Morgunblaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Páll Vilhjálms-son bendir á að Evrópusam- bandið hafi „afturkallað heimild um jafn- ræði milli hluta- bréfamarkaða í sambandinu og Sviss.    Tilgangurinn er að kúga Sviss-lendinga til að taka upp ESB- reglur.    Ráðamenn í Brussel nota Svisssem fordæmi fyrir útgöngu Breta, Brexit.    Sviss er með um 160 tvíhliðasamninga við ESB, enda hvorki í sambandinu né aðili að EES-samningnum líkt og Ísland.    Við endurskoðun samningannaer ESB efst í huga að þvinga Svisslendinga til að taka upp laga- og regluverk sambandsins.    Harðræðið sem ESB beitir Svisser til höfuðs Bretum sem eru á leiðinni út úr ESB.    London er ein helsta fjármála-miðstöð heimsins og má illa við útilokun frá mörkuðum ESB.    Þvingunartilburðir ESB virðastþó ekki hafa mikil áhrif.    Hlutabréfamarkaðurinn í Svissstarfaði eðlilega á fyrsta degi eftir aðgerðir ESB gegn smá- ríkinu í Ölpunum.    Kannski er ESB aðeins papp-írstígur?“ Páll Vilhjálmsson Allt skal undan láta STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Júní var mjög sólríkur, einkum um landið sunnan- og vestanvert. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofunnar. Gríðarlegur munur er á sólskins- stundafjölda milli júnímánaða í ár og í fyrra, en þær voru 330% fleiri í ár. Sólskinsstundir í Reykjavík mæld- ust 303,9 sem er 142,6 stundum yfir meðallagi árin 1961 til 1990. Aðeins fjórum sinnum hafa sólskinsstund- irnar verið fleiri í Reykjavík í júní, mest 338,3 stundir árið 1928. Á Ak- ureyri mældust sólskinsstundirnar 186,3, 9,7 stundum fleiri en að með- altali 1961 til 1990. Sérlega sólarlítið var víða um landið sunnan- og vest- anvert í júní í fyrra. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust þá 70,0 og höfðu þá ekki mælst eins fáar í júnímánuði síðan 1914. Nýliðinn júní var einnig mjög þurr um allt land, segir í yfirlitinu. Óvenju- langur þurrkakafli var á Suður- og Vesturlandi langt fram eftir mán- uðinum. Síðustu dagar maímánaðar voru líka þurrir á þeim slóðum og því var víða nánast óslitinn þurrkur í hátt í fjórar vikur. Úrkoma í Reykjavík mældist 29,5 millimetrar, sem er um 60% af með- alúrkomu árin 1961 til 1990. Á Ak- ureyri mældist úrkoman 14,3 mm sem er 50% af meðalúrkomu árin 1961 til 1990. Úrkoma í Stykkishólmi mældist 12,3 mm sem er 30% af með- alúrkomu Meðalhiti í Reykjavík í júní var 10,4 stig, 1,3 stigum yfir meðallagi ár- in 1961 til 1990, en 0,3 stigum yfir meðallagi síðustu 10 ár. Júní var í 19. sæti af 149 mældum júnímánuðum. sisi@mbl.is Sólskinsstundir voru 330% fleiri Morgunblaðið/Hari Júnísól Börn að leik í Nauthólsvík. Birna Sif Bjarnadótt- ir, skólastjóri Öldu- selsskóla í Reykjavík, er látin, á 38. aldurs- ári. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu síðastliðinn fimmtu- dag, 27. júní. Birna Sif fæddist í Reykjavík 2. sept- ember 1981, dóttir Bjarna Þ. Bjarnason- ar og Sigríðar Ólafs- dóttur. Hún lauk M.Ed.-gráðu frá Há- skóla Íslands í upp- eldis- og menntunar- fræði með áherslu á stjórnunarfræði menntastofnana. Einnig sótti hún fjölmörg námskeið og ráðstefnur, innan lands sem ut- an, og var virk í ýmsu félagsstarfi sem tengdist starfi hennar. Í um tíu ár starf- aði Birna Sif sem grunnskólakennari við Ölduselsskóla. Þaðan fór hún í Flataskóla í Garða- bæ þar sem hún starfaði sem deild- arstjóri einn vetur. Eftir það var hún einn vetur aðstoð- arskólastjóri í Breið- holtsskóla. Loks tók hún við starfi skóla- stjóra Ölduselsskóla á síðasta ári. Eftirlifandi eigin- maður Birnu er Bjarki Þórarinsson, byggingatæknifræðingur hjá verk- fræðistofunni Mannviti. Þau eign- uðust þrjár dætur; Ronju Rut, f. 2008, Birgittu Sigríði, f. 2011, og Birtu Dís, f. 2015. Andlát Birna Sif Bjarnadóttir Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.