Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 mus, Kiljan, að ógleymdum Steini Steinar. Hann vildi að ég for- framaðist og skildi flókin rök til- verunnar. Sumum í fjölskyldunni hugnaðist þetta ekki og sögðu að ég ætti ekki að láta „kommúnist- ann“ Gunnar hafa áhrif á mig. Þetta var erfitt að meðtaka. Þessi hlýi samkenndarmaður, trausta og einstaka ljúfmenni sem vildi öllum vel, jafnt innan sem utan fjölskyldu átti ekki skilið svona gagnrýni. Faðir minn sem var ná- inn og andlega skyldur Gunnari sagði mér að hlusta á Gunnar. Það var mjög ánægjulegt þeg- ar Ásgerður og Gunnar komu í ársdvöl til Kaupmannahafnar 1971-1972. Þau urðu strax hluti af svokölluðum Kaupmannahafnar- hóp sem var og er rótgróinn klíkuhópur, ekki sjálfgefið að koma inn í hann. En húmoristinn, félagsveran og röksnillingurinn Gunnar átti einfaldlega heima þarna. Gunnar var heltekinn af fjall- göngum og útivist eins og hann orðaði það sjálfur. Ég gleymi því aldrei þegar þið Egill genguð frá Skjálfanda yfir í Flateyjardal. Það var talsverð svaðilför og létt- ir þegar þið skiluðuð ykkur til baka. Það er unun að því að lesa hvað Gunnar upplifði mikið af náttúru og ferðalögum í fyrr- nefndri bók. Maður sem lifði slíku lífi hefur átt ríkt líf. Nú sameinast Gunnar þessari náttúru og það að eilífu. Gunnars verður sárt saknað. Hann var góður, fróður, ráðagóð- ur og einstaklega skemmtilegur frændi. Takk fyrir allt, Gunnar. Takk fyrir að vera lögfræðilegur ráðgjafi Sálfræðistöðvarinnar í öll þessi ár. Minningar tengdar þér munu ætíð verða sterkar innra með mér. Ásgerði, börnunum og allri fjölskyldunni sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Guðfinna Eydal. Vinur minn Gunnar Eydal er allur. Andlát hans bar óvænt að fyrir okkur öll, en baráttan við ill- vígan sjúkdóm var bæði stutt og ströng. Lífið er undursamleg gjöf en það er oft stutt á milli feigs og ófeigs. Ég hafði spurnir af því að þeg- ar Gunnar stundaði laganám við Háskóla Íslands hefði hann tekið virkan þátt í þjóðmálaumræð- unni, sérstaklega um félagsleg réttindi verkafólks. Nafn Gunn- ars var þá oft nefnt í sömu andrá og nafn Arnmundar heitins Back- manns, sem var samtíma Gunnari í menntaskóla og í laganáminu. Það þótti mér ekki leiðinlegt. Það var hins vegar vorið 1973 þegar ég var ráðinn fram- kvæmdastjóri SFR, Starfs- mannafélags ríkisstofnana, sem leiðir okkar Gunnars lágu fyrst saman en hann var þá lögfræð- ingur BSRB. Félögin innan BSRB höfðu þá nýlega fengið samningsréttinn og því var mikið um að vera á skrifstofum SFR og BSRB sem voru í mjög nánu sam- býli. Gunnar var þar réttur mað- ur á réttum stað. Hann hafði auk laganámsins stundað framhalds- nám í vinnurétti við Kaupmanna- hafnarháskólann og var því öllum hnútum kunnugur í þeim miklu sviptingum sem þá áttu sér stað á vinnumarkaði opinberra starfs- manna. Á þessum árum bundumst við Gunnar vináttuböndum sem aldr- ei rofnuðu heldur styrktust frek- ar hin seinni ár. Við Gunnar vor- um jafnaldrar og bjuggum báðir í Hraunbænum í Reykjavík, þar sem stutt var á milli heimila okk- ar. Þetta voru óvenjulegir tímar enda var SFR langstærsta aðild- arfélagið innan BSRB. Það þótti ekki tiltökumál þó unnið væri langt fram eftir á kvöldin og um helgar. Skemmtilegt var þetta allt saman og spennandi fyrir unga menn. Við Gunnar upplifð- um okkur sem þátttakendur í mikilvægum breytingum á vinnu- markaði opinberra starfsmanna. Þegar Gunnar hætti sem lög- fræðingur BSRB árið 1976 tók hann við framkvæmdastjóra- stöðu hjá SÍB, Sambandi ís- lenskra bankamanna. SÍB var þá að breytast í verkalýðsfélag með fullan samnings- og verkfallsrétt og kom þá reynsla og þekking Gunnars sér vel á þessum nýja vinnustað. Starfsvettvangur Gunnars var þó fyrst og fremst hjá Reykjavík- urborg en hann var ráðinn í starf skrifstofustjóra borgarstjórnar árið 1979. Sjálfstæðisflokkurinn hafði nokkuð óvænt misst meiri- hlutann í kosningunum 1978 eftir 50 ára valdasetu. Ráðning Gunn- ars var því afar þýðingarmikil fyrir hinn nýja meirihluta. Aldrei áður hafði vinstrimaður gegnt svona veigamiklu trúnaðarstarfi hjá Reykjavíkurborg. Leitað var víða álits og gaf ég mínum gamla vini bestu meðmæli. Sigurjón heitinn Pétursson var oddviti meirihlutans og voru fjallaferðir og náttúruvernd þeirra sérstaka áhugamál. Hjónin Gunnar og Ás- gerður, Sigurjón og Ragna bund- ust því traustum vináttuböndum. Gunnar starfaði síðan í næstum þrjátíu ár hjá Reykjavíkurborg og vann sér alls staðar álit og traust sem góður embættismað- ur. En nú er komið að leiðarlok- um. Það er birta yfir minningu Gunnars Eydal. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt þess kost að kynnast honum á lífsleiðinni. Við Kristín sendum Ásgerði, börnum þeirra hjóna og fjölskyld- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hrafn Magnússon. Það er með hlýhug að ég rita þessi minningarorð um vin minn Gunnar Eydal. Leiðir okkar lágu saman árið 1985 þegar ég starfaði sem forstöðumaður í Tónabæ. Þá kom símtal til mín frá skrifstofu borgarstjóra og ég var boðaður á fund hjá Gunnari Eydal skrif- stofustjóra. Erindi hans var að biðja mig að aðstoða í nokkrum þáttum varðandi undirbúning 100 ára afmælishátíðar Reykjavíkur- borgar. Frá þeim degi hófst góð og traust vinátta okkar sem stóð allt til síðasta dags. Gunnar var snjall og úrræða- góður embættismaður. Borgar- fulltrúar, hvar sem þeir stóðu í pólitík, gátu treyst honum. Vand- virkni og dugnaður í vinnu voru hans aðalsmerki. Fundarritarinn Gunnar skrifaði líka skýran og góðan texta, um það vitna fleiri hundruð fundargerðir ráða og nefnda. Gunnar var góður vinur vina sinna. Því fékk ég að kynnast í áratuga samstarfi við stjórn Reykjavíkurborgar. Það var gott að leita til hans með erfið og flók- in úrlausnarefni. Hann var ávallt úrræðagóður, fastur fyrir og því var einstaklega gott að eiga hann að vini ef erfiðleikar steðjuðu að. Gunnar var mikill djassáhuga- maður og gátum við félagarnir lagt okkar af mörkum við að stofna til Jazzhátíðar Reykjavík- ur ásamt RÚV og FÍH í upphafi tíunda áratugarins. Í gegnum hússtjórn Ráðhússins gátum við svo líka lagt Sæbirni Jónssyni og Stórsveit Reykjavíkur lið með tónleikahaldi í Tjarnarsal ráð- hússins. Fyrir þetta á Gunnar miklar þakkir skildar. Engan mann þekki ég sem er fróðari um Ísland og íslenska staðhætti en Gunnar. Hann kunni skil á og mundi nöfn á hverri hæð og hól eða fjalli hvar sem er á landinu. Þær voru ófáar ferðalýs- ingarnar sem ég fékk að njóta, og sumar alveg lygilegar. Meira að segja jólakortin, gjarnan með mynd frá óþekktum stað og stutt lýsing, voru einstök því Gunnar var sögumaður góður og húmor- isti fram í fingurgóma. En tíminn flýgur. Um síðustu mánaðamót rædd- um við lengi saman í síma. Gunn- ar sagði mér að hann væri með slæmsku í bakinu og ekki góður til gangs, en hann væri á leiðinni til læknis. Hann ætlaði að finna til fyrir mig ljóð eftir Böðvar Guð- mundsson og við ákváðum að hitt- ast eftir tvær vikur. Þrátt fyrir nokkuð stíf funda- höld í 34 ár verðum við Gunnar minn að fresta þeim fundi um óákveðinn tíma. Kæra Ásgerður. Við Kristín sendum þér og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Jónsson. Gunnar Eydal hitti ég fyrst haustið 1959 þegar við hófum nám í Menntaskólanum á Akureyri. Okkur varð fljótt vel til vina og átti sameiginlegur áhugi okkar á tónlist, sérstaklega djasstónlist, trúlega stærstan þátt í því. Gunn- ar bauð mér oft heim til sín til að hlusta á djass en hann hafði að- gang að ótrúlega stóru plötusafni bræðra sinna, þeirra Finns og Ingimars Eydal, landsfrægir tón- listarmenn báðir tveir. Lágum við gjarnan á gólfinu í herbergi Finns og hlustuðum á þekktustu meist- ara djassins. Eftir stúdentspróf hófum við báðir nám í lögfræði við Háskóla Íslands og útskrifuðumst saman 1971. Eftir það störfuðum við saman hjá Reykjavíkurborg í rúm 25 ár en Gunnar starfaði þar í um 30 ár. Við höfum því verið samferða í meira en hálfa öld þegar allt er talið og eftir að við létum af störf- um höfum við hist reglulega og rifjað upp ýmislegt frá fyrri árum eða rætt það sem var efst á baugi hverju sinni. Gunnar var fræðilega sinnaður og góður lögfræðingur og hafði hann réttindi til málflutnings fyrir öllum dómstigum. Hann aflaði sér viðbótarþekkingar í faginu við Kaupmannahafnarháskóla. Vinnuréttur var hans áhugasvið og vann hann m.a. sem lögfræð- ingur BSRB um fjögurra ára skeið og síðan sem framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra banka- manna í um þrjú ár áður en hann réð sig til Reykjavíkurborgar sem skrifstofustjóri borgarstjórnar árið 1979. Gunnar var meðhöfund- ur að ritinu Vinnuréttur, útg. 1978 og aftur 1986, og svo ritaði hann Hagnýta lögfræði, útg. 1984. Eftir að Gunnar lét af störfum ritaði hann bókina Gamlar glefsur og nýjar, útg. 2016. Vel skrifuð bók og eru í henni glefsur úr lífi Gunn- ars eins og hann segir sjálfur. Gunnar var mikill vinur vina sinna og þótt stjórnmálaskoðanir okkar hafi ekki alltaf farið saman höfðu þær aldrei áhrif á okkar góðu vináttu. Gunnar hafði mikla og góða kímnigáfu sem hann setti að jafnaði fram af nærgætni, sér- staklega ef hún gat snert aðra en hann sjálfan. Kæri vinur, ég kveð þig að sinni og þakka þér vináttu og langa samferð. Ásgerði, Rögnu Björk, Hjördísi og Gunnari Páli sem og barnabörnum og barnabarna- börnum sendi ég djúpar samúðar- kveðjur og bið ykkur guðs bless- unar. Jón G. Kristjánsson. Fallinn er frá góður vinur og samstarfsfélagi um áratugaskeið. Við Gunnar hittumst fyrst árið 1982 þegar ég hóf störf í borgar- stjórn. Þá hafði hann starfað sem skrifstofustjóri borgarstjórnar frá 1979 og gegndi því starfi allt fram til 2009 auk þess sem hann var borgarlögmaður um tíma. Samskipti okkar voru öll afar traust og ánægjuleg, einkum á sviði skipulagsmála og í hags- munagæslu fyrir sveitarfélögin í landinu á vettvangi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Fáir voru Gunnari fremri í al- mennri þekkingu á sveitarstjórn- armálum og var gott að leita til hans vegna úrlausna flókinna mála og þiggja ráð hans. Gunnar var mjög hjálpsamur við borgar- fulltrúa sem leituðu til hans varð- andi margvísleg álitaefni sem upp komu í starfi þeirra. Í þeim efnum var hann ávallt úrræðagóður, enda fáir sem gerðu sér betur grein fyrir mikilvægi þess að borgarfulltrúar séu vel upplýstir um lög og reglur sem snúa að starfi sveitarstjórnarmannsins og ekki síður starfsmenn sveitarfé- laga í mikilvægum stjórnunar- störfum. Við Gunnar áttum margar stundir saman utan hefðbundins vettvangs sveitarstjórnarmál- anna, m.a. á ráðstefnum og ferð- um erlendis, einkum til Norður- landa þar sem sveitarstjórnarmál voru til umræðu. Var augljóst að hann naut mikillar virðingar á þeim vettvangi fyrir yfirgrips- mikla þekkingu sína á sveitar- stjórnarmálum almennt. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir samfylgdina og vináttuna. Ég þakka honum samstarfið í áratugi og allt það mikla starf sem hann vann í þágu málefna Reykjavíkurborgar. Við Guðrún sendum Ásgerði og fjöl- skyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Skammt er stórra högga á milli. Tveir samstúdentar okkar úr stúdentaárgangi frá MA64 verða bornir til grafar í dag á sama tíma dagsins, þau Nanna Jónsdóttir og Gunnar Eydal. Við Gunnar áttum afar ánægjulegt félagsmálasamstarf í menntaskólanum. Þegar Þórar- inn Björnsson skólameistari kvaddi árganginn á sal talaði hann um takmarkaðan námsár- gangur en hann lofaði hæfileika á sviði stjórnunar og fjáröflunar. Við Gunnar tókum virkan þátt í félagslífinu. Ég vil halda því fram að þátttakan í félagslífinu hafi ekki síður orðið okkur veganesti í lífinu en bóklesturinn. Margs er að minnast úr fé- lagslífinu í MA, en mig langar til þess að minnast á einn þátt sem leiddi okkur Gunnar saman til ánægjulegs samstarfs. Árið 1960 störfuðu í heimavist MA tvær út- varpsstöðvar með óreglulegum útsendingum; Útvarp Rangalar og Útvarp Andeby. Einar Krist- insson hafði sett saman eins lampa útvarpsstöð. Við Gunnar ákváðum að taka við stöðinni og nefna hana Útvarp Orion. Stöðin hafði útvarpsráð og þulu eins og alvöruútvarpsstöð. Samkvæmt frásögn í skólablaðinu Munin hóf- ust útsendingarnar hinn 19. nóv- ember 1960. Útvörpuðum við hálfsmánaðarlega á sunnudögum milli klukkan 18 og 19. Laugar- dagarnir voru vinnudagar til að útbúa fjölbreytt efnið og fór sá undirbúningur fram á heimili Gunnars. Gunnar átti gott plötu- safn og öflugt segulband sem við notuðum til upptöku og afspilun- ar. Einnig voru beinar útsending- ar. Mæltust útsendingarnar vel fyrir hjá heimavistarfólki. Hinn 12. mars 1961 var skól- anum lokað í viku vegna inflúensu en um 40% nemenda voru rúm- liggjandi. Útvarp Oríon sendi út óskalög daglega í nokkra klukku- tíma þá viku. Plötum var safnað af vistunum og frá nemendum ut- an heimavistar. Stöðin var sett upp í herbergi okkar félaganna, mín og Jóhanns Heiðars Jó- hannssonar. Stöðugt bárust okk- ur minnismiðar með beiðnum um óskalög og kveðjur. Hlustað var á útvarpsstöðina í bænum og þaðan bárust kveðjur. Ég stóð vaktina til að byrja með, en þegar ég fór veikur í rúmið tók Jóhann Heiðar við og þegar hann varð veikur tók Vilhjálmur Vilhjálmsson bekkjar- félagi okkar við keflinu. Einn dag kom skólameistari svo inn til okk- ar og sagði að við værum neydd til þess að hætta útsendingu. Yf- irmenn Ríkisútvarpsins höfðu hringt og sagt að ólögleg útvarps- stöð í Reykjavík hefði verið gerð upptæk og þeir gætu ekki lengur litið fram hjá heimavistarútvarpi í MA. Útsendingum var hætt og lauk þar með brautryðjandastarfi okkar Gunnars í rekstri frjálsra útvarpsstöðva. Útvarp Oríon mun hafa átt endurkomu síðar. Einstaklega ánægjulegt var að starfa með Gunnari að félagsmál- um í MA. Hann var hugmynda- ríkur, áhugasamur og fylginn sér. Fyrir okkur aðkomufólkið í heimavistinni var mikils virði að eiga aðgang að heimilum Akur- eyringa. Ófáar „skúffukökur“ með kaldri mjólk innbyrtum við á heimilum þeirra vina minna og frænda, Gunnars Kárasonar og Gunnars Eydal. Blessuð sé minn- ing góðs drengs, Gunnars Eydal. Fyrir hönd samstúdenta frá MA vorið 1964 sendi ég aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Þráinn Þorvaldsson. Fallinn er frá æskuvinur minn Gunnar B. Eydal. Við Gunnar vorum jafnaldrar og ólumst upp á Akureyri. Við vorum þrír strák- arnir sem fylgdust að gegnum líf- ið, Gunnar, Martin Meyer og ég. Nú er ég einn eftir og sakna vina í stað. Í uppvexti okkar á Akureyri var margt brallað. Gunnar kenndi okkur að hlusta á djass, sem var hans uppáhaldstónlist alla ævi. Hann átti einnig þessa frægu bræður, Ingimar og Finn, og ekki má gleyma stórstjörn- unni Helenu Eyjólfs. Það gat komið sér vel að vísa til þessara tengsla þegar erfitt var að kom- ast inn í Sjallann. Við Gunnar vorum andstæðir pólar í stjórnmálum, hann til vinstri en ég hægrimaður. Það var stundum rifist harkalega þegar við vorum yngri, en við höfðum vit á að jafna þann ágreining, eftir því sem leið á æv- ina og við þroskuðumst. Við Gunnar unnum saman í áratugi að framkvæmd allra op- inberra kosninga. Hann var innsti koppur í búri í öllu sem kosningar varðaði í Reykjavík, hann var alfræðiorðabók um þau mál í höfuðstaðnum og alltaf til hans leitað um lausnir á álitamál- um. Þau ár sem ég var formaður yfirkjörstjórnar í Kópavogi leit- aði ég til hans seint og snemma um leiðbeiningar og úrlausnir. Seinna færðumst við í aðra tröppu í kerfinu, sem verktakar fyrir bæði innanríkis- og dóms- málaráðuneyti. Gunnar var einstaklega fær starfsmaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Ég vann lengi hjá gamla Landsbankanum, hann var þá framkvæmdastjóri hjá bankamönnum og vann það starf af miklum trúnaði. Starf hans fyrir Reykjavíkurborg reyndi á alla hans frábæru sam- starfshæfileika og þekkingu. Skýrt dæmi um þetta var að þeg- ar Sjálfstæðisflokkurinn náði borginni var hann einn af fáum embættismönnum fyrri meiri- hluta sem héldu stöðu sinni. Næstu ár ríkti íhaldið og alltaf hélt Gunnar vinnunni! Við Gunnar unnum báðir í mið- borginni. Við hittumst oft í há- deginu og hann kenndi mér að borða gúllassúpu, sem hann hafði miklar mætur á. Minningarnar flæða fram. Gunnar Eydal var góður og traustur vinur og allt var honum vel segjandi, hann var einnig húmoristi af guðs náð. Hans verður sárt saknað og ég sendi innilegar samúðarkveðjur til Ásgerðar, barna hans, tengda- og barnabarna. Jón Atli Kristjánsson. Við kynntumst snemma á 10. áratugnum í haust- og vetrar- ferðum á jeppum. Það voru tveir sjálfkjörnir leiðtogar, Sigurjón Pétursson sem lést í bílsysi 2002 og Gunnar Eydal. Þeir voru gamlir félagar og vinir, um margt ólíkir en áttu sameiginlegan áhuga á ferðalögum innan lands og utan. Við bundumst í óform- legum félagsskap jeppafjöl- skyldufólks sem við köllum Út- laga og Gunnar var að honum forspurðum gerður að forseta. Eins og góðum forseta sæmir beitti hann aldrei neinu valdi og gerði engar kröfur aðrar en að fá að vita hvað þegnarnir höfðu ákveðið, en hann kom með góðar ábendingar og tillögur. Það var gott að hafa Gunnar og hans fjölskyldu með í ferðunum. Gunnar var laus við jeppadellu, jeppi var tæki til þess að komast á áfangastað og þegar frá leið urðu eftirsóttir áfangastaðir æ torsótt- ari, Vatnajökull, Drangajökull og Gláma, og urðu bílarnir öflugri eftir því. Gunnar var kannski ekki lagnasti bílstjórinn, en honum var í mun að komast á áfangastað og hafði hann gaman af því að takast á við óblíð nattúruöflin. Þegar komið var í skála var gott að vera með Gunnari, Ás- gerði og þeirra fjölskyldu. Þar var hvorki hávaði né ofstopi, það var frekar að nálægð við þau gerði okkur öll stór og rólegri. Bros Gunnars var ljúft og skein af hon- um væntumþykja til fjölskyldu sinnar og samferðafólks. Um leið og við og fjölskyldur okkar þökkum Gunnari samfylgd- ina vottum við fjölskyldu hans samúð, missir þeirra er mikill. Jón Rúnar Backman, Þorsteinn Ólafsson. Árið 1971 birtist ungur lög- fræðingur á Kannibalnum, mat- húsi Kaupmannahafnarháskóla. Þar sátu nokkrir íslenskir náms- menn fyrir og höfðu setið um ára- bil en voru við námslok. Pilturinn var kominn til framhaldsnáms í löggjöf vinnumarkaðarins og til að kynna sér framkvæmd þeirra, m.a. fékk hann tækifæri til þess að sitja með dómurum fé- lagsdóms. Hann féll strax inn í hóp þeirra sem fyrir sátu og fjöl- skyldan öll. Gunnar, Ásgerður og dæturnar tvær, Ragna og Hjör- dís, urðu hluti af fjölskylduhópn- um, sem hittist reglulega, ekki að- eins á samkomum námsmanna heldur einnig í heimahúsum. Son- urinn, Gunnar Páll, bættist ekki við í fjölskylduna fyrr en heim til Íslands var komið. Þegar heim var komið hélt hóp- urinn saman og gaf sér heitið danski hópurinn. Samtals taldi hópurinn 17 manns. Fyrstu árin eftir heimkomuna hittist hann um hver áramót en úr því dró þegar börnin stækkuðu. Áfram var hald- ið með reglubundin þorrablót, sem framan af voru haldin í heimahúsum en þegar frá leið á gistihúsum á suðvesturhorninu og Akureyri. Þá var farið í sumar- ferðir og tjaldað á góðum stöðum. Við tókum jólahlaðborðahefðinni opnum örmum og gerðum að föst- um lið í dagskránni, stundum úti á landi. Þá fórum við í borgarferðir til útlanda. Eftir að flestir höfðu látið af störfum og tíminn varð rýmri hittumst við alltaf mánað- arlega á veitingastöðum og end- uðum þennan vetur með hádeg- isverði í byrjun júní. Á þeim tíma vissi enginn hvað framundan var. Rúmum mánuði síðar er Gunnar allur. Gunnar og fjölskylda hans hafa þannig verið hluti af lífi okkar allra í nærri fimm áratugi. Við höfum setið saman löngum stund- um og rætt málin. Fyrstu árin varð það pólitíkin þar sem oft var hart deilt. Þótt öll teldum við okk- ur rótæk var Gunnar trúlega sá rótækasti í hópnum. Þá bættust við sögur af börnunum og því sem helst bar við í lífinu. Gunnar var sæknari á fjöll en við hin og jeppa- ferðir urðu stærri þáttur í lífi fjöl- skyldunnar en okkar hinna. Hann varð snemma mikill náttúru- verndarsinni og þótti honum nokkuð á skorta að sumir í hópn- um hefðu nægilegan skilning á því að fara yrði með gát í virkjunar- málum. Gunnar nýtti sérhæfingu sína í vinnumarkaðsrétti og réði sig við heimkomuna sem lögfræðingur BSRB og síðan framkvæmda- stjóri SÍB. Á þeim tíma skrifaði hann bók um vinnurétt sem varð grundvallarrit. Í starfi venti hann sínu kvæði í kross þegar hann réðist til borg- arinnar sem skrifstofustjóri borg- arstjórnar. Það var á tíma fyrsta SJÁ SÍÐU 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.