Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 32
Tríóið Kóngasveifla kemur fram á sumartónleikum Múlans á Björtu- loftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Sveitin hyggst leika sér að fjölbreytilegri sveiflutónlist, frumsaminni og aðfenginni. Tríóið skipa Ómar Guð- jónsson á gítar, Tómas R. Einarsson á bassa og Sigtryggur Baldursson á kongatrommur, sem eru sjaldgæfar í djasstónlist. Kóngasveifla á Múl- anum í Hörpu í kvöld MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Íslands- og bikarmeistarar Breiða- bliks skoruðu níu mörk í öruggum sigri á ÍBV í 10. umferð efstu deild- ar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Kapphlaupið við Val á toppnum er því enn hnífjafnt. Þá vann KR botn- lið HK/Víkings og krækti í mikilvæg stig í fallbaráttunni, sem er afar jöfn, en bæði liðin skiptu um þjálf- ara á dögunum. »27 Meisturunum héldu engin bönd við markið ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Hlaupakonan Guðbjörg Jóna Bjarna- dóttir er nú komin til Svíþjóðar þar sem hún mun keppa á Evrópumóti 20 ára og yngri um helgina. Hún fagnaði öruggum sigri í 200 metra hlaupi á Meistaramóti Íslands um síðustu helgi og því er nóg að gera og nauðsynlegt að hugsa vel um sig eins og hún segist ávallt gera. „Ég vil koma mér inn á Ól- ympíuleikana,“ segir Guðbjörg meðal annars í Morgunblaðinu í dag, en hún er nokkuð ofarlega á stigalistanum fyrir næstu leika í Tókýó á næsta ári. »25 Hugsar vel um sig og stefnan sett til Tókýó Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Þegar hús eru smíðuð taka smiðir sér oft fyrir hendur að reka saman vinnuborð til að nota við smíðina. Þau eru gjarnan úr mótatimbri og jafnan traust því að mörg og þung hamars- högg munu dynja á því borði. Vinnu- borðin þurfa ekki aðeins að þola ham- arshögg heldur og sögun, fleygun og málningu. Það táknar frelsi smiðsins til athafna. Þegar smíði hófst við Lindakirkju árið 2007 var eitt fyrsta verk smiðanna hjá Ístaki að koma sér upp vinnuborði. Það var notað lengst af við smíð kirkjunnar. Örlög slíkra vinnuborða eru oftast þau að gripið er til kúbeinsins og þau rifin.“ Þannig hefst frásögn á vef þjóð- kirkjunnar um altarið í kapellu Lindakirkju í Kópavogi sem er frá- brugðið ölturum í öllum öðrum guðs- húsum á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Altarið er semsé gamalt vinnuborð sem smiðir kirkjunnar komu sér upp fyrir meira en áratug. Í stað þess að vera rifið í lok fram- kvæmdanna og enda á spýtnahaug beið þess göfugt hlutverk við helgi- hald í kirkjunni. Vakið óskipta athygli Séra Guðmundur Karl Brynjars- son, sóknarprestur í Lindasókn, segir að kirkjugestir hafi tekið þessu vel og altarið veki óskipta athygli. Hann segir að eftir að hugmyndin kviknaði hafi menn í fyrstu verið ögn hikandi. „En eftir dálitlar vangavelt- ur sáu þeir hvað þetta var snjöll hug- mynd og fögur,“ segir hann. Í raun megi segja að smíði kirkjunnar hafi hafist á borði þessu sem nú er orðið altari, hinn helgasti staður hverrar kirkju og kapellu, þar sem smiðurinn mikli býður til borðhalds sem byggir menn upp til sálar og líkama. Altarisdúkurinn á sér líka skemmtilega sögu. Hann er kross- myndaður og prjónaður af séra Dís Gylfadóttur, presti við kirkjuna. Til- drög þess að hún gerði dúkinn voru þau að Guðmundur Karl tók eftir því að hún var í fallegri peysu sem hún hafði prjónað. Stakk hann upp á því að hún prjónaði altarisdúk úr sama garni og í sömu litum. Það gerði hún með mikilli gleði, segir hann. Hefur dúkurinn síðan verið á altarinu. Lindakirkja var byggð í nokkrum áföngum. Safnaðarsalur, kennslu- stofa, eldhús og skrifstofur voru vígð 14. desember 2008 og var það látið duga þannig fyrstu árin. Haustið 2014 var aftur hafist handa og gengið frá kirkjuskipi, forkirkju og kapellu að mestu. Var vígsluhátíð haldin 14. desember 2014. Síðan hefur verið unnið að loftklæðningu í forkirkju og fleiri verkum. Fjölbreytt starf fer fram í kirkjunni alla daga ársins. Morgunblaðið/Hari Lindir Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi, við altarið í kapellu kirkjunnar. Einstakt altari í kapellu Lindakirkju í Kópavogi  Notast við vinnuborð smiðanna frá byggingartímanum Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikð úrval af aukahlutum STIMPILPRESSUR SKRÚFUPRESSUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.