Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 61
Baldur Sigurðsson
» 34 ára miðjumaður og fyrirliði
Stjörnunnar.
» Hefur leikið 39 Evrópuleiki og að-
eins Atli Guðnason (47) og Davíð
Þór Viðarsson (42) hafa leikið fleiri
fyrir íslensk lið.
» Hefur leikið 312 deildaleiki á Ís-
landi með Völsungi, Keflavík, KR og
Stjörnunni, þar af 244 í efstu deild.
» Lék 37 deildaleiki í Noregi og Dan-
mörku með Bryne og SönderjyskE.
» Hefur spilað þrjá A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd.
Franski knatt-
spyrnumaðurinn
Mamadou Sakho,
sem leikur með
enska liðinu
Crystal Palace,
hefur kært
WADA, Alþjóða-
lyfjaeftirlitið og
krefur það um 13
milljónir punda.
Sakho var úr-
skurðaður í 30 daga keppnisbann í
apríl 2016, þegar hann var leik-
maður Liverpool, eftir að hafa
mælst með fitubrennsluefni í blóð-
inu í lyfjaprófi eftir leik gegn Man-
chester United í Evrópudeildinni.
Hann var síðar sýknaður af UEFA,
Knattspyrnusambandi Evrópu, eft-
ir að í ljós kom að umrætt efni var
ekki á bannlista WADA.
Lögmenn Sakho segja að málið
hafi orðið til þess að hann missti
sæti sitt í liði Liverpool og að lok-
um þurft að fara frá félaginu, og
það hefði jafnframt kostað hann
sæti í landsliðshópi Frakka fyrir
lokakeppni EM 2016.
WADA hefur hafnað því að bera
ábyrgð á því að Sakho skyldi fara
frá Liverpool til Palace og tals-
menn eftirlitsins segja að félaga-
skiptin hafi orðið til vegna aga-
vandamála og árekstra við Jürgen
Klopp knattspyrnustjóra. vs@mbl.is
Mamadou
Sakho
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
EVRÓPUDEILD
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Núna getum við loksins farið að
einbeita okkur að þessum Evrópu-
leik gegn Espanyol,“ sagði Baldur
Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Baldur er mættur til Barcelona með
Stjörnuliðinu þar sem Garðbæingar
mæta spænska efstudeildarliðinu
Espanyol í fyrri leik liðanna í 2. um-
ferð undankeppni Evrópudeildar-
innar á Cornellá-vellinum í Barce-
lona í kvöld.
„Það er óhætt að segja að þegar
maður er kominn hingað út þá kitlar
þetta meira og meira og spennan og
eftirvæntingin í hópnum er gríðar-
leg, það verður bara að viðurkenn-
ast. Ég held að þetta eigi eftir að
„kicka“ betur inn í dag (í gær) þegar
við erum búnir að taka æfingu á vell-
inum og svona. Þetta er vissulega
stórt lið og töluvert stærra en liðið
sem við mættum í Tallinn í fyrstu
umferðinni. Þetta er fyrst og fremst
geggjuð upplifun sem við ætlum að
njóta en að sama skapi er markmiðið
alltaf að ná í góð úrslit og það er það
sem við leggjum upp með.“
Dreymir um riðlakeppnina
Baldur viðurkennir að Evrópu-
keppnin geti verið snúin og það
þurfi allt að falla með íslensku lið-
unum ef þau ætla sér að ná árangri í
Evrópu.
„Þessi Evrópukeppni getur verið
snúin og þetta getur í raun dottið í
þrjár áttir: Þú getur fengið leiki þar
sem íslensku liðin eru líklegri aðilinn
og það eru viðureignir sem við vilj-
um klára. Svo geturðu líka fengið
stóru liðin, sérstaklega þegar þú ert
kominn lengra í keppninni, en við í
Stjörnunni erum ekkert öðruvísi en
hin íslensku liðin; draumurinn er að
komast í riðlakeppnina, en þá viltu
líka fá viðráðanlegt lið á leið þinni
þangað. Stjarnan hefur nú ágætis
reynslu af því að mæta stórum liðum
í Evrópukeppnum, samanber Inter
Mílanó hérna fyrir nokkrum árum,
og það er okkar hlutverk í ár að
mæta Espanyol, sem er annað stór-
lið. Þetta verður fyrst og fremst frá-
bær reynsla fyrir marga af ungu
leikmönnunum en við ætlum okkur
samt sem áður að ná í einhver úr-
slit.“
Markmiðið að halda núllinu
Fyrirliðinn ítrekar að uppleggið í
Barcelona sé fyrst og fremst að
halda markinu hreinu og treysta svo
á góð úrslit í seinni leiknum í
Garðabæ eftir viku.
„Það getur allt gerst í fótbolta
og við erum mjög meðvitaðir
um það að ef við verðum
ennþá á lífi í seinni viðureign-
inni í Garðabænum eigum
við bullandi möguleika á að
fara áfram. Þar erum við á
okkar heimavelli, okkar
gervigrasi, með okkar
stuðningsmenn í okkar
þægindaramma og þar
líður okkur alltaf best.
Við fundum það á móti
Levadia Tallinn sem
dæmi að þeim leið miklu
betur heima í Eistlandi og
voru miklu betri þar þann- ig
að við þurfum að nýta okkur heima-
völlinn í þessu einvígi. Við tökum
létta æfingu í dag (gær) þar sem það
er stutt frá síðasta leik. Þjálf-
arateymið er búið að leikgreina þá
nokkuð vel og við ætlum að fara að-
eins yfir kerfið sem við munum spila
á móti þeim í leiknum. Það er mjög
heitt hérna og við þurfum aðeins að
venjast hitanum því það verður heitt
á leikdegi. Ég held að það myndu fá-
ir mæta á útivöll gegn Espanyol og
ætla að hápressa þá eitthvað en
markmið okkar er fyrst og fremst að
halda núllinu. Það er svo oft þannig
í fótbolta að þú færð einn til tvo eða
jafnvel fleiri sénsa til að skora og
ef við getum nýtt okkur það væri
það auðvitað frábært.“
Með 39 leiki í Evrópukeppni
Baldur hefur spilað 39 Evrópu-
leiki á ferlinum með íslenskum lið-
um en aðeins Atli Guðnason og
Davíð Þór Viðarsson eiga fleiri
Evrópuleiki með íslenskum liðum.
„Ég hef mjög gaman af allri töl-
fræði og það var gaman að sjá það
um daginn í bókinni hjá Víði Sig-
urðssyni, Íslenskri knatt-
spyrnu, hversu marga
Evrópuleiki maður hefur
spilað í gegnum tíðina.
Þetta eru fyrst og fremst
forréttindi að hafa fengið
tækifæri til að spila með klúbbum
á Íslandi sem hafa verið áskrifendur
að sætum í Evrópukeppnum. Þú
kemst ekki í þennan leikjafjölda
nema hafa spilað með liðum sem
hafa náð einhverjum árangri og ég
hef notið þess í botn, ef ég á að vera
alveg hreinskilinn. Vissulega hafa
verið hæðir og lægðir í þessu hjá
manni og maður hefur tekið þátt í
stórum töpum og unnið frækna
sigra en þegar allt kemur til alls eru
það að sjálf-
sögðu sigr-
arnir sem
standa upp úr.
Það eru nokkrir
mjög sterkir sigrar
sem maður hefur tekið þátt í, að-
allega með KR og Keflavík á sínum
tíma, og það er erfitt að lýsa þeirri
tilfinningu. Augnablikið þegar
Brynjar Gauti skoraði
markið gegn Levadia í síðustu
umferð og skaut okkur áfram er
algjörlega ógleymanlegt og maður
fagnar eins og maður sé heims-
meistari. Þetta eru augnablikin sem
gefa manni mest og markmiðið fyrir
leikinn gegn Espanyol er að búa til
annað ævintýri,“ sagði Baldur í sam-
tali við Morgunblaðið.
Baldur Sigurðsson leikur sinn 40. Evrópu-
leik þegar Stjarnan mætir Espanyol í Barce-
lona Markmiðið er að búa til ævintýri
Reyndur Baldur
Sigurðsson hefur
leikið 39 Evrópu-
leiki á ferlinum
og er mættur með
Stjörnunni til
Barcelona.
Augnablikin sem
gefa manni mest
Morgunblaðið/Valli
Hlynur Bæringsson, landsliðsfyr-
irliði í körfuknattleik framlengir
feril sinn með íslenska landsliðinu
um a.m.k. fjóra leiki í viðbót. Hlyn-
ur lagði landsliðsskóna á hilluna
síðasta vetur en hefur nú svarað
beiðni Craig Pedersen landsliðs-
þjálfara og KKÍ um að taka þátt í
forkeppni EM í ágústmánuði.
Ísland leikur þá í riðli með Sviss
og Portúgal, heima og heiman, en
sigurlið riðilsins kemst í und-
ankeppni EM og verður þar í riðli
með Finnlandi, Georgíu og Serbíu.
Hlynur hefur leikið 125 lands-
leiki og er langreyndastur í þeim
fimmtán manna hópi sem valinn
hefur verið fyrir landsleikina fjóra.
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður
Unics Kazan í Rússlandi, verður
ekki með. Hann er meiddur og auk
þess með ákvæði í samningi sínum
sem gera honum ekki kleift að spila
þessa leiki.
Kristófer Acox og Kári Jónsson
verða ekki með vegna meiðsla og
Sigurður Gunnar Þorsteinsson gaf
ekki kost á sér vegna æfinga með
nýju liði í Frakklandi.
Frank Aron Booker, leikmaður
Éverux í Frakklandi, er nýliði í
hópnum en hinir þrettán eru eft-
irtaldir: Collin Pryor (Stjörnunni),
Gunnar Ólafsson (Keflavík), Elvar
Már Friðriksson (Borås), Hörður
Axel Vilhjálmsson (Keflavík), Jón
Axel Guðmundsson (Davidson),
Kristinn Pálsson (Njarðvík), Hjálm-
ar Stefánsson (Haukum), Martin
Hermannsson (Alba Berlín), Ólafur
Ólafsson (Grindavík), Pavel Ermol-
inskij (KR), Ragnar Nathanaelsson
(Val), Tryggvi Snær Hlinason
(Zaragoza) og Ægir Þór Stein-
arsson (Regatas). vs@mbl.is
Hlynur með á ný vegna forfalla
Morgunblaðið/Hari
Reynsla Hlynur Bæringsson hefur
spilað 125 landsleiki.
Eftir frekar slæm úrslit hjá
KR, Val og Breiðabliki í Evr-
ópumótum karla í fótbolta hefur
umræðan verið á þá leið að
frammistaða þeirra sé áfall fyrir
íslensku deildina.
Draumar um að komast í
riðlakeppni Evrópumótanna séu
ekki raunhæfir og deildin hér
heima sé ekki eins sterk og
menn héldu.
Þetta eru að mínu mati
óþarfar áhyggjur. Við höfum upp-
lifað alls konar sveiflur áratugum
saman þegar kemur að úrslitum í
Evrópuleikjum félagsliðanna.
Haustið 1985 var allt í hæstu
hæðum eftir að Fram vann Rapid
Vín og Valur sigraði Nantes.
Þetta voru fyrstu sigurleikir ís-
lenskra liða gegn erlendum at-
vinnuliðum í Evrópukeppni og út-
litið var bjart.
Ári síðar ákvað enskur þjálfari
Skagamanna að spila djarfan
sóknarleik gegn Sporting Lissa-
bon á Laugardalsvellinum og ÍA
tapaði leiknum 9:0.
Tveimur árum síðar unnu
Valsmenn lærisveina Arsenes
Wengers hjá Mónakó á þjóð-
arleikvanginum.
Svona hefur þetta gengið á
víxl og mun gera áfram. Gengi í
Evrópumótunum ræðst mikið af
heppni í drættinum. Íslenska
deildin verður ekki vonlaus á
einni kvöldstund.
Maribor og Molde voru of
sterkir mótherjar fyrir KR þótt
vissulega hafi skellur Vestur-
bæinga verið sjokkerandi.
Ludogorets og Espanyol eru
væntanlega of stórir bitar fyrir
Val og Stjörnuna í kvöld, enda
þótt fótboltinn sé ávallt óút-
reiknanlegur. Megi báðum liðum
vegna sem allra best.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sakho kærir
Alþjóðalyfja-
eftirlitið