Morgunblaðið - 03.07.2019, Side 6

Morgunblaðið - 03.07.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 veita náttúrulega vörn gegn bakteríum í munninum Tvíþætt sink og arginín Dregur úr tannskán Styrkir glerunginn Dregur úr tannskemmdum Frískari andardráttur Dregur úr blettamyndun Dregur úr viðkvæmni Dregur úr tannsteini Fyrirbyggir tannholdsbólgu NÝTT Veruleg fækkun baktería á tönnum, tungu, kinnum og gómi eftir samfellda notkun í fjórar vikur. BYLTING FYRIR ALLANMUNNINN Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold Frábær vörn í 12 tíma Ragnar Stefán Magn- ússon, fyrrverandi prentsmiðjustjóri Morgunblaðsins og áhugamaður um knatt- spyrnu, er látinn, 82 ára að aldri. Ragnar fæddist 11. september 1936 á Ak- ureyri. Foreldrar hans voru Magnús Guð- mundsson, matsveinn í Garðabæ, og Anna Elí- asdóttir húsfreyja. Ragnar hóf nám í Prentsmiðju Hafnar- fjarðar á árinu 1954 og stundaði nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Hann lauk sveinsprófi í prentiðn 1959. Eftir það starfaði hann í Steindórsprenti og Prentsmiðju Hafnarfjarðar þar til hann hóf störf í prentsmiðju Morgun- blaðsins árið 1962. Hann varð prent- smiðjustjóri árið 1972 og gegndi því starfi til ársins 2004 þegar hann lét af störfum. Hann starfaði hjá Morg- unblaðinu í 42 ár alls. Ragnar sat um tíma í stjórn Hins íslenska prentarafélags. Hann var einn af stofn- endum íþróttafélags- ins Leiknis í Efra- Breiðholti árið 1973 og fyrsti formaður. Hann var knatt- spyrnudómari og var formaður samtaka þeirra. Hann starfaði í ýmsum félögum, með- al annars í Framfara- félagi Efra-Breiðholts og var formaður sjálf- stæðisfélags hverfisins. Hann var heiðraður með gullmerki ÍSÍ árið 1986. Eftirlifandi eiginkona Ragnars er Guðlaug Pálsdóttir Wium. Þau eign- uðust þrjú börn; Sigrúnu, Þór, sem lést ungur, og Magnús Pál. Við leiðarlok þakkar Morgunblaðið Ragnari vel unnin störf, vináttu og stuðning og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Andlát Ragnar Magnússon fv. prentsmiðjustjóri Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta hefur gengið mjög vel, mun betur en við bjuggumst við,“ segir Sindri Már Finnbogason, stofnandi miðasölufyrirtækisins Tix. Í vikunni hóf Tix formlega starfsemi í Danmörku. Þá tók Tix við miðasölu hjá Musikhuset í Árós- um en það er stærsta tónlistarhúsið á Norðurlöndunum. Sindri segir að þar í gærkvöldi og Patti Smith í síð- ustu viku. Skrifstofur í fjórum löndum Tix fagnaði fjögurra ára afmæli hinn 1. október síðastliðinn. Á þeim tíma hefur fyrirtækið tekið yfir nær allan miðasölumarkað á Íslandi. Fyrir tveimur árum var ákveðið að víkka starfsemina út og reyna fyrir sér erlendis. Nú er svo komið að fyrirtækið selur miða fyrir 25 menn- ingarhús á Norðurlöndunum. Tix seldi um 900 þúsund miða á síðasta ári en nú er útlit fyrir að salan í ár verði hátt í þrjár milljónir miða í löndunum fimm. Á næstunni tekur fyrirtækið við sölu miða í einu menningarhúsi í Noregi og öðru í Svíþjóð. Fimmtán manns starfa hjá Tix og fyrirtækið er með skrifstofur í Reykjavík, Gautaborg, Stafangri og Kaupmannahöfn. Selja hátt í þrjár milljónir miða í ár  Tix hefur starfsemi í Danmörku  Þjónusta 25 menningarhús í fimm löndum Musikhuset selji um 320 þúsund miða á ári hverju sem er töluvert meira en Harpa hér á landi. Í hús- inu eru fjórir salir auk þess sem tón- leikasvæði er ut- an dyra. Hljóm- sveitin Band of Horses spilaði Sindri Már Finnbogason Til skoðunar er að selja eina af Bombardier Q400-skrúfuþotum flugfélagsins Air Iceland Connect vegna bágrar verkefnastöðu. Þetta staðfestir Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri flugfélagsins, í sam- tali við Morgunblaðið, en félagið hef- ur um þessar mundir þrjár flugvélar af þessari gerð í flugflota sínum. „Við erum með rúman flota og höfum verið að leita að verkefnum fyrir þessa vél, annaðhvort að selja hana eða leigja, því við höfum ekki not fyrir hana í okkar starfsemi í dag,“ segir Árni og bendir á að um- rædd vél sé nú í leigu hjá Icelandair og sinni þar áætlunarflugi til Man- chester á Englandi og Dublin á Ír- landi. Aðspurður segir Árni vélina hafa reynst vel í þessum verkefnum, en Icelandair mun notast við Q400 fram í haustið. „Við getum sinnt þessu verkefni vegna þess að við erum með þessa auka vél og nú er bara verið að skoða hvort hægt verður að finna einhver frekari verkefni fyrir hana hér á landi eða erlendis. Ef það gengur ekki er auðvitað möguleiki á að selja hana,“ segir Árni. Bombardier Q400 er tveggja hreyfla skrúfuþota með fjóra í áhöfn og sæti fyrir 72-76 farþega. Drægni vélarinnar er 2.841 km og er flughraði um 670 km/klst. Félagið tók vélar af þessari tegund í notkun árið 2016 en einnig notast það við þrjár Q200-farþegavélar. khj@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Q400 Air Iceland Connect er með þrjár vélar af þessari tegund. Skoða nú að selja Q400-vél  Bág verkefnastaða er sögð vera ástæðan Guðni Einarsson Þórunn Kristjánsdóttir Gripið verður til viðamikilla aðgerða til að auka kolefnisbindingu og efla lífríkið hér á landi. Í því skyni á m.a. að tvöfalda umfang landgræðslu og skógræktar og auka endurheimt vot- lendis. Ríkið mun vinna að fjöl- breyttum verkefnum um allt land í samvinnu við bændur, félagasamtök o.fl. Lögð verður áhersla á vernd líf- ríkis og endurheimt vistkerfa ásamt mælanlegum loftslagsávinningi. Þetta kom fram á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra og Guðmundar Inga Guð- brandssonar umhverfis- og auðlinda- ráðherra í gær. „Með því að leggja stóraukna áherslu á kolefnisbindingu getum við um leið dregið verulega úr losun hér á landi og þarna getur Ísland mark- að sér ákveðna sérstöðu. Við erum ekki aðeins með það að markmiði að uppfylla Parísarsamkomulagið og ákvæði þess heldur líka að Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en 2040,“ sagði Katrín. Hún benti á að Ísland væri í fararbroddi ásamt öðr- um ríkjum sem settu sér það mark- mið að verða kolefnishlutlaus árið 2040. 2,1 milljarði króna verður varið í þessar aðgerðir næstu fjögur árin. Þetta er annar af tveimur megin- þáttum áætlunar ríkisstjórnarinnar í aðgerðum í loftslagsmálum. „Það sem við höfum verið að skoða hér á Íslandi bendir til þess að við getum dregið verulega úr magni kol- efnis í loftinu með bindingu. Það er ástæðan fyrir því að við leggjum áherslu á rannsóknirnar meðfram þessu, að við getum sýnt fram á raunverulegan árangur,“ sagði Katr- ín. Ný verkefni í undirbúningi Lögð verður áhersla á að draga úr losun sem kemur frá landi. „Það felst meðal annars í því að moka of- an í skurði og endurheimta þar með votlendi. Það getur líka falist í því að ráðast í landgræðslu- og skóg- ræktaraðgerðir á landi sem losar kolefni. Þannig sláum við tvær flug- ur í einu höggi; bæði aukum bind- inguna og lokað verður fyrir los- unina,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auð- lindaráðherra. Fé verður sett í rannsóknir og vöktunarverkefni og verkefni sem eru þegar til eins og t.d. Hekluskóga og Bændur græða landið. „Við erum líka að búa til ný verkefni í líkingu við Hekluskógaverkefnið. Við ætlum að hjálpa náttúrunni að hjálpa sér sjálf, koma henni af stað,“ sagði Guð- mundur. Átak til kolefnisbindingar  Fjölbreytt verkefni víða um land  Tvöfalt meiri landgræðsla og skógrækt  Aukin endurheimt votlendis  Ísland kolefnishlutlaust eigi síðar en árið 2040 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Elliðaárdalur Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu áform um aukna kolefnisbindingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.