áratug síðustu aldar en með tilkomu plastparketsins hvarf það úr ís- lenskum verslunum. OSB-plötur, sem unnar eru á svipaðan hátt, eru þó enn fáanlegar hér á landi og með góðum vilja og vinnu má vel nýta þær sem gólfefni, á veggi og fleira. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com OSB-efnið þykir einstaklega fallegt og minnir á tíunda áratug síðustu aldar. Það fer eftir því hversu stórt rýmið er og hvernig undirlagið er hvort hægt er að leggja plötunar nið- ur í heilu lagi eða hvort hentugra er að búta þær niður í smærri einingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.