Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Að minnsta kosti 520 hótelherbergi á sjö hótelum bætast á markaðinn í Reykjavík frá júní til áramóta. Þá verða 150 herbergi í Marriott-hóteli hjá Leifsstöð, alls 670 herbergi, og minnst 51 ný hótelíbúð í miðbænum. Til að setja fjöldann í samhengi eru um 320 herbergi á stærsta hóteli landsins, Fosshótelinu á Höfðatorgi. Fyrir um mánuði var ný hótel- bygging með 38 herbergjum tekin í notkun á Vegamótastíg 7-9. Hótelið Room with a view á Laugavegi 18 leigir bygginguna undir reksturinn. Reir verk reisti hótelbygginguna. Hilmar Þór Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Reir verks, segir framkvæmdir við leigurými á jarð- hæð skemmra á veg komnar. Lokið verði við þær í haust. Fram kom í auglýsingu í sumar að rýmið hentaði vel undir veitingastað eða verslun. Sömu aðilar byggðu Sandhótel á Laugavegi við Sandholtsbakarí. Oddsson hótel við Grensásveg 16a var líka opnað í júní. Þar eru 77 hótelherbergi. Sjöunda hótelið í CenterHótel- keðjunni verður opnað á Laugavegi 95-99 fimmtudaginn 1. ágúst. Þar verða 102 herbergi í nýbyggingu og uppgerðum byggingum. Hótelið er á horni Laugavegar og Snorrabrautar. Tvö ný veitingahús Kristófer Oliversson, fram- kvæmdastjóri og eigandi Center- Hótelanna, segir áformað að opna tvo veitingastaði á jarðhæð hótelsins um miðjan ágústmánuð. Annars vegar verður þar veitinga- húsið Lóa sem jafnframt verður morgunverðarstaður hótelsins. Það mun snúa að Snorrabrautinni. Hins vegar verður minna veitingahús, Stökk, sem mun snúa að Laugavegi. Það mun meðal annars bjóða upp á tilbúna rétti til að taka með. Framkvæmdirnar hafa gengið hratt en í fyrrasumar var lokið við niðurrif gamals atvinnuhúsnæðis á Laugavegi 95-97. Í stað þess er risin hótelbygging með opinni jarðhæð og hótelherbergjum með svölum á efri hæðum. CenterHótel-keðjan var fyrir með sex hótel í miðborginni; Skjaldbreið við Laugaveg, Klöpp við Klapparstíg, Þingholt við Þingholts- stræti, Arnarhvol til móts við Hörpu, Plaza við Ingólfstorg og Miðgarð við Hlemm. Áætlað er að 8. hótelið í keðjunni verði svo opnað á Héðinsreit um áramótin. Þar verða 153 herbergi til að byrja með. Þá bættust við 54 herbergi á Cent- erHótel Plaza í byrjun sumars. Á Laugavegi 55 er verið að inn- rétta Von Guldsmeden-hótelið sem verður með 52 herbergjum. Stefnt er að opnun í september næstkomandi. Handan við götuna bætast svo við 16 hótelíbúðir á Laugavegi 56 í október á vegum Reykjavík Apartments. Þá voru 35 hótelíbúðir teknar í notkun í Bríetartúni í sumarbyrjun. Japanskur staður í Skipholti Áform um nýtt hótel í Skipholti 29a eru óbreytt. Herbergin snúa að Skipholti í suðri og að Brautarholti í norðri. Áformað er að opna hótelið fyrir áramót. Þar verða 44 herbergi og japanskur veitingastaður á jarð- hæð Skipholtsmegin. Skv. heimild- um blaðsins var fallið frá hugmynd- um um að tengja hótelið við bakhús í Skipholti 29. Rætt var um allt að 64 herbergi í sambyggðum húsum. Fjöldi nýrra hótela í borginni  Ný hótel í borginni  Hótel opnað við Grensásveg í júní  38 ný hótelherbergi vígð á Veghúsastíg  Nýtt CenterHótel verður opnað á Laugavegi 1. ágúst  Fleiri gististaðir verða opnaðir með haustinu Morgunblaði/Arnþór Birkisson Room with a view Nýja hótelbyggingin við Vegamótastíg í miðborginni. Dæmi um ný hótel í Reykjavík 2019 Fjöldi: herbergja íbúða CenterHótel, Laugavegi 95-99 102 CenterHótel Héðinsreit* 153 CenterHótel Plaza (stækkun) 54 Skipholt 29a 44 Grensásvegur 16a 77 Von Guldsmeden, Laugavegi 55 52 Bríetartún 9-11 35 Laugavegur 56 16 Vegamótastígur 7-9 38 Alls 520 51 *Hótelið er í byggingu 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGARMIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. Embætti landlæknis vakti árið 2018 athygli heilbrigðis- ráðuneytisins á erfiðri stöðu sem verið hefur undanfarin misseri á gjörgæsludeildum Landspítala og hvernig sú staða hefur haft áhrif á aðrar deildir, þar á meðal hjarta- og lungnaskurðdeild. Embættið vakti athygli á vandanum með sérstöku minnisblaði í apríl og í hlutaúttekt á alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítalans í desember. Í úttektinni var bent á að ítrekað hefði þurft að fresta skurðagerðum vegna skorts á legurýmum, bæði á gjörgæslum og mörg- um deildum spítalans. Í minnisblaðinu kom fram að með- albiðtími eftir hjartaaðgerð væri innan almennra viðmiða, sem eru 90 dagar. Á það var bent að bið eftir hjartaaðgerð gæti í vissum tilvikum verið lífsógnandi og jafnframt að frestun slíkra aðgerða geti skapað sálrænt álag á sjúk- linga. Það var staðfest í fréttum fjölmiðla í vikunni í við- tölum við lækna og sjúkling, sem ekki er treyst til þess að vera heima á meðan hann bíður eftir aðgerð. Sjúkling- urinn hefur beðið í 40 daga en mælt er með að slík bið sé ekki lengri en fimm dagar. Einnig hefur aðgerð verið frestað í þrígang hjá þeim sjúklingi. Landlæknir segir brýnt að bæta við legurýmum á gjör- gæslu og segir rót vandans skort á hjúkrunarfræðingum sem og sjúkraliðum. Það eigi við á gjörgæsludeildum og fleiri deildum spítalans. Þá sé ljóst að vaxandi fjöldi ferða- manna skipti máli og hafi haft veruleg áhrif á starfsemi deildanna og aðgengi að legurýmum þar. Landlækni er kunnugt um að stjórnvöld og stjórnendur Landspítala séu að leita leiða til að efla mönnun en ljóst sé að grípa þurfi til fjölþættra aðgerða, þar á meðal að mennta fleiri auk þess að endurskoða kjör og vinnuskipulag. Á gjörgæsludeildinni við Hringbraut eru 10 rúm en skortur á hjúkrunarfræðingum takmarkar hve mörgum plássum er hægt að halda opnum. Undanfarin ár hefur mönnun verið að jafnaði fyrir sjö pláss á hvorri gjörgæslu- deild Landspítalans. Undanfarna mánuði hefur þurft að draga saman starfsemi og eru nú sex pláss opin á hvorri gjörgæsludeild. Í minnisblaði landlæknis 2017 kom fram að 54 ósjúkra- tryggðir erlendir ríkisborgarar hefðu lagst inn á gjör- gæsludeild Landspítala við Hringbraut og legið þar í 143 daga. Erlendir ríkisborgarar notuðu sama ár 17% af legu- dögum á báðum gjörgæsludeildum en sú tala hefur hækk- að ár frá ári. Biðin eftir hjartaaðgerð getur verið lífsógnandi  Erlendir ríkisborgarar í 17% legurýma á gjörgæslu 2017 Morgunblaðið/Ómar Gjörgæsla Skortur á hjúkrunarfræðingum kemur í veg fyrir nýtingu allra rýma á gjörgæsludeildum Landspítala. Árni Valur Sólonsson, eigandi Capital Hotels-keðjunnar, er sérleyfishafi fyrirhugaðs Marriott-hótels við Keflavíkurflugvöll. Það verður sett saman úr fullinnréttuðum stáleiningum frá Kína og hluti af Courtyard- keðju Marriott. Árni Valur segir áformað að hefja uppsetningu hótels- ins í byrjun ágúst og hefja rekstur fyrir áramót. Þar verða 150 herbergi. Hann segir aðspurður að útlitið sé bjart þrátt fyrir gjaldþrot WOW air. „Þessi dýfa hefur ekki áhrif á framkvæmdina. Verkefnið var löngu komið af stað. Þótt það hafi verið dýfa undanfarið er bjart fram undan í hótelrekstri og ferðaþjónustu á Íslandi. Við munum rísa úr því eins og alltaf áður Íslendingar. Er það ekki? Sveiflurnar koma en þær fara alltaf upp líka,“ segir Árni Valur. Fyrirtækið Aðaltorg ehf. byggir hótelið en það á byggingarrétt upp á tæpa 25 þúsund fermetra á lóðinni, sem er í tveggja mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Flugvallarhótel opnað í vetur 150 HERBERGJA MARRIOTT-HÓTEL VIÐ AÐALTORG Mynd/Capital Hotels/Birt með leyfi Drög Svona gæti eitt af herbergjunum við nýja flugvallarhótelið litið út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.