Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 51

Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 51 Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir stofnun eða samtökum til þess að hafa umsjón með starfsemi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðs- starfs á grundvelli nýrra laga nr. 45/2019 um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Um er að ræða ígildi eins stöðugildis til fimm ára. Stofnun eða samtök sem veljast til þess að hafa umsjón með starfseminni mun ráða starfsmann með fagþekkingu í starf samskiptaráðgjafa. Markmið með starfseminni er að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Hlutverk samskiptaráðgjafa samkvæmt 5. gr. laganna er eftirfarandi: 1. Koma með virkum hætti á framfæri upplýsingum til þeirra sem taka þátt í starfsemi þeirra félaga og samtaka sem falla undir lög þessi, um atvik og misgerðir í þeim tilgangi að auka þekkingu og stuðla að réttum viðbrögðum við þeim. 2. Leiðbeina þeim einstaklingum sem til hans leita vegna atvika eða misgerða sem orðið hafa í skipulögðu starfi félaga og samtaka sem falla undir lög þessi eða í tengslum við það um þau úrræði sem standa til boða, hvernig kvörtun er komið á framfæri við rétt yfirvöld og eftir atvikum um þá þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á. 3. Aðstoða samtök og félög sem falla undir lög þessi við að gera viðbragðsáætlanir vegna atvika og misgerða sem verða í starfi þeirra og stuðla að samræmingu á landsvísu, eftir atvikum í samráði við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, æskulýðssamtök og önnur samtök. 4. Veita ráðgjöf til þeirra sem taka þátt í starfsemi félaga og samtaka sem falla undir lög þessi um fyrirbyggjandi aðgerðir. 5. Fylgjast með rannsóknum og þróun á verksviði samskiptaráðgjafa íþrótta- og æsku lýðsstarfs og koma upplýsingum á framfæri við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, æskulýðssamtök og önnur samtök sem falla undir lög þessi. 6. Taka saman upplýsingar um starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðs- starfs og þær tilkynningar sem honum hafa borist á liðnu almanaksári. Nánari upplýsingar veitir Óskar Þór Ármannsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, í síma 5459500. Umsóknir um umsjón með starfseminni sendist til mennta- og menningarmálaráðuneytis Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið mrn@mrn.is fyrir 1. september 2019. Stjórnarráð Íslands Mennta- og menningarmála- ráðuneyti HALLORMSSTAÐASKÓLI Starfsmaður óskast í 100% starf Tímabundin ráðning fram að áramótum með möguleika á framtíðarstarfi. Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2019 Starfsmaður þarf helst að geta hafið störf sem fyrst. Í Hallormsstaðaskóla er boðið upp á nám í sjálfbærni og sköpun á sviði matarfræði og textíls, sjá nánar um skólann á www.hskolinn.is. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun auk góðra samskiptahæfileika. Spennandi tækifæri fyrir áhugasama um aðkomu að framtíðarþróun skólans. Helstu verkefni: - Umsjón heimasíðu, samfélagsmiðla og viðburða í kynningarstarfi fyrir skólann. - Skipulag og umsjón með MasterClass námskeiðum, móttöku gestakennara, samstarfsverkefnum og tilraunaeldhúsi. - Vera nemendum innan handar og aðstoðar við skipulag námsferða eða annarra viðburða með nemendum og starfsfólki skólans. - Ýmis verkefni sem falla undir starfsemi og framtíðarþróun Hallormsstaðaskóla. Hæfni og menntun - Háskólamenntun sem nýtist í starfi, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð, góð samskiptahæfni og frumkvæði. - Góð tölvukunnátta og reynsla af vinnu við samfélagsmiðla. - Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Kunnátta í norðurlandamálum kostur. Laun greidd samkvæmt kjarasamningi AFL starfgreinafélags og ríksins. Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á netfangið bryndis@hskolinn.is Frekari upplýsingar veitir Bryndís Fiona Ford skólameistari í síma 862 2896 eða í ofangreindu netfangi. Finnur þú starf við þitt hæfi hjá Kópavogsbæ? kopavogur.is P ip a r\TB W A \ SÍA Kynntu þér fjölbreytt og spennandi störf hjá Kópavogsbæ á vefsíðu okkar, kopavogur.is. Hlökkum til að starfa með þér. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á intellecta.is  1 ATVINNA í boði hjá Kópavogsbæ Sjá nánar á kopavogur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.