Morgunblaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Raðauglýsingar Tilkynningar Deiliskipulag í Búðardal Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 13. Júní 2019 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi í Búðardal skv. 41. gr. skipu- lagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið er um 3,5 ha að stærð og nær yfir Bakkahvamm, Lækjarhvamm og nýja götu sem fær nafnið Efstihvammur. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipu- laginu er gert ráð fyrir lóðum fyrir einbýlis-, par- og raðhús. Svæðið er er auðkennt sem íbúðarsvæði A í aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Tillagan er sett fram á uppdrætti og umhverfis- skýrsla er aðskilin greinagerð dags. 3. júní 2019. Tillaga og umhverfisskýrsla munu lig- gja frammi frá 3. júlí 2019 á skrifstofu Dala- byggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Ennfre- mur verður tillagan til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is. Athugasemdum skal skilað til skrifstofu skipulagsfulltrúa, á Miðbraut 11, Búðardal, eða netfangið skipulag@dalir.is fyrir 15. ágúst 2019. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Dalabyggð, 1. Júlí 2019. Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bridge kl. 12. Bíó í matsal kl. 13:15. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir inni- pútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og blöðin við hring- borðið kl. 8:50. Frjást í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Tíra Tríó skemmtir kl. 11:50. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Gönguferð um hverfið kl. 13.30 og etirmið- dagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, gengið frá Borgum. Opið hús í dag í Borgum frá kl. 13 til 16; félagsvist, hannyrðir, spjallhópur og gleðileg samvera, kaffi á könnunni og kaffimeðlæti. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, hádegisverður kl.11.30, félagsvist kl.13.30, síðdegiskaffi kl.14.30, bónusbíllinn kl.14.40, Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10:30. Botsía í salnum Skóla- braut kl. 10:00, Vatnsleikfimi Sundlaug seltjarnarness kl. 18:30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Göngu-hrólfar ganga frá Víkingsheimilinu við Traðarland. kl. 10.00. Kaffistaður Bakaríið Austurveri eftir göngu. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig pípara? FINNA.is✝ Björgvin Ólaf- ur Gunnarsson fæddist í Grinda- vík 9. apríl 1936. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 22. júní 2019. For- eldrar hans voru hjónin Gunnar Magnús Ólafsson formaður ættaður frá Vatnsleysu- strönd, f.1898, d. 1956, og Ólöf Jónsdóttir frá Eyr- arbakka, f. 1897, d. 1966. Björgvin var yngstur fimm systkina. Hin eru í aldursröð: Guðrún, Kristín, Jóna Krist- björg og Bjarni. Þau eru öll látin. Björgvin, eða Venni eins og hann var oftast kall- aður, ólst upp í Grindavík og gekk þar í barnaskóla. Hann bjó í Grindavík alla tíð fyrir utan tvo vetur er hann var í Stýrimannaskólanum en þá leigðu þau hjónin hjá sr. Emil Björnssyni í Reykjavík. Kona hans hét Inga Bjarn- ey Óladóttir, f. 1933, d. 2013. Hún var frá Grímsey. Þau gengu í hjóna- band árið 1955 og þurfti forseta- bréf og leyfi dómsmálaráðu- neytis til þess þar sem Björgvin var aðeins 19 ára gamall. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru Rúnar Þór, f. 1955, kona hans er Karen Mjöll El- ísdóttir, næst fæddist Hrafn- hildur 1957, þriðja er Gunn- hildur fædd 1961, maður hennar er Símon Alfreðsson og yngstur er Óli Björn fædd- ur 1967, kona hans er Guð- rún Jóna Magnúsdóttir. Barnabörnin eru samtals 16 en eitt er látið og barna- barnabörnin eru 18 og síðan eitt barnabarnabarnabarn. Útförin fer fram frá Grinda- víkurkirkju í dag, 3. júlí, klukkan 13. Elsku Venni afi eins og við kölluðum þig alltaf, nú hefur þú fengið hvíldina og ert kominn til ömmu sem hefur tekið vel á móti þér. Við minnumst allra góðu stundanna með þér nú þegar við kveðjum þig. Jólin á Leynis- brautinni voru dásamleg þegar öll stórfjölskyldan var saman- komin, og ykkur ömmu þótti svo gaman að fá okkur í heimsókn og í pössun hér á árum áður þegar þið bjugguð á Leyni- sbrautinni. Ekki skemmdi fyrir ef við barnabörnin nenntum að klóra þér aðeins á bakinu, það þótti þér alveg æðislegt. Við átt- um yndislegar stundir saman úti á golfvelli þegar við drógum fyr- ir þig golfsettið og fengum jafn- vel smá aur fyrir. Langafabörnin minnast þín einnig með hlýhug og hafa orð á því hvað það var alltaf gott og gaman að koma í heimsókn til þín. Ekki þótti þeim það leiðinlegt ef þú laum- aðir að þeim einu Prinspólói. Elsku afi, við vitum að þú fórst sáttur og þér leið vel síðustu dagana, við fáum okkur pulsu í kvöld til að heiðra minningu þína þar sem þér þótti þær svo góðar og jafnvel eitt ísblóm í eftirrétt. Hvíldu í friði, elsku afi, við hugsum hlýtt til ykkar ömmu og minnumst ykkar með gleði og þakklæti í hjarta. Inga Björg, Sara, Emil Daði og fjölskyldur. Það er svo hrikalega sárt að kveðja afa og að reyna að setja það í orð hversu mikið við mun- um sakna hans og hversu mikið af góðum minningum við eigum. Afi var stór partur af lífi okk- ar frá því að við fæddumst, það voru ófáar ferðirnar til þeirra ömmu þar sem við fengum að gista hjá þeim. Þvílík forréttindi seinna meir þegar þau fluttu í götuna okkar og við gátum alltaf stoppað hjá þeim. Alltaf voru kræsingar í boði og aldrei feng- um við skammir þegar við stál- umst í nammiskápinn. Það var stutt í húmorinn og afi var alltaf til í fíflagang, hvort sem það var að losa um efri góminn og „gera tennur“ eða þykjast vera sofandi fyrir hinar ýmsu myndatökur, við hlógum alltaf jafn mikið og afi manna hæst. Hann hafði mjög gaman af því að segja fiskisögur frá gömlu dögunum og skipti þá engu máli á hvaða tungumáli sagan var sögð. Tungumálin, þá sérstak- lega enskan, voru kannski ekki alveg hans sterka hlið og við gátum gjörsamlega grenjað úr hlátri þegar hann henti fram hinum ýmsu frösum á öðrum tungumálum. Minnisstætt er þegar við vorum á veitingastað á Kanarí og einhver fjölskyldu- meðlimur hafði prúttað um skartgrip við götusala. Gamli sneri sér á næsta borð og sagði stoltur við erlenda fólkið sem sat þar: „Þetta átti að kosta tíu þús- und en hann fékk það fyrir eitt þúsund.“ Afi var alltaf með á nótunum varðandi sitt fólk og fram á síð- asta dag spurði hann frétta af fólkinu sínu. Hann var alltaf spenntur þegar von var á nýjum langafabörnum og var svo stolt- ur af „ungunum sínum“ eins og hann kallaði þau. Hann elskaði að hafa þau í fanginu í kúri og sá ekki sólina fyrir þeim frekar en öðrum afkomendum. Heilsan slappaðist mikið síð- asta árið og hafði afi oft orð á því að hann hefði átt gott líf og væri alls ekkert hræddur við að deyja. Amma, ástin í lífi hans, sem dó tæpum 6 árum á undan, var alltaf ofarlega í huga hans og hann saknaði hennar ofboðs- lega mikið. Nú hefur afi loksins fengið hvíldina og það er gott að hugsa til þess að þau amma séu loksins sameinuð á ný og þau sitja ef- laust saman, haldast í hendur eins og þau gerðu alltaf, og vaka yfir fólkinu sínu. Elsku besti afinn okkar, hjörtun okkar eru aum af sökn- uði og sorg en á sama tíma erum við svo þakklát fyrir allan tím- ann sem við fengum með þér, allt sem þú gerðir fyrir okkur og fyrir minningabankann sem er stútfullur af góðum minningum. Hvíldu í friði, Þín Karen Lind, Lórenz Óli, Inga Bjarney og Ólöf Rún. Kæri mágur og vinur. Það er komið að kveðjustund í þessu jarðlífi en minningarnar eru margar dýrmætar og ekki hægt að gera full skil í stuttri kveðju. Lífið hefur verið samtvinnað bæði gegnum fjölskyldubönd og starfsferil. Uppalin á sama blett- inum og þekktust því frá barn- æsku (Björgvin og Valgerður) og svo þegar þið Inga trúlof- uðust og genguð síðar í hjóna- band tengdumst við fjölskyldu- böndum. Það er óhætt að segja að starfsferillinn hafi verið sam- tvinnaður alla starfsævina. Fyrst á Arnfirðingi, á Geirfugl- inum og ekki síst á Grindvíkingi þar sem skipst var á að halda um stjórnvölinn um borð, mánuð í senn, meðan þú stundaðir enn sjóinn. Eftir að hafa verið skip- stjórar og stýrimenn hjá öðrum útgerðum kom upp löngun til að vera sjálfs síns herra og sprikla sjálfir í útgerð. Höfðum við fulla trú á að við kynnum nægjanlega mikið og gætum gert það vel með góðum og samstilltum hópi. Það varð því úr að við fjögur, ásamt Dagbjarti, Birnu, Krist- jáni og Rósu, stofnuðum Fiska- nes hf. Við vorum nokkuð stór- huga og keyptum bát sem við gáfum nafnið Geirfugl, í höfuðið á útdauðum fugli. Við höfðum ekki mikið milli handa og róð- urinn var erfiður í byrjun en við lögðum allt undir og heimilin voru veðsett í topp. Eiginkon- urnar sáu um heimili og börn meðan karlpeningurinn lagði dag við nótt í vinnu við útgerð- ina og allt gekk þetta upp hjá okkur og samstarfið alla tíð far- sælt. Mikill og góður samgangur var milli fjölskyldna okkar enda samkomulagið gott og nálægðin mikil, ekki síst eftir að við byggðum okkur í samvinnu hús hlið við hlið á Mánagötunni. Það voru því hæg heimatökin að skottast á milli húsa bæði fyrir okkur og börnin. Ferðalögin voru ótal mörg bæði vegna vinnu og skemmtunar og endalaust margar skemmtilegar minningar tengdar þeim, mikið hlegið og fíflast. Það var líka dásamlegur tími þegar fjölskyldurnar bjuggu saman í húsi í Danmörku eitt sumarið, vegna sjósóknar heimilisfeðranna í Norðursjón- um. Elsku Venni, þú varst góður faðir og afi og mikið stoltur af hópnum þínum. Börnin þín, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn sjá nú á eftir góðum fjölskylduföður og sökn- uður þeirra er mikill. Við kveðjum þig í bili og þökkum fyrir allar góðu sam- verustundirnar og minningarn- ar. Willard og Valgerður. Björgvin Ólafur Gunnarsson Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför frænda okkar, HELGA GUNNARS ÞORKELSSONAR skrifstofumanns, Barmahlíð 51, Reykjavík. Starfsfólki á Borgarspítalanum, deild B2, Vífilsstöðum og Sóltúni sendum við sérstakar þakkir. Sigríður Helga Þorsteinsd. Jón Ingi Guðmundsson Þorsteinn Kári, Guðmundur Kristján og Friðgeir Ingi Jónssynir Þorsteinn, Guðrún Ása og Friðgerður Ósk Jóhannsbörn Elva Dögg Gunnarsdóttir Vagn Leví Sigurðsson og fjölskyldur Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, GÍSLA GUÐMUNDSSONAR húsasmíðameistara. Sólveig Margrét Ásmundsdóttir Ásmundur Óli Gíslason Aron Freyr Gíslason Katla Sif Friðriksdóttir Hafdís Gerður Gísladóttir Bjartmar Ingi Sigurðsson Lilja Björg Gísladóttir Jón Baldvin Jónsson Erla Guðrún Gísladóttir Finnur Dellsén Guðmundur Garðar Gíslason Yndislegi eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN FINNUR ÖRNÓLFSSON vélfræðingur, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Gullsmára 7, lést fimmtudaginn 27. júní. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 23. júlí klukkan 13. Elín Eiríksdóttir Eiríkur S. Aðalsteinsson Ingibjörg Jónmundsdóttir Aðalsteinn V. Aðalsteinsson Birna Kristbjörnsdóttir Ragnar Aðalsteinsson Ingibjörg Jónsdóttir Margrét Aðalsteinsdóttir Steinar Magnússon Þorbjörg Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og vinsemd við andlát og útför eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR KARLSDÓTTUR Rúríar, Mosabarði 8, Hafnarfirði. Innilegar þakkir til allra sem önnuðust hana af alúð og umhyggju í veikindum hennar. Árni Rosenkjær og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.