Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 TISSOTWATCHES .COM TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION #ThisIsYourTime SKARTGRIPIR&ÚR SÍÐAN 1923 DEEPIKA PADUKONE. TISSOT pr 100 lady. TOP WESSELTON DIAMONDS. Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Tree eftir Idris Elba og Kwame Kwei-Armah, listrænan stjórnanda Young Vic, sem jafnframt leik- stýrir, fær blendnar viðtökur gagnrýnenda en uppfærslan var frumsýnd fyrir skemmstu á Al- þjóðlegu hátíðinni í Manchester (MIF) og verður tekin til sýningar í Young Vic 29. júlí. Allir gagnrýn- endur gera að umtalsefni ásökun Tori Allen- Martin og Sarah Henley á hendur Elba og Kwei- Armah fyrir rit- stuld, en kon- urnar tvær lögðu grunninn að verkinu að beiðni Elba og unnu að því í nokkur ár þar til Kwei-Armah var ráðinn leikstjóri þess. Þeir hafa báðir hafnað öllum ásökunum um ritstuld. „Erfitt er að meta hvort þessi deila muni hafa neikvæð áhrif á vinsældir verksins, en hún gæti skýrt hvers vegna Tree virkar sem sundurlaust og ófókuserað verk. Það er líkt og hinir ólíku höfundar verksins séu að toga það hver í sína áttina,“ skrifar Stephen Dalton fyrir The Hollywood Reporter. Hann hrósar sjónrænni útfærslu verksins og kraftmiklum tónlistar- atriðum, en segir persónur alltof eintóna til að verða áhugaverðar. Undir þetta tekur Matt Trueman hjá Variety. „Án þess að kynnast persónunum almennilega og skilja vonir þeirra og þrár er erfitt að fá samúð með örlögum þeirra,“ skrif- ar Trueman. Hann hrósar sviðsetn- ingu Kwei-Armah sem valið hefur að láta áhorfendur standa allan sýningartímann ásamt því sem þeir eru látnir framkalla ýmis leikhljóð og taka virkan þátt í danssenum. Of mikill flýtir undir lokin Michael Billington hjá The Guardian gefur uppfærslunni þrjár stjörnur af fimm mögulegum og segist mun hrifnari af uppfærsl- unni en sjálfu leikritinu. Ben East hjá Metro gefur uppfærslunni fjór- ar stjörnur og tekur fram að hann hafi sérstaklega hrifist af tónlist verksins, sem kemur frá plötunni mi Mandela sem Elba sendi frá sér árið 2014. Sarah Crompton hjá What’s on Stage gefur uppfærsl- unni líka fjórar stjörnur og er sér- staklega hrifin af því hversu vel uppfærslan blandar saman leiklist, dansi og tónlist. „Helsti styrkur sýningarinnar felst í sviðsetning- unni þar sem áhorfendur standa umhverfis leikrýmið,“ skrifar Crompton. Hún tekur fram að það reyni samt töluvert á áhorfendur að þurfa að standa í heilar 90 mín- útur og veltir fyrir sér hvort það skýri þann mikla flýti sem einkenni seinni hluta uppfærslunnar. Blendnar viðtökur Idris Elba Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég taldi þörf á því að fólk heyrði söguna sagða af sjónarhóli Stephans og af list hans. Ég tel að það sé gott fyrir okkur Íslendinga að heyra hann segja frá,“ segir Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi í Ár- neshreppi og skipuleggjandi þriggja sagna- og tónlistarskemmtana með Kanada- manninum Stephen Jenk- inson og hljóm- sveit hans hér á landi næstu daga. Yfirskrift dag- skrár Jenkinson er „Kvöldstund full af dulúð og harmi“. Fyrstu tónleikarnir verða í Iðnó í kvöld, miðvikudag, næstu í Norðurfirði á föstudags- kvöld og þeir síðustu í Aratungu í Biskupstungum á mánudagskvöld. Allir hefjast tónleikarnir klukkan 20. Spyr aðkallandi spurninga Stephen Jenkinson er lýst sem sagnamanni, rithöfundi, bónda og rokkara. Hann er 65 ára gamall og hefur ferðast víða um lönd með hljómsveit sinni. Hann er menntað- ur guðfræðingur frá Harvard- háskóla og starfaði í tvo áratugi sem líknarráðgjafi deyjandi fólks. Jenk- inson hefur skrifað fjórar bækur með hugleiðingum sínum og þeirra þekktust Die Wise: A Manifesto for Sanity and Soul. Um hann hefur ver- ið gerð heimildarkvikmyndin Grief- walker þar sem boðskapurinn er sá að við eigum að umfaðma dauðann. Á tónleika- og sagnaskemmtunum sínum fléttar Jenkinson saman tóna og sagnalist, segir kynngimagnaðar sögur, vísar jafnt til sögu Íslendinga sem ósamþykktrar sögu Norður- Ameríku og spyr spurninga á borð við: Hvað hefur komið fyrir okkur? Hvernig kom það til að við gleymd- um hver nærir okkur og hver er ábyrgð okkar í heiminum? En að sögn Elínar Öglu minnir hann áheyrendur einnig á að það er hægt að hlæja líka, þrátt fyrir allt. Greinir stöðuna Þetta er í þriðja skipti sem Jenk- inson kemur til Íslands en í tvígang hefur hann haldið námskeið í Árnes- hreppi og hafa þau laðað að fólk víðs- vegar úr heiminum. „Þetta eru sagnakvöld með tónlist þar sem Stephen segir frá og svo leika þau lög inn á milli,“ segir Elín Agla og bætir við að hljómsveit hans leiki eins konar þjóðlagarokk. „Hann hefur fylgst náið með málum á Íslandi síðan ég kynntist honum. Ég hef sagt honum fréttir héðan að gömlum sið og hann hefur ekki síst fylgst með því sem er að gerast í Árneshreppi,“ segir hún. „Stephen er mjög hrifinn af Íslandi, hefur ferðast hér um og nýtur heitu pottanna, en hann hefur líka margt að segja um það sem er að gerast í dag. Stephen hefur sterka sýn á vestræna menningu og hefur verið að greina ástæður og rætur þess hvernig komið er fyrir mönnum í dag. Fyrir nokkrum árum stofnaði hann skóla þar sem sérstaklega er verið að skoða þetta og reyna að greina þá sögu sem við mennirnir erum nú stödd í. Það er eins og við Vesturlandabúar höfum í dag þá til- finningu að við séum komin handan sögunnar, að nú sé bara framþróun, tækninýjungar og allt stefni upp á við, að við séum ekki lengur inni í einhverri stórri sögu þar sem mikil átök og mögulega dularfullir atburð- ir eigi sér stað,“ segir hún en að svo sé vitaskuld ekki. Jenkinson fjalli um sögu okkar og hafi til þess sann- kallaða náðargáfu, sé einstakur sagnameistari. „Ég þekki engan sem sér þessi mál, hvað raunverulega er að gerast, og getur orðað það jafn vel og Stephen Jenkinson,“ segir hún og kveðst hlakka til að heyra hann segja frá í hinu sögufræga húsi Iðnó í kvöld, í Norðurfirði á föstudag og loks í Aratungu. „Og þar er líka hægt að dansa,“ segir Elín Agla. Kvöldstundir sagnaþular með dulúð og harmi  Stephen Jenkinson og hljómsveit koma fram í Iðnó, Norðurfirði og Aratungu Sögumaður Stephen Jenkinson segir sögur á kvöldskemmtununum og á milli leikur hann ásamt hljómsveit sinni. Elín Agla Briem Sænski djasspíanóleikarinn Mattias Nilsson kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld, miðviku- dag, klukkan 21. Nilsson hefur á undanförnum ár- um skapað sér nafn sem einn af áhugaverðustu píanóleikurum Sví- þjóðar, listamaður með sinn eigin tónblæ og áslátt. Hefur hann fengið góða dóma fyrir tónleika sína, bæði í heimalandinu og víða annars stað- ar. Hann kemur nú fram hér á landi í fyrsta skipti, í sumartónleikaröð Norræna hússins, og eru þetta sjöttu tónleikarnir af níu í tónleika- röðinni. Hrósað Mattias Nilsson þykir hafa ein- stakan tón og hefur getið sér gott orð. Píanódjass í Norræna húsinu Kammerkórinn Schola cantorum kemur fram á há- degistónleikum í Hallgrímskirkju í dag, miðviku- dag, og hefjast þeir klukkan 12. Kórinn er með reglubundna tón- leikaröð á þess- um tíma í kirkjunni í sumar. Á tón- leikunum í dag mun kórinn „flytja fallega, hátíðlega og skemmtilega dagskrá sem spannar vítt litróf frá miðöldum á Íslandi til vorra daga með viðkomu í íslenskum tvísöng auk þess sem nokkrar glæsilegar og þekktar perlur evrópskra tón- bókmennta verða teknar til kost- anna“. Tónleikarnir eru á dagskrá hátíðarinnar Alþjóðlegt orgel- sumar í Hallgrímskirkju. Schola cantorum á hádegistónleikum Schola cantorum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.