Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Kjartan Róbertsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Festa þín gerir það að verkum að
enginn reynir að andmæla þér. Þú gætir
dottið í lukkupottinn fljótlega.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur lengi verið í vandræðum
með ákveðin mál, en nærð nú tökum á
þeim og tekst að snúa þróuninni þér í
hag. Afslöppuð hegðun þínu breytir óvin-
um í vini.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Mundu að öllum orðum fylgir
ábyrgð og reyndu að leiða átök í fjölskyld-
unni sem mest hjá þér. Einhver daðrar við
þig eins og enginn sé morgundagurinn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fáðu heimilisfólkið með þér í
heilsuátakið sem þú ert komin/n í. Leystu
litlu vandamálin á meðan þau eru enn
lítil.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver færir þér hugsanlega gjöf í
dag sem gerir þér kleift að sækja nám-
skeið eða setjast aftur á skólabekk. Fjöl-
skyldumeðlimur kemur þér á óvart.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er létt yfir þér og þú skemmtir
þér vel í vinnunni. Gerðu eitthvað eitt
öðruvísi en venjulega og lengdu listann
svo kerfisbundið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú mátt búast við truflunum í dag.
Reyndu að skapa góðar minningar með
fjölskyldunni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er líklegt að þú lendir í
deilum við maka þinn. Gerðu fjárhags-
áætlun og farðu eftir henni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er allt í lagi að þú felir
öðrum forystuna meðan þú ert að átta
þig á hlutunum. Vertu ekki afundin/n þótt
aðrir reyni að hjálpa þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Tvítékkaðu alla hluti, sem þú
lætur frá þér fara í dag. Sinntu bara þínu
og varastu að dragast inn í deilur manna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Minnkaðu skuldirnar, endur-
greiddu lán, skilaðu því sem þú hefur
fengið að láni og kannaðu hverjir skulda
þér. Það er gott að gera hreint fyrir sínum
dyrum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að
fela allar sínar tilfinningar. Brynjaðu þig
fyrir umhverfinu og skoðaðu vandlega
hvað er þér fyrir bestu í stöðunni.
um viðkvæma hagi fólks var að ræða.
Kynntist þannig innviðum samfélags-
ins náið, jafnvel í efstu lögum, svo ég
noti líkingamál úr eigin fagi.“
Auk þess að skrifa vísindagreinar
og að halda erindi á þingum, heima og
erlendis, hefur Ingi nokkrum sinnum
tekið þátt í gerð fræðsluþátta í sjón-
varpi og verið ráðgjafi við gerð jarð-
fræðisýninga fyrir almenning. Hann
var í stjórn Fjalakattarins, kvik-
myndaklúbbs framhaldsskólanna á
menntaskólaárum. Hann sat í stjórn
Vísindafélags Íslendinga og Orlofs-
sjóðs Bandalags háskólamanna í
hugðarefnum á þessu fræðasviði og
vona að vit sé í því sem ég hef skrifað.
Allavega er mikið vitnað í hverja grein
yfirleitt, sem hefur komið út. Ég
þakka fyrrverandi tæknimönnum
Raunvísindastofnunar Háskólans,
Runólfi Valdimarssyni og Hauki
Brynjólfssyni, margvíslega hjálp árum
saman og jarðefnafræðingnum Níelsi
Óskarsyni, sem endalaust hvatti til
dáða. Páll Skúlason heimspekingur
bað starfsmenn Háskólans um að taka
beinan þátt í samfélagsmálum. Ég tók
hann á orðinu sem aðgerðasinni op-
inberlega og á bak við tjöldin, þegar
I
ngi Þorleifur Bjarnason
fæddist 17. júlí 1959 í
Reykjavík og ólst upp á Hög-
unum í Vesturbænum. Ingi
var sendur í sveit í fjögur
sumur til Elsu Þórólfsdóttur í Arnar-
bæli á Fellsströnd í Dalasýslu, fyrst á
níunda ári. „Allir búskaparhættir
voru þar með gamla laginu, hand-
mjólkað, engin rafveita, en þegar
haustaði var kveikt á olíulömpum, eða
ljósavélin sett í gang með miklum
gauragangi.“
Ingi gekk í skólana Landakot,
Melaskóla og Hagaskóla og tók stúd-
entspróf frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð. „Sveitadvölin og Hamra-
hlíðarskólinn lögðu grunninn að and-
legu sjálfstæði – að fylgja sínum
innra straumi, hvert sem er í heim-
inum.“ Ingi tók B.Sc.-gráðu í jarðeðl-
isfræði við Háskólann í Edinborg í
Skotlandi, M.S.-gráðu frá Háskól-
anum í Utah, Salt Lake City í Banda-
ríkjunum, og loks doktorspróf frá
Columbia-háskóla í New York-borg
árið 1992. „Í tvö ár var ég nýdoktor
við Carnegie-stofnunina í Wash-
ington DC og rannsakaði þá möttul-
strókinn undir Íslandi, „eldhjarta
Íslands“.“
Síðan fluttist Ingi til Íslands í rann-
sóknarstarf við Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands. Hann hélt þar
áfram rannsóknum á möttul-
stróknum og heita reitnum svokall-
aða, þ.e.a.s. athugun á innri gerð jarð-
skorpunnar og möttulsins undir
Íslandi. Þessi vinna fæst við grein-
ingu á því hvernig jarðskjálftabylgjur
eða bylgjur frá sprengingum berast í
gegnum jarðefnin. Ingi rannsakar
núna, með rannsóknarhópi sem hann
stýrir, hvort hægt sé að finna forboða
fyrir stóra jarðskjálfta á Suðurlandi,
með því að leita að breytingum á
eiginleikum jarðskorpunnar fyrir
skjálftana árið 2000. Verkefnið er
styrkt af Rannsóknarsjóði Íslands.
„Ennþá skortir margt í grunn-
skilningi okkar á jarðfræði Íslands.
Enginn getur skýrt að mínum dómi
ástæðuna fyrir virku eldfjallasvæði
eftir endurlöngu Snæfellsnesi, sem er
ekki lítill jarðfræðilegur strúktúr. Ég
þakka Háskóla Íslands fyrir frelsið
sem hann hefur gefið mér til að sinna
mörg ár, auk Félags háskólakennara
í skemmri tíma.
Ingi fékk verðlaun fyrir að deila
hæstu aðaleinkunn með tveimur
nemendum í landsprófi í Hagaskól-
anum árið 1975 og einnig viðurkenn-
ingu árið 1992 frá jarðvísindadeild
Columbia-háskóla fyrir framúrskar-
andi árangur í doktorsnámi. „Ég hef
alltaf verið hissa þegar ég hef fengið
verðlaun eða viðurkenningu, núna
síðast að Morgunblaðið vill birta
grein í tilefni afmælisins.“
Áhugamál Inga eru margvísleg.
„Menning og hættir þjóða og ferðalög
til óvenjulegra staða, viðgerðir á
gömlum bílum, ljósmyndun og sil-
ungsveiði, en ég hef því miður komist
lítið í hana síðustu árin vegna anna.“
Fjölskylda
Fyrrverandi eiginkona Inga er
Guðríður Ásgeirsdóttir, f. 11.6. 1960,
iðnaðarverkfræðingur. Fyrrverandi
sambýliskona Inga er Birgit Ruff, f.
26.3. 1964, arkitekt.
Börn Inga eru 1) Ásgeir Bjarna-
son, sonur Guðríðar Ásgeirsdóttur, f.
24.4. 1988, tölvunarfræðingur í
Reykjavík. Maki: Ásta Bjarnadóttir,
sálfræðingur. Dóttir þeirra er Ingi-
björg María Bjarnason, f. 19.7. 2018.
Þau eru búsett í Reykjavík; 2) Finnur
Breki Bjarnason, sonur Svölu Sig-
valdadóttur deildarstjóra, f. 25.9.
2002, menntaskólanemi í Reykjavík.
Ingi Þorleifur Bjarnason, jarðeðlisfræðingur og rannsóknarprófessor við HÍ – 60 ára
Eldri sonurinn Ingi ásamt eldri syni sínum, Ásgeiri, og Ástu, sambýliskonu
Ásgeirs, og barni þeirra, Ingibjörgu Maríu.
Rannsakaði eldhjarta Íslands
Yngri sonurinn Finnur Breki.
Eldhjartað Líkan sem er í Lava Center á Hvolsvelli.
40 ára Kjartan fædd-
ist á Ísafirði og ólst
upp á Akureyri og í
Norðurhlíð í Aðaldal.
Hann hefur búið á
Egilsstöðum í átta ár.
Hann er húsasmiður
frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri og byggingafræðingur
frá Horsens í Danmörku og er yfirmaður
eignasjóðs Fljótsdalshéraðs.
Maki: Elsa Guðný Björgvinsdóttir, f.
1984, safnstjóri Minjasafns Austurlands.
Börn: Linda Elín, f. 1998, Jóhann Smári,
f. 2010, og Sigrún Heiða, f. 2013.
Foreldrar: Róbert Róbertsson, f. 1956,
sjómaður í Færeyjum, og Elín Kjartans-
dóttir, f. 1956, handverkskona í
Norðurhlíð.
Snædís Ragnarsdóttir
Til hamingju með daginn
Sara Elía Jóhönnudóttir safnaði
26.000 kr. sem hún afhenti Rauða
krossinum í Vestmannaeyjum að gjöf.
Rauði krossinn þakkar Söru kærlega
fyrir þetta frábæra framlag.
Hlutavelta
30 ára Snædís ólst
upp á Seltjarnarnesi
en hefur búið í Kópa-
vogi í fimm ár. Hún er
með BSc- og meist-
aragráðu í lífeinda-
fræði við Háskóla Ís-
lands og er í doktors-
námi í líf- og læknavísindum við HÍ.
Hún keppti tvisvar sinnum á Íslands-
mótinu í módelfitness.
Maki: Viktor Kristmannsson, f. 1984,
landsliðsþjálfari karla í fimleikum ásamt
bróður sínum Róberti.
Dóttir: Viktoría Stella, f. 2016.
Foreldrar: Ragnar Karlsson, f. 1956, og
Karen Rögnvaldsdóttir, f. 1957. Þau eru
eigendur fyrirtækisins Vélar ehf. og eru
búsett á Seltjarnarnesi.