Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019
G
aman verður að fylgjast með upp-
byggingunni á komandi árum, og
ljóst að margir spennandi og
mjög vistlegir kostir eiga eftir að
verða í boði fyrir fasteignakaup-
endur. Þetta segir Gunnar Sverrir Harðarson
fasteignasali hjá RE/MAX.
„Ef við skoðum áætlanir skipulagsyfirvalda
þá stefnir í að árið 2050 verði búið að fjölga
heimilum á höfuðborgarsvæðinu um 50% frá
því sem nú er, bæði með því að láta byggðina
vaxa og dreifa úr sér, og líka með því að þétta
hana,“ segir Gunnar og bendir t.d. á Heklureit,
Urriðaholt, Hnoðraholt og Vogabyggð.
Bjóða upp á gott mannlíf
Í þessum nýju íbúðahverfum, hvort sem þau
eru stór eða smá, má greina nýjar áherslur í
hönnun og skipulagi sem endurspegla breyttar
óskir almennings. Gunnar segir Vogabyggð
mjög gott dæmi um þessa þróun. Svæðið er
innst við Elliðavog, steinsnar frá smábátahöfn-
inni, og stutt í bæði Sæbraut og Vesturlands-
veg, sem og alls kyns verslun og þjónustu en
byggðin samt þannig staðsett að hún er í miklu
návígi við náttúruna og hentar þeim sem vilja
stunda heilbrigðan lífsstíl. „Hverfið minnir um
margt á Fossvoginn, er í góðu skjóli og með
þægilegt veðurfar fyrir úti-
veru. Grunnskólinn á að
rísa við smábátahöfnina
og munu börnin geta
gengið í skólann yfir
nýja brú, án þess að
fara yfir umferð-
argötu,“ útskýrir
Gunnar. „Hollenska
arkitektastofan Jvant-
spijker, í samvinnu við ís-
lensku stofuna THG, var hlut-
skörpust í hugmyndasamkeppni
um nýtt deiliskipulag svæðisins og sjást
þess greinilega merki í því hvernig heilnæmur
lífsstíll, náttúra og byggð eru fléttuð saman, t.d.
með góðum göngu- og hjólaleiðum í allar áttir.“
Skipulagssvæði Vogabyggðar er um 18,6
hektarar að flatarmáli og gert ráð fyrir 1.100-
1.300 íbúðum sem samtals verða um 155.000
fermetrra að stærð, og að auki að í hverfinu
verða 56.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði.
Gunnar segir Valsreitinn af svipuðum toga.
Hverfið fyllir út í stóran hluta af lóðunum um-
hverfis Valsheimilið, og er bæði skammt frá
miðbæ, Landspítala, háskólum og náttúruperl-
unni Öskjuhlíð. „Ekki er langt fyrir íbúa að
komast út á stofnbraut og er íþróttastarf, s.s.
hjá Val og Mjölni, í göngufæri.“
Bendir Gunnar á að eitt af sérkenn-
um skipulagsins á Valsreit, Hlíðarenda-
byggð, er að húsin liggja þétt saman og mynda
stóra inngarða. „Þar ætti að vera gott skjól og
gaman að njóta útiverunnar þegar veður leyfir.
Er langt síðan byggt hefur verið með þessum
hætti í Reykjavík og sennilega að leita þarf allt
aftur til verkamannabústaðanna við Hring-
braut sem Guðjón Samúelsson teiknaði og voru
reistir á 4. áratugnum.“
Miðbærinn fær á sig annað yfirbragð
Þá er eftir að nefna uppbyggingarsvæði mjög
nálægt miðborginni, s.s. Heklureit, Vesturbugt,
Austurhöfn og Héðinsreit. Á Héðinsreit er t.d.
fyrirhugað að byggja allt að 330 íbúðir og 230
Á þessari teikningu frá Yrki arkitektum má sjá hvernig gæti mögulega orðið umhorfs þar sem hús bílaumboðsins Heklu eru í dag. Gatan er vistleg og stutt í verslun og þjónustu af öllu tagi.
Mikið af áhugaverðu
húsnæði í pípunum
Reikna má með að þykja muni mjög eftirsóknarvert
að búa í þeim hverfum og byggingarreitum sem eru á
teikniborðinu eða jafnvel komin á framkvæmdastig.
Gunnar Sverrir Harðarson segir að þar verði að
finna húsnæði við allra hæfi.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Gunnar Sverrir
Harðarson
Inngarðar munu einkenna Hlíðar-
endabyggð og skapa gott skjól
fyrir fólkið sem þar býr.
hótelherbergi, en á
Heklureit stendur til
að reisa fimm fjölbýlishús og
hótel, og íbúðirnar á Austurhafn-
arsvæðinu eru svo nálægt Reykjavíkurhöfn að
lætur nærri að íbúar muni geta dorgað í höfn-
inni út um eldhúsgluggann. „Þegar þessir reitir
eru fullbyggðir og íbúarnir komnir verður enn
líflegra um að litast á hafnarsvæðinu og allt
annað yfirbragð komið á miðbæinn þegar fram-
kvæmdum lýkur,“ segir Gunnar. „Það á líka við
um þessi svæði að íbúðaframboðið verður mjög
fjölbreytt: íbúðirnar af öllum stærðum og gerð-
um, og munu henta breiðum hópi fólks.“
Enn er töluverð uppsöfnuð þörf fyrir hús-
næði á höfuðborgarsvæðinu og framkvæmdir
mislangt á veg komnar á þeim svæðum sem
hafa verið nefnd hér að framan. Sums staðar er
búið að gangsetja vinnuvélarnar en á öðrum
stöðum eru teikningar enn í vinnslu og skipu-
lagsmálin ekki að fullu frágengin. Gunnar segir
innistæðu fyrir kvörtunum þess efnis að stór
byggingaverkefni velkist of lengi um í kerfinu
SJÁ SÍÐU 21