Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
SVIÐSLJÓS
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Blóðbankinn auglýsti bæði í fyrradag og í
síðustu viku eftir blóðgjöfum, en birgðastaða
hefur verið sérstaklega bág í flokkum A og
O. Þorbjörg Edda Björnsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur hjá Blóðbankanum, sagði að allar
blóðgjafir væru mikilvægar og að á sumrin
væri oft snúnara að ná í gjafa.
Ljóst er að auglýsingarnar hafa haft nokk-
ur áhrif en þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins kom við í Blóðbankanum um hádegisbilið
í gær til að spjalla við fólkið á staðnum
streymdu þar inn gjafmildir blóðgjafar með
kerfið fullt af góðu gjafablóði.
Með í för var ljósmyndari sem festi á filmu
þegar blaðamaður, sem viðurkenndi fúslega
að hann væri sannkölluð bleyða þegar
sprautur eru annars vegar, fór í blóðprufu til
að geta gerst blóðgjafi.
„Fengið vel en þurfum áfram blóð“
„Það er algengara að það sé erfiðara að fá
fólk inn á sumrin. Þá er oft erfiðara að ná í
blóðgjafana,“ svaraði Þorbjörg spurð um
ástæðu þess að Blóðbankinn hefði nýverið
þurft að auglýsa eftir blóðgjöfum. Sagði hún
að þegar svo bæri undir væri haft samband
við alla virka blóðgjafa sem mega gefa.
„Það virðist vera meiri notkun eins og
staðan er akkúrat núna, og erfiðara að ná í
blóðgjafana þar að auki,“ sagði hún spurð
hvers vegna auglýst hefði verið eftir blóð-
gjöfum nú. Hún segist þó vilja koma á fram-
færi þakklæti sínu í garð allra blóðgjafa sem
hafa komið
Spurð hvort gefið blóð færi í „staðlaða“
notkun, eða tengdist meira skyndilegum
slysum, sagði Þorbjörg að það væri mjög
mismunandi. Nefndi hún sem dæmi að hjart-
veikir og krabbameinssjúkir þyrftu oft blóð-
gjöf, þá þyrfti oft blóð í kringum skurð-
aðgerðir „og svo auðvitað slys. Við höfum
fengið vel inn, en við þurfum alltaf að fá blóð
jafnt og þétt allt árið um kring“, bætti hún
við.
Mögulega í notkun að kvöldi
Spurð hversu langur tími liði á milli þess
að blóð væri gefið og þar til það væri komið í
notkun svaraði Þorbjörg: „Ef við erum í
virkilegri þörf þá getur það farið niður í
nokkrar klukkustundir. Blóðið þarf að vera á
kæliplötu í svona hálfa aðra klukkustund og
svo er hægt að fara að vinna það. Ef við vær-
um í brýnni þörf væri hægt að koma því út
eftir svona fjóra til sex tíma.“
Segir hún aðspurð að því væri ólíklegt, en
mögulegt, að blóð úr blóðgjafa sem kæmi að
morgni væri komið í notkun að kvöldi. „Yfir-
leitt bíður það aðeins.“ Þorbjörg segir að
virkur blóðgjafi gefi blóð að meðaltali tvisvar
á ári, en líða þurfi þrír mánuðir milli blóð-
gjafa hjá körlum og fjórir hjá konum. „Marg-
ir halda að ein stök blóðgjöf skipti litlu máli,“
segir hún og leggur áherslu á að hver einasta
blóðgjöf sé mikilvæg. Allar upplýsingar megi
nálgast á vefsíðu Blóðbankans.
Hver einasta blóðgjöf mikilvæg
Blóðbankinn auglýsti nýverið eftir blóðgjöfum Erfiðara reynist að ná í blóðgjafa á sumrin
Morgunblaðið/Hari
Blóðprufa Þorbjörg Edda hjúkrunarfræðingur mundar nálina áður en hún tekur sýni úr blaðamanni sem liggur stjarfur á bekknum. „Lauflétt!“
sagði hún nokkrum sekúndum eftir að smellt var af, þegar sýnatökunni var lokið. Að því búnu mátti rölta inn á kaffistofu og fá sér köku.
Það voru brosmild andlit sem tóku við
Moggamönnum í Blóðbankanum á Snorra-
braut í gær og var fyrsta skrefið í blóð-
gjafarferlinu að skrá sig í kerfið og svara
stuttum spurningalista. Fyrir vana blóðgjafa
vekja spurningarnar líklega litla undrun en
nokkrar spurningarnar þóttu blaðamanni ei-
lítið einkennilegar, og líklegar til þess að
flestir myndu svara játandi. Sem dæmi: Hef-
ur þú slasast? og Hefur þú nýlega tekið
verkjalyf? Útskýrði Þorbjörg að allt væri
þetta gert til að ganga úr skugga um að
blóðgjafinn kæmi sem best á sig kominn í
heimsókn í Blóðbankann.
Að skráningu lokinni var komið að viðtali
með hjúkrunarfræðingi þar sem rennt var
yfir spurningalistann og gengið úr skugga
um að ekkert stæði í vegi fyrir því að blóð
væri gefið.
Að því búnu var ekkert að vanbúnaði og
sprautuhræddur blaðamaðurinn lagðist á
bekkinn þar sem Þorbjörg dældi litlum
Kaffistofan rúsínan í pylsuendanum
Hádegismatur Talsvert var af fólki í kaffi-
stofu Blóðbankans upp úr hádegi í gær.
skammti, u.þ.b. tíu millilítrum, úr kerfinu.
„Lauflétt!“ sagði Þorbjörg og þar með var
erfiðið afstaðið.
Spurð um ferlið, og hvort það yrði öðru
vísi þegar komið væri í annað sinn til að gefa
alvöru skammt af blóði, sagði Þorbjörg að
ferlið væri nákvæmlega eins fyrir utan að
sjálf blóðtakan tæki eðlilega örlítið meiri
tíma, þar sem um 450 millilítrar væru teknir
við venjulega blóðgjöf. Fyrst færi fram
skráning, viðtal við hjúkrunarfræðing, blóð-
taka og svo væri komið að rúsínunni í pylsu-
endanum; kaffistofunni.
Mælt er með því að blóðgjafar nærist vel
bæði fyrir og eftir blóðgjöf og er því „besta
kaffistofa landsins“, eins og Þorbjörg orðaði
það, í Blóðbankanum. Aspassúpa, kökur af
ýmsu tagi, brauð og álegg, djús og kaffi voru
meðal þess sem var á boðstólum og segir
Þorbjörg að mælst sé til þess að blóðgjafar
gefi sér örlítinn tíma að blóðgjöf lokinni til
að setjast niður og maula matarbita.
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Fullorðinn einstaklingur sem bú-
settur er á höfuðborgarsvæðinu
greindist með mislinga fyrir nokkr-
um dögum eftir að hafa verið á
ferðalagi í Úkraínu, þar sem misl-
ingafaraldur hefur geisað á undan-
förnum árum.
Þetta kom fram á vef landlæknis í
gær. Þar segir að viðkomandi hafi
ekki skjalfesta bólusetningu gegn
mislingum en að honum heilsist vel
eftir atvikum. Ekki er vitað um
fleiri smit á þessari stundu.
Fram kemur að unnið verði sam-
kvæmt áætlunum sem notaðar voru
í síðasta mislingafaraldri hér á landi
í febrúar og mars í ár og að haft hafi
verið samband við einstaklinga sem
kunni að hafa smitast af þessum
sjúklingnum. Einnig hefur heil-
brigðisþjónustan verið upplýst og
aðilar beðnir um að vera á varðbergi
gagnvart hugsanlegum mislingatil-
fellum.
Síðasta staðfesta mislingasmit á
Íslandi varð í kjölfar þess að ein-
staklingur með smitandi mislinga
var um borð í flugvélum Icelandair
og Air Iceland Connect um miðjan
febrúar á árinu.
Sjö einstaklingar greindust í kjöl-
farið með mislinga á landinu. Fram
kom á vef landlæknis seint í mars að
tekist hefði að stöðva útbreiðslu
mislinga hér á landi. Höfðu þá um
6.750 einstaklingar verið bólusettir
frá því að fyrsta tilfellið greindist í
febrúar. rosa@mbl.is
Einn greindist með
mislinga í Reykjavík
Ekki er vitað um að fleiri hafi smitast
Tónskáldið Hild-
ur Guðnadóttir
hefur verið til-
nefnd til Emmy-
verðlaunanna
fyrir tónlist sína í
þáttaröðinni
Chernobyl.
Hildur er til-
nefnd í flokki
framúrskarandi
frumsaminnar
tónlistar og er tónlist hennar flutt í
2. þætti þáttaraðarinnar. Auk Hild-
ar eru fjögur tónskáld tilnefnd í
þessum flokki, en meðal þeirra er
David Arnold sem margoft hefur
verið tilnefndur til Emmy-verð-
launa.
Í þáttunum Chernobyl er fjallað
um slysið í kjarnorkuverinu í
Tsjernobyl í Úkraínu árið 1986,
þeir hafa slegið í gegn síðan þeir
voru sýndir í vor og fá 19 Emmy-
tilnefningar.
Hildur tilnefnd til
Emmy-verðlauna
Hildur
Guðnadóttir