Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 32
Hamfarir Fjögurra metra djúpar holur mynduðust þegar vínkjallararnir
hjá Pol Roger gáfu sig í mikilli vætutíð 23. febrúar aldamótaárið 1900.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Vinnuvélarnar voru ræstar á landar-
eign Pol Roger vínhússins í árs-
byrjun 2018. Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við nýja átöppunarverk-
smiðju fyrirtækisins kölluðu á
nokkuð jarðrask. Og þar sem jarð-
vinnan var komin af stað uppgötv-
uðu verktakar á staðnum einskonar
holrúm í jarðveginum. Og í jarðveg-
inum sem upp kom með gröfuskófl-
unum sem unnu sitt verk nokkuð
fumlaust fylgdi brotið flöskugler. Og
það var gamalt.
Framkvæmdirnar áttu sér stað á
svæði þar sem hamfarir höfðu orðið
einn votviðrisdag í febrúar, alda-
mótaárið 1900. Þeir atburðir eru
varðveittir í samtímalýsingu blaðs-
ins Le Vigneron Champenois:
„Um klukkan tvö um nóttina
vaknaði Maurice Roger og umsjón-
armaður vínkjallaranna, M. Leclerc,
við lágt hljóð sem svipaði mjög til
þrumu. Hljóðið olli þeim þó engum
áhyggjum. Tveimur tímum síðar
hrukku þeir upp við mun meiri há-
vaða. Þeir hröðuðu sér á fætur til að
kanna hvað hafði gerst og þeim til
mikillar undrunar sáu þeir hvaða
hörmungar höfðu valdið hljóðinu.
Hluti hinna gríðarmiklu kjallara
hafði fallið saman, með þeim afleið-
ingum að tengdar byggingar höfðu
hrunið og gjöreyðilagt fullar vín-
tunnur og vínflöskur og búnað ýmiss
konar sem þar var geymdur.“
Gríðarlegt tjón
Fljótlega varð ljóst að tjónið af
völdum hrunsins var gríðarlegt.
Ekki aðeins tengt þeim mann-
virkjum sem eyddust heldur ekki
síður öll sú framleiðsla sem hvarf
undir fargið. Þannig var talið að 500
víntunnur og 1,5 milljónir kampa-
vínsflaskna hefðu horfið undir rústir
húsanna.
Enn í dag er nokkuð örugg vissa
fyrir því að framleiðslan sem þarna
hvarf í jörðu hafi í raun og sann eyði-
lagst. Og glerbrotin sem komu upp
með skóflum beltagröfunnar í fyrra
voru vitnisburður þar um.
En eftir því sem gröfturinn hélt
áfram gerðist það sem enginn hafði
séð fyrir. Í ljós kom óbrotin flaska
og hún hlaut að vera að minnsta
kosti 118 ára gömul. Dagarnir sem á
eftir komu urðu nokkuð spennu-
þrungnari en verktakar og eigendur
vínhússins höfðu gert ráð fyrir. Í ljós
komu 26 heilar flöskur og þótt enn
eigi eftir að „korka“ þær (ná ger-
tappa úr hálsi þeirra og koma kork-
tappa fyrir í flöskuopinu), er ljóst að
vínið er drykkjarhæft og um leið ein-
stakt sökum aldurs síns.
Ljóst er að forsvarsmenn fyrir-
tækisins hafa ekki getað stillt sig al-
veg um að kanna innihald flaskn-
anna. Þannig sagði Dominique
Demarville, kjallarameistari Veuve
Clicquot vínshússins, sem fékk að
dreypa á víninu, að sætleiki þess og
ferskleiki hefði komið honum
skemmtilega á óvart. Þá ilmaði vínið
af dýrum, sveppum og osti við fyrstu
kynni en eftir nokkra snertingu við
súrefni hefði vínið tekið sig vel og
blómailmur mikill stigið af því.
Getur varðveist ótrúlega vel
Fleiri dæmi eru til um að fornar
flöskur af þessu tagi finnist og séu í
drykkjarhæfu ástandi. Það átti t.d.
við um 145 flöskur sem fundust á
hafsbotni úti fyrir Álandseyjum árið
2010. Sumar þeirra voru nærri 200
ára gamlar en sökum þrýstings og
kulda höfðu þær, ásamt innihaldi,
varðveist ótrúlega vel.
Hversu gamlar eru þær?
Flöskurnar sem gröfumennirnir
höfðu upp úr krafsinu eru eðli máls
samkvæmt ómerktar enda voru þær
aðeins komnar hálfa leið í fram-
leiðsluferlinu þegar allt keyrði um
koll aldamótaárið 1900. Sérfræð-
ingar vínhússins segja hins vegar að
þær geti verið afsprengi framleiðslu
fyrirtækisins frá 1887 og allt til 1898.
Úr því verður aldrei skorið og dreg-
ur í raun ekki úr sérstöðu flaskanna.
Enn skal leitað
Örðugt reyndist að halda leit að
fleiri flöskum áfram á síðasta ári og
töldu sérfræðingar ekki hættulaust
að senda menn dýpra ofan í jörðina.
Þannig var síðasta ár nýtt til þess að
hafa uppi á sérfræðingum sem leyst
gátu öryggisvandann og þannig
tryggt áframhaldandi leit að hinum
verðmætu veigum. Laurent
d’Harcourt, stjórnarformaður Pol
Roger, sagði í samtali við fréttaveit-
una The Drinks Business að líkur
væru á að fleiri heilar flöskur myndu
koma í ljós ef leitinni yrði haldið
áfram. Og þannig hefur fyrirtækið á
síðustu mánuðum unnið að því að
tryggja betur veggi bygginga á
svæðinu, einkum vínkjallaranna, og í
kjölfarið er stefnt að því að beina
fjarstýrðum róbótum inn í þau rými
sem í ljós koma og láta þá „grafast
fyrir um“ hvort vonir forsvarsmanna
vínhússins séu á rökum reistar eða
ekki.
Heimta kampavínsfjársjóð úr jörðu
Kampavínsflöskur frá Pol Roger lágu týndar í jörðu í 118 ár Enn kunna fleiri heilar flöskur að
finnast Ein og hálf milljón flaskna og 500 víntunnur hurfu ofan í jörðina einn febrúardag árið 1900
Ljósmynd/Pol Roger
Endurheimt Forsvarsmenn Pol Roger vínhússins voru að vonum glaðir þegar hinar glötuðu flöskur heimtust úr jörðu.
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
LOS ALCAZARES – FALLEG EINBÝLISHÚS
Í VINSÆLUM SPÆNSKUM STRANDBÆ
• Frábær staðsetning
• Gott verð
• 5 mín göngutúr á ströndina
• Örstutt göngufæri í verslanir og
veitingastaði
• Góðir golfvellir
• 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi
• Sér garður með einkasundlaug
• Stórar einka þaksvalir
• Stæði í bílakjallara
Verð frá 34.000.000 Ikr.
(250.000 evrur, gengi 1evra/136Ikr.)
Pol Roger er meðal þekktustu
kampavínsframleiðenda heims og
vínið nýtur gríðarlegra vinsælda í
Bretlandi. Því ræður meðal annars
sú staðreynd að vínið var í miklu
uppáhaldi hjá Winston Churchill.
Hann pantaði fyrstu flöskuna frá
húsinu árið 1908 og segir sagan
að það hafi reynst ást við fyrstu
sýn. Þegar hann lést í ársbyrjun
1965 tóku forsvarsmenn vínhúss-
ins, sem voru persónulegir vinir
forsætisráðherrans fyrrverandi,
ákvörðun um að allir kassar sem
geymdu árgangsframleiðslu þeirra
og fluttir voru til Bretlands það ár
skyldu sveipaðir sorgarböndum.
Í dag framleiðir fyrirtækið um
1,6 milljónir flaskna á ári hverju
og á hverjum tíma eru um 9 millj-
ónir flaskna í geymslum fyrir-
tækisins. Af heildarsölu fyrir-
tækisins fara um 300 þúsund
flöskur til Bretlands ár hvert en
aðrir sterkir markaðir eru m.a.
ríki Norðurlanda. Enn hefur ekki
verið gefið upp hvað verður um
hinar endurheimtu flöskur en
ósennilegt má telja að verðið á
þeim verði viðráðanlegt venjulegu
fólki. Flestir munu aðeins láta sig
dreyma um hvernig ríflega aldar
gamalt kampavín smakkast í raun
og veru.
Árgangar Fyrsta flaskan sem Churchill drakk úr var frá 1895. Slíkar flösk-
ur hafa mögulega farið forgörðum í hamförunum í febrúar árið 1900.
Með níu milljón flösk-
ur í kjöllurum sínum
Ljósmynd/Pol Roger