Morgunblaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019
Er ferðavagninn rafmagnslaus?
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
örugg
t
start
með
TUDO
R
Frístunda rafgeymar
í miklu úrvali,
AGM þurr rafgeymar
eða lokaðir
sýrurafgeymar.
Eftir að hafa ekki keypt leikmann í
18 mánuði kynnti enska úrvalsdeild-
arfélagið Tottenham tvo nýja í gær.
Annars vegar er það hinn 18 ára gamli
Jack Clarke, sem keyptur er frá Leeds
og lánaður aftur þangað, og hins vegar
franski miðjumaðurinn Tanguy Ndom-
bele. Hann kemur frá Lyon á 65 millj-
ónir punda og er þar með orðinn dýr-
asti leikmaðurinn í sögu Tottenham.
Grindvíkingar hafa fengið til liðs við
sig spænskan framherja fyrir karlalið
sitt í knattspyrnu í staðinn fyrir Hol-
lendinginn Patrick N’Koyi sem er far-
inn frá liðinu eftir að hafa aðeins skor-
að eitt mark í átta leikjum. Sá heitir
Óscar Manuel Conde, er 26 ára gam-
all og lék síðast með spænska liðinu
Gimnástica Torrelavega en hann gerði
sex mörk í 34 leikjum fyrir það í C-
deildinni á síðasta tímabili.
Hlynur Atli Magnússon fyrirliði
Fram leikur ekki meira með liðinu í 1.
deild karla í knattspyrnu í ár. Framarar
staðfestu þetta í gær en Hlynur
meiddist í baki í leik gegn Gróttu um
miðjan júní og í ljós er komið að hann
er með brot í þremur hryggjarliðum.
Spánverjinn Rafael Benítez, sem
hætti störfum sem
knattspyrnustjóri
Newcastle í síð-
asta mánuði,
tók í gær
við kín-
verska
félag-
inu Dali-
an Yifang.
Liðið er í tíunda
sæti þegar keppni í
kínversku úrvals-
deildinni er hálfn-
uð.
Eitt
ogannað
11. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eflaust hafa einhverjir efast um að
KR-ingar hefðu burði til að landa
Íslandsmeistaratitlinum í knatt-
spyrnu árið 2019. Ekki síst svart-
sýnir Vesturbæingar sem margir
hverjir virðast óttast bjartsýnisspár
sínum mönnum til handa meira en
nokkuð annað. En eftir sigur KR á
Breiðabliki á mánudagskvöldið
blasir það við að Rúnar Kristinsson
og lærisveinar hans standa virki-
lega vel að vígi þegar Íslandsmótið
er nokkurn veginn hálfnað.
Fjögur stig skilja að KR og
Breiðablik eftir þennan 2:0 sigur.
KR hefur aðeins tapað einum leik
en unnið átta, þar af sjö í röð. Að-
eins tíu mörk hafa verið skoruð hjá
Beiti Ólafssyni sem hefur fest sig í
sessi sem einn af bestu markvörð-
um deildarinnar, með trausta og vel
skipulagða vörn fyrir framan sig.
Eins og staðan er núna virðist að-
eins Breiðablik vera líklegt til að
elta KR-inga í seinni umferðinni.
Önnur lið, eins og Stjarnan, Valur
eða FH, þurfa hreinlega að vinna
nær alla leiki sem eftir eru til að
blanda sér í baráttuna, nema KR
og Breiðablik gefi bæði verulega
eftir á næstu vikum.
Sá besti úr fótboltafjölskyldu
Hákon Ingi Jónsson, sókn-
armaður Fylkis, er leikmaður 11.
umferðar að mati Morgunblaðsins.
Hákon lék mjög vel í fremstu línu
Árbæjarliðsins þegar það lagði KA
að velli, 3:2, fékk tvö M fyrir
frammistöðu sína, en hann átti stór-
an þátt í fyrstu tveimur mörkunum
sem Valdimar Þór Ingimundarson
skoraði og gerði síðan sigurmarkið
á lokasekúndum leiksins.
Hákon er 23 ára gamall Árbæ-
ingur sem hefur leikið með Fylki
frá unga aldri, ef undan er skilið
árið 2016. Þá spilaði hann með HK
í 1. deildinni og skoraði þar 13
mörk í 22 leikjum fyrir Kópavogs-
liðið. Besta ár Hákons í marka-
skorun fyrir Fylki til þessa er 2017
þar sem hann gerði 6 mörk í 1.
deildinni og þá skoraði hann 4
mörk í 17 leikjum fyrir liðið í úr-
valsdeildinni á síðasta tímabili.
Markið gegn KA var hans fyrsta í
tíu leikjum í deildinni í ár en Hákon
er hinsvegar í 2.-4. sæti af Fylk-
ismönnum í M-gjöf Morgunblaðsins
á þessu tímabili.
Hákon kemur úr stórri fótbolta-
fjölskyldu en föðurbræður hans
Óskar og Steinar Ingimundarsynir
voru drjúgir markaskorarar og
meðal frændsystkina Hákons eru
Ingimundur Níels Óskarsson sem
lék lengst af með Fylki og Fjölni og
Jasmín Erla Ingadóttir sem nú
leikur með Stjörnunni.
Finnur hefur slegið í gegn
Finnur Tómas Pálmason, mið-
vörðurinn ungi úr KR, var besti
ungi leikmaður 11. umferðar að
mati Morgunblaðsins, en hann átti
afar traustan leik í vörn Vestur-
bæinga í toppslagnum gegn Breiða-
bliki í fyrrakvöld.
Þetta er í annað sinn sem við
veljum Finn sem fékk líka þessa
viðurkenningu eftir 7. umferðina.
Finnur er aðeins 18 ára gamall og
kom fyrst inn í lið KR í fimmtu um-
ferðinni og hefur verið í byrjunar-
liðinu hjá Rúnari Kristinssyni síð-
an. Finnur fékk sína fyrstu
meistaraflokksreynslu sem láns-
maður hjá Þrótti í 1. deildinni í
fyrra og þá hefur hann spilað 20
leiki með yngri landsliðum Íslands.
Óskar með 60 fyrir KR
Óskar Örn Hauksson skoraði
seinna mark KR í sigrinum á
Breiðabliki og það var hans 60.
mark fyrir KR í efstu deild. Aðeins
Ellert B. Schram hefur gert fleiri
mörk fyrir KR í deildinni, 62 tals-
ins, þannig að Óskar gæti hæglega
slegið met hans í sumar.
Þá komst Óskar með þessu
marki í 14.-16. sæti yfir marka-
hæstu menn efstu deildar frá upp-
hafi. Hann hefur gert 72 mörk í
deildinni og er nú jafn gömlu
markamaskínunum Pétri Péturs-
syni (ÍA og KR) og Steinari Jó-
hannssyni frá Keflavík.
Atli Guðnason setti tvöfalt met
þegar hann kom inn á hjá FH í
markalausu jafntefli í Grindavík.
Hann varð leikjahæstur FH-inga í
efstu deild frá upphafi með 265
leiki, og jafnframt leikjahæstur fyr-
ir eitt félag í deildinni. Báðum met-
unum náði hann af fyrrverandi
samherja sínum til fjölda ára í FH,
Atla Viðari Björnssyni. Atli Guðna-
son er nú orðinn sjöundi leikja-
hæstur í efstu deild karla frá upp-
hafi.
Áhorfendur á leik KR og
Breiðabliks voru 3.012 talsins, sem
er besta aðsókn á leik í deildinni
síðan 6.450 manns sáu úrslitaleik
FH og Stjörnunnar í lokaumferð-
inni árið 2014. Að þeim leik und-
anskildum, er þetta í fyrsta sinn frá
2013 sem þrjú þúsund manns mæta
á leik í efstu deild hér á landi.
Einn leikmaður fékk eldskírn
sína í efstu deild í 11. umferð.
Kristófer Leví Sigtryggsson kom í
mark Fylkis þegar Aron Snær
Friðriksson meiddist eftir 60 mín-
útna leik. Kristófer er 18 ára, upp-
alinn Stjörnumaður, en varði mark
Grindavíkurliðsins GG í 4. deildinni
í fyrra og fékk þar sína fyrstu
reynslu í meistaraflokki.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Óskar Örn Hauksson, KR 11
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 9
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 9
Ólafur Karl Finsen, Val 8
Aron Bjarnason, Breiðabliki 8
Damir Muminovic, Breiðabliki 8
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 8
Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 7
Guðmundur Kristjánsson, FH 7
Marcus Johansson, ÍA 7
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 7
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 7
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 6
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 6
Ásgeir Marteinsson, HK 6
Björn Berg Bryde, HK 6
Brandur Olsen, FH 6
Einar Logi Einarsson, ÍA 6
Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 6
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 8
Ólafur Karl Finsen, Val 5
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 5
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 5
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 5
Valdimar Þór Ingimundarson, Fylki 5
Pálmi Rafn Pálmason, KR 5
Markahæstir
KR 61
Breiðablik 57
Stjarnan 52
ÍA 49
KA 46
Valur 46
Fylkir 45
HK 44
FH 43
Víkingur R. 41
Grindavík 39
ÍBV 30
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
11. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
4-3-3
Vladan Djogatovic
Grindavík
Hilmar Árni Halldórsson
Stjörnunni
Hákon Ingi Jónsson
Fylki Hallgrímur Mar Steingrímsson
KA
Hannes Þór Halldórsson, Val 6
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 6
Jónatan Ingi Jónsson, FH 6
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi 6
Víðir Þorvarðarson, ÍBV 6
Arnþór Ingi
Kristinsson
KR
Finnur Tómas
Pálmason
KR
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Val
Arnór Sveinn
Aðalsteinsson
KR
Brynjar Gauti
Guðjónsson
Stjörnunni
Sölvi Geir Ottesen
Víkingi
5
2
2
2
3
Líklegir Vesturbæingar
Staða KR-inga góð eftir fyrri umferð Geta aðrir en Blikar ógnað þeim?
Hákon Ingi bestur í 11. umferðinni og Finnur besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bestur Hákon Ingi Jónsson lék
mjög vel með Fylki gegn KA.
Morgunblaðið/Hari
Ungur Finnur Tómas Pálmason hef-
ur komið sterkur inn í lið KR.