Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  166. tölublað  107. árgangur  HLAUPAHJÓLA- RISI HORFIR TIL ÍSLANDS ROKKARI OG BÓNDI EMMY-TILNEFNING FYRIR TÓNLISTINA Í CHERNOBYL DULÚÐ OG HARMUR 28 HILDUR GUÐNADÓTTIR 4VIÐSKIPTAMOGGINN Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Vincent Tan, sem fer fyrir félaginu sem keypt hefur 75% hlut í Ice- landair Hotels, segir mikla mögu- leika fólgna í því að tengja ferða- markaðinn á Íslandi betur við Asíu. „Þar liggja mikil tækifæri til að ná til vel borgandi ferðamanna. Og þar getum við lagt talsvert til mál- anna. Ég held að ef vilji standi til þess hjá Icelandair Group séu tækifæri í því að hefja beint flug milli Íslands og Asíu. Það er allt hægt ef fólk hefur vilja og dugnað til að bera. Og þarna gæti Ice- landair séð tækifæri á komandi ár- um. Með kaupum okkar á Ice- landair Hotels viljum við breikka vöruúrval okkar gagnvart núver- andi og verðandi viðskiptavinum.“ Tan segist sjá mikil tækifæri í ferðaþjónustunni hér á landi og að ekki sé loku fyrir það skotið að hann muni koma að fleiri verk- efnum hér á landi. Bæði vilji hann reisa nýtt lúxushótel og til greina komi að fjárfesta utan hótelgeirans. „Fjárfesting okkar í hótelunum er til langs tíma og landið á mikið inni að mínu mati. Norðurljósin, jarðhitasvæðin og fossarnir hafa mikið aðdráttarafl.“ Geta opnað leiðina til Asíu  Nýr eigandi Icelandair Hotels segir tækifæri felast í að tengja Ísland við Asíu  Telur Icelandair hafa burði til að hefja flug þangað  Vill leggja sitt af mörkum MViðskiptaMogginnTan Sér mikil tækifæri á Íslandi. Herdís Storgaard, verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, hefur varað við töppum af drykkjarílátum og svokölluðum skvísum. Tilkynn- ingum um tilfelli þar sem börn setja upp í sig hluti sem loka öndunar- veginum hefur fjölgað. Fimm tilfelli hafa verið tilkynnt á síðustu tveimur árum en níu tilfelli voru tilkynnt frá 1991 fram að þeim tíma. Herdís seg- ir marga framleiðendur meðvitaða um hættu sem stafar af hlutum sem lokað geta öndunarvegi barna. M.a. séu nú göt á snuðum svo börn fái loft ef þau stinga öllu snuðinu upp í sig. Herdís er mjög ósátt við stöðu mála viðvíkjandi slysavörnum barna. Að hennar sögn er enginn sérstakur starfsmaður hjá Landlækni sem sér um þau mál þrátt fyrir að fjármagn sem áður fór í slysavarnir barna hafi verið flutt til embættisins. Herdís vinnur sjálfboðavinnu hjá Miðstöð slysavarna barna en Sjóvá og IKEA á Íslandi sjá um annan rekstrar- kostnað. Launuð verkefni sem hún vinnur erlendis gera henni kleift að halda áfram sjálfboðastörfum á Ís- landi. Herdís segir margt hafa áunn- ist í slysavörnum barna en halda þurfi áfram. »6 Áhyggj- ur af stöðunni Morgunblaðið/Sverrir Slys Hættur leynast víða fyrir börn sem eru að skoða og læra á heiminn.  Segir slysavörnum lítill gaumur gefinn Nýverið hefur Blóðbankinn auglýst eftir blóð- gjöfum, en sérstaklega hefur vantað blóð í blóð- flokkum A og O. Margir hafa svarað kallinu, en meðal þeirra er Maria V. Sastre Padro sem kom í Blóðbankann í gær og gaf blóð með bros á vör. Um blóðtökuna sá Jóndís Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem einnig brosti sínu breiðasta meðan á aðgerðinni stóð. »7 Blóðið gefið með breitt bros á vör Morgunblaðið/Hari  „Birkikemba virðist vera í blússandi upp- siglingu, sér- staklega á suð- vesturhorninu,“ sagði Edda Sig- urdís Oddsdóttir, sviðsstjóri rann- sóknasviðs Skóg- ræktarinnar á Mógilsá. „Hún er að breiðast út. Við höfum frétt af henni á nýjum stöðum, til dæmis á Vestfjörðum.“ Annar nýlegur skaðvaldur trjáa er bjallan asparglytta sem börn kalla gullbjöllu og herjar á víðiteg- undir og ösp. Óvenju lítið hefur sést af henni í sumar. Birkiþéla er vesputegund sem verpir í birkilauf seinni part sumars þegar birkið er að ná sér eftir birkikembuna. »10 Skógræktin vill vita af skaðvöldum  Tölvuleikurinn The Machines, sem íslensk-kínverska tölvuleikja- fyrirtækið Directive Games þróaði og gaf út árið 2017, var í eitt og hálft ár söluhæsti leikur í heimi á sviði blandveruleika (e. augmented reality), að sögn Atla Más Sveins- sonar, forstjóra og stofnanda fyrir- tækisins, sem er í viðtali í Við- skiptaMogganum í dag. Fyrirtækið hefur tvisvar sýnt leiki á iPhone 8-kynningum hjá Apple-tölvurisanum, en Directive Games vinnur að tveimur verk- efnum um þessar mundir í sam- starfi við Apple. Daniel James Thue, lektor í tölvuleikjahönnun við HR, segir að í dag sé sýndar- veruleiki í lægð. Var söluhæsti leikur í heimi í meira en ár Atli Már Sveinsson, forstjóri Directive Games, kynnir hér The Machines hjá Apple.  Öryggi kirkna og kirkjugripa á Íslandi er ábótavant að mati Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar. Hann segir hættu á að óhlutvant fólk ásælist og taki gripi úr kirkjum, enda hafi það gerst. For- ráðamenn kirkna landsins verði að vera á varðbergi gagnvart þessu. Telur hann koma til greina að söfn taki að sér varðveislu dýrmætra kirkjugripa sem sumir eru nú geymdir við ótryggar aðstæður. Kirkjur hér á landi eru á fjórða hundrað og eru sóknir skráðir eig- endur þeirra. Enginn hefur yfirsýn yfir hvernig öryggismálum þeirra er háttað í heild. Víðast hvar eru hvorki þjófavarnir né brunavarnir fyrir hendi. »14 Öryggi ábótavant í kirkjum landsins Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Dýrmæti Í mörgum kirkjum eru verðmætir gripir sem freistað geta óhlutvandra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.