Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Dalamaðurinn
og bassaleik-
arinn Tómas R.
Einarsson kemur
fram á djass-
tónleikum á Hót-
el Eddu á Laug-
um í Sælingsdal
í kvöld ásamt
góðum félögum,
bræðrunum Óm-
ari Guðjónssyni
gítarleikara og saxófónleikaranum
Óskari Guðjónssyni.
Tómas ólst upp á Laugum og
þeir Ómar hafa haldið tónleika
þar mörg undanfarin sumur og
fengið til sín góða gesti, Sigríði
Thorlacius, Mugison og í fyrra
þýska trommuleikarann Tommy
Baldu. Óskar spilar nú í fyrsta
skipti með þeim þar en Óskar og
Ómar hafa lengi verið liðsmenn í
latínsveit Tómasar og spilað þá
tónlist meðal annars með honum í
Noregi, Rússlandi, Rúmeníu,
Þýskalandi og Kúbu.
Á efnisskrá í kvöld verður bæði
klassísk djasssveifla og latín-
tónlist, að stórum hluta úr laga-
safni Tómasar. Þar á meðal verða
ný lög sem hann mun hljóðrita síð-
sumars.
Tómas, Ómar og
Óskar á Laugum
Tómas R. Einarsson
Hin kunni banda-
ríski ljósmyndari
Nan Goldin
leiddi á mánudag
mótmæli við
Louvre-safnið í
París. Mótmæl-
endur kröfðust
þess að nafn
Sacler--
fjölskyldunnar yrði tekið af álmu í
safninu með austurlenskum forn-
gripum en þar hefur það verið í ald-
arfjórðung eða síðan nokkrir með-
limir fjölskyldunnar styrktu safnið
rausnarlega.
Hluti Sackler-fjölskyldunnar á
lyfjafyrirtæki sem framleiðir
ópíóðalyf sem þúsundir manna hafa
orðið háðir, þar á meðal Goldin.
Vegna mótmæla hafa mörg söfn
hætt að taka við styrkjum frá fjöl-
skyldunni en forsvarsmenn Louvre
hafa ekki brugðist við kröfunum.
Vilja nafn Sackler-
fólksins úr Louvre
Nan Goldin
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin GÓSS, tríó skipað Sig-
ríði Thorlacius, Sigurði Guðmunds-
syni og Guðmundi Óskari Guðmunds-
syni, gaf fyrir fáeinum dögum út sína
fyrstu plötu, Entíð, og eins og glöggir
sjá er þar orðaleikur á ferð með nafn
hljómsveitar og plötu. Sigríður og
Sigurður eru þekkt af fögrum sam-
söng sínum og Guðmundur þykir með
færustu bassaleikurum landsins og
hefur einnig gert það gott sem upp-
tökustjóri. Þau Sigríður og Guð-
mundur hafa starfað saman í hljóm-
sveitinni Hjaltalín og öll þrjú hafa
komið að einu og öðru tónlistarverk-
efninu. Þá eru þeir Guðmundur og
Sigurður líka bræður þannig að límið
er sterkt í tríóinu.
Tríóið var stofnað fyrir tveimur ár-
um og fór í tónleikaferð um landið og
svo aftur ári síðar. Framundan er svo
tónleikaferð í júlí og platan nýja verð-
ur kynnt um leið.
Tekin upp í kirkju
Upptökur á plötunni fór fram í
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og
völdu þau Guðmundur, Sigríður og
Sigurður nokkrar íslenskar dægur-
lagaperlur til flutnings og má finna
tíu slíkar á plötunni. Perlurnar eru úr
ólíkum og stundum óvæntum áttum,
m.a. „Ó, blessuð vertu sumarsól“,
„Kossar án vara“ eftir Bubba Morth-
ens, „Eitt lag enn“ með Stjórninni og
svo fékk eitt erlent að fljóta með,
„True love leaves no traces“ eftir
Leonard Cohen heitinn.
Skrásetning á samstarfi
Sigríður er spurð að því hvernig
lögin hafi verið valin á plötuna. „Við
höfum verið að spila saman þrjú í tvö
ár, að fara út á
land og búa til
einhverja
stemningu sem
við höldum að
henti þessari
ferð okkar. Það
hefur verið eitt-
hvað bland, bæði íslenskt og erlent og
svo þegar við ákváðum að skrásetja
það sem við höfum verið að gera með
þessari plötu, eiga það til, þá vorum
við sammála um að við vildum hafa
hreinar línur, vildum hafa þetta bara
á íslensku nema hvað að eitt lag laum-
ast þarna inn á ensku. Þá bara fórum
Ekta íslensk
sumarstemning
Tríóið GÓSS gefur út plötuna Entíð
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Önnur heimildarmynd Yrsu Roca
Fannberg í fullri lengd, Síðasta
haustið, var frumsýnd á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í
Tékklandi í fyrradag en hátíðin er
ein þeirra elstu og virtustu í heimi.
Myndin var valin til keppni á hátíð-
inni sem þykir mikill heiður.
Yrsa hefur haft nóg að gera í
Tékklandi frá því hátíðin hófst, veitt
mörg viðtöl og segir hún mikinn
áhuga þar ytra á myndinni. Fullt hafi
verið á frumsýningu hennar og mikið
spurt að sýningu lokinni. „Maður er
vanur að fara á hátíðir þar sem mað-
ur er bara að horfa á myndir en
hérna er maður kominn með ýmsar
skyldur, fundi og svoleiðis,“ segir
Yrsa kímin um þessa fyrstu upplifun
sína af því að frumsýna á Karlovy
Vary.
Síðasta haustið fjallar um bændur
sem bregða búi á Krossnesi í einum
afskekktasta hreppi landsins, Árnes-
hreppi á Ströndum. Á Krossnesi hef-
ur fjárbúskapur verið stundaður
kynslóð fram af kynslóð í hundruð
ára og er sjónum fyrst og fremst
beint að bóndanum Úlfari og eigin-
konu hans Oddnýju síðasta haustið
sem þau smöluðu fé sínu í réttir og
enduðu búskap þar með. „Enn eimir
eftir af gamla Íslandi en síðustu
bændurnir sem stunda búskapar-
hætti að gömlum sið munu brátt
heyra sögunni til,“ segir í tilkynningu
um myndina sem er önnur heimild-
armynd Yrsu en fyrir þá fyrstu, Sal-
óme, hlaut hún verðlaun fyrir bestu
norrænu heimildarmyndina á Nord-
isk Panorama hátíðinni árið 2014.
Var það í fyrsta og eina skipti sem ís-
lensk heimildarmynd hefur hlotið
þann heiður.
Alþjóðlegt umfjöllunarefni
Síðasta haustið var tekin upp
haustið 2016 í Árneshreppi á Strönd-
um en þá hættu fjórir af níu bændum
þar búskap og einn bættist við eftir
það. Yrsa segir fólk á hátíðinni hafa
átt auðvelt með að tengja við þetta
alvarlega umfjöllunarefni. „Það er
mikið spurt um Ísland og bændur og
mikill áhugi fyrir þessari menningu,“
segir Yrsa. „Þetta fjallar náttúrlega
bara um kapítalismann og fjölda-
framleiðslu og jaðarbyggðir,“ segir
Yrsa um efni myndarinnar, það sé
mjög svo alþjóðlegt að því leyti. „Oft-
ast eru „local“ dæmin mjög „global“.
Við erum öll manneskjur og lifum öll
í einhverju samfélagi,“ segir hún.
Þó rakin sé saga Úlfars og Odd-
nýjar í myndinni er hún um leið saga
allra í hreppnum, að sögn Yrsu. En
hvað kom til að hún ákvað að gera
heimildarmynd um þetta efni? „Ég
hef náttúrlega verið einn af haust-
smölunum þarna í átta eða tíu ár.
Þannig að ég hef verið mikið í sveit,“
segir Yrsa. Hún segir langa sögu að
baki búi á borð við það í Krossnesi,
stofn sauðfjár hafi verið ræktaður
þar öldum saman og setið hafi í henni
að nú væri öllu lokið. „Þau eiga ættir
að rekja þarna mjög langt aftur í tím-
ann,“ segir hún um hjónin Úlfar og
Oddnýju, „og myndin fjallar líka um
hvað kemur fyrir þjóðararfinn, mýtó-
lógíuna, þegar fólk býr ekki á stöðun-
um“. Yrsa segir ýmsum spurningum
varpað fram í myndinni, t.d. hvernig
það geti gengið saman að vilja borga
sem minnst fyrir kjöt sem megi þó
ekki vera fjöldaframleitt og hvað fólk
vilji vernda af menningu þjóðarinnar
aftur í tímann. „Þetta er náttúrlega
þjóðararfur sem er að hverfa að
mörgu leyti. Viljum við að allir búi í
Reykjavík?“
Nærvera í ákvörðunum
Í Salóme fjallar Yrsa um móður
sína, veflistakonuna Salóme Herdísi
Fannberg, og finnur áhorfandinn
mikið fyrir nærveru höfundarins því
Yrsa talar við Salóme, spyr hana
spurninga og svarar fyrir sig þegar
móðir hennar er ósátt við eitt og ann-
að sem hún gerir eða segir. Yrsa er
spurð að því hvort nálgun hennar í
nýju myndinni sé svipuð, hvort hún
láti í sér heyra og segir hún svo ekki
vera. Engin viðtöl sé að finna í mynd-
inni þó vissulega sé talað. „Úlfar
reykir pípu og pípan verður að kar-
akter,“ nefnir hún sem dæmi um
hvernig hún lætur myndmálið segja
sögu. „Nærvera mín er kannski í list-
rænum ákvörðunum og fólk sem
þekkir mig og hefur séð myndina
skilur alveg hvar leikstjórinn er mjög
sterkur með sína sýn,“ útskýrir Yrsa.
Á Veggnum í Þjóðminjasafninu
stendur nú yfir sýning á ljósmyndum
sem Yrsa tók í Árneshreppi og segist
hún hafa byrjað að ljósmynda löngu
áður en hún hóf að taka upp fyrir
heimildarmyndina. „Ég er búin að
vera að ljósmynda frá 2014,“ segir
hún og að hún hafi tekið ákvörðun
um að gera myndina þegar hún frétti
af því að Úlfar ætlaði að bregða búi.
Hún segist að lokum halda að Úlfar
hafi skilið vel mikilvægi myndar-
innar, að hún væri saga hreppsins.
Á hverfanda hveli
Heimildarmynd Yrsu Roca Fannberg, Síðasta haustið, var vel tekið á Karlovy
Vary Fjallar um bændur sem bregða búi í Árneshreppi á Ströndum
Spenna Yrsa í Karlovy Vary á frumsýningu heimildarmyndarinnar Síðasta haustið með samstarfsfólki sínu, fram-
leiðandanum Hönnu Björk Valsdóttur, Birni Viktorssyni hljóðhönnuði og Federico Delpero Bejar klippara.