Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 G aman verður að fylgjast með upp- byggingunni á komandi árum, og ljóst að margir spennandi og mjög vistlegir kostir eiga eftir að verða í boði fyrir fasteignakaup- endur. Þetta segir Gunnar Sverrir Harðarson fasteignasali hjá RE/MAX. „Ef við skoðum áætlanir skipulagsyfirvalda þá stefnir í að árið 2050 verði búið að fjölga heimilum á höfuðborgarsvæðinu um 50% frá því sem nú er, bæði með því að láta byggðina vaxa og dreifa úr sér, og líka með því að þétta hana,“ segir Gunnar og bendir t.d. á Heklureit, Urriðaholt, Hnoðraholt og Vogabyggð. Bjóða upp á gott mannlíf Í þessum nýju íbúðahverfum, hvort sem þau eru stór eða smá, má greina nýjar áherslur í hönnun og skipulagi sem endurspegla breyttar óskir almennings. Gunnar segir Vogabyggð mjög gott dæmi um þessa þróun. Svæðið er innst við Elliðavog, steinsnar frá smábátahöfn- inni, og stutt í bæði Sæbraut og Vesturlands- veg, sem og alls kyns verslun og þjónustu en byggðin samt þannig staðsett að hún er í miklu návígi við náttúruna og hentar þeim sem vilja stunda heilbrigðan lífsstíl. „Hverfið minnir um margt á Fossvoginn, er í góðu skjóli og með þægilegt veðurfar fyrir úti- veru. Grunnskólinn á að rísa við smábátahöfnina og munu börnin geta gengið í skólann yfir nýja brú, án þess að fara yfir umferð- argötu,“ útskýrir Gunnar. „Hollenska arkitektastofan Jvant- spijker, í samvinnu við ís- lensku stofuna THG, var hlut- skörpust í hugmyndasamkeppni um nýtt deiliskipulag svæðisins og sjást þess greinilega merki í því hvernig heilnæmur lífsstíll, náttúra og byggð eru fléttuð saman, t.d. með góðum göngu- og hjólaleiðum í allar áttir.“ Skipulagssvæði Vogabyggðar er um 18,6 hektarar að flatarmáli og gert ráð fyrir 1.100- 1.300 íbúðum sem samtals verða um 155.000 fermetrra að stærð, og að auki að í hverfinu verða 56.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði. Gunnar segir Valsreitinn af svipuðum toga. Hverfið fyllir út í stóran hluta af lóðunum um- hverfis Valsheimilið, og er bæði skammt frá miðbæ, Landspítala, háskólum og náttúruperl- unni Öskjuhlíð. „Ekki er langt fyrir íbúa að komast út á stofnbraut og er íþróttastarf, s.s. hjá Val og Mjölni, í göngufæri.“ Bendir Gunnar á að eitt af sérkenn- um skipulagsins á Valsreit, Hlíðarenda- byggð, er að húsin liggja þétt saman og mynda stóra inngarða. „Þar ætti að vera gott skjól og gaman að njóta útiverunnar þegar veður leyfir. Er langt síðan byggt hefur verið með þessum hætti í Reykjavík og sennilega að leita þarf allt aftur til verkamannabústaðanna við Hring- braut sem Guðjón Samúelsson teiknaði og voru reistir á 4. áratugnum.“ Miðbærinn fær á sig annað yfirbragð Þá er eftir að nefna uppbyggingarsvæði mjög nálægt miðborginni, s.s. Heklureit, Vesturbugt, Austurhöfn og Héðinsreit. Á Héðinsreit er t.d. fyrirhugað að byggja allt að 330 íbúðir og 230 Á þessari teikningu frá Yrki arkitektum má sjá hvernig gæti mögulega orðið umhorfs þar sem hús bílaumboðsins Heklu eru í dag. Gatan er vistleg og stutt í verslun og þjónustu af öllu tagi. Mikið af áhugaverðu húsnæði í pípunum Reikna má með að þykja muni mjög eftirsóknarvert að búa í þeim hverfum og byggingarreitum sem eru á teikniborðinu eða jafnvel komin á framkvæmdastig. Gunnar Sverrir Harðarson segir að þar verði að finna húsnæði við allra hæfi. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Gunnar Sverrir Harðarson Inngarðar munu einkenna Hlíðar- endabyggð og skapa gott skjól fyrir fólkið sem þar býr. hótelherbergi, en á Heklureit stendur til að reisa fimm fjölbýlishús og hótel, og íbúðirnar á Austurhafn- arsvæðinu eru svo nálægt Reykjavíkurhöfn að lætur nærri að íbúar muni geta dorgað í höfn- inni út um eldhúsgluggann. „Þegar þessir reitir eru fullbyggðir og íbúarnir komnir verður enn líflegra um að litast á hafnarsvæðinu og allt annað yfirbragð komið á miðbæinn þegar fram- kvæmdum lýkur,“ segir Gunnar. „Það á líka við um þessi svæði að íbúðaframboðið verður mjög fjölbreytt: íbúðirnar af öllum stærðum og gerð- um, og munu henta breiðum hópi fólks.“ Enn er töluverð uppsöfnuð þörf fyrir hús- næði á höfuðborgarsvæðinu og framkvæmdir mislangt á veg komnar á þeim svæðum sem hafa verið nefnd hér að framan. Sums staðar er búið að gangsetja vinnuvélarnar en á öðrum stöðum eru teikningar enn í vinnslu og skipu- lagsmálin ekki að fullu frágengin. Gunnar segir innistæðu fyrir kvörtunum þess efnis að stór byggingaverkefni velkist of lengi um í kerfinu  SJÁ SÍÐU 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.