Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 72

Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 útsala 70% sparaðu allt að af völdum vörum FONTANA garðstóll. Græn skel, svartir fætur. 12.900 kr. Nú 3.870 kr. BALL WALL veggljós með USB. 28.995 kr. Nú 22.995 kr. PATRAS blómapottur. 3 mismunandi litir. Ø13x16 cm. 1.695 kr. Nú 848 kr. Ø14x13 cm. 1.495 kr. Nú 748 kr. Ø14x25 cm. 2.695 kr. Nú 1.348 kr. Ø17x16,5 cm. 2.495 kr. Nú 1.248 kr. 50% 70% 75% YORKSHIRE felliborð og 2 fellistólar. 34.900 kr. Nú 14.950 kr. 20% 57% BALL loftljós. Hvítt með 7 kúplum. Ø18 cm. 79.995 kr. Nú 19.995 kr. Djasssöngkonan og tónskáldið María Magnúsdóttir, sem kemur fram undir listamannsnafninu MIMRA, kemur í dag kl. 17.15 fram á tónleikum í Listasafni Íslands en þeir eru í tónleikaröðinni Freyju- jazzi. Með henni leikur píanóleik- arinn Kjartan Valdemarsson og á efnisskrá eru ýmsir eftirlætis- djassstandardar þeirra. María Magnúsdóttir á Freyjujazz-tónleikum FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 206. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Valur og Stjarnan leika í kvöld fyrri leiki sína í 2. umferð Evrópudeild- arinnar í fótbolta og mæta afar öfl- ugum andstæðingum. Stjörnumenn eru komnir til Barcelona og mæta þar liði Espanyol og Valsmenn taka á móti búlgörsku meisturunum Lu- dogorets á Hlíðarenda. Rætt er við Baldur Sigurðsson og Eið Aron Sig- urbjörnsson um leikina. »60-61 Mæta Espanyol og Ludogorets í kvöld ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Svala Björgvinsdóttir kemur fram á Græna hattinum á Akureyri í kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 21. Hyggst Svala leiða gesti í tali og tónum gegnum tónlistarferil sinn og flytja ýmis lög sem hún hefur sungið og hljóðritað gegnum árin. Svala kemur fram með nýrri hljómsveit sinni sem er skipuð þeim Bjarka Ómarssyni, Jóni Val, Hálfdáni Árnasyni og Kristófer Nökkva Sig- urðssyni. Um þessar mundir vinnur hún að því að semja ný lög fyrir væntan- lega plötu sem Sony DK mun dreifa út um lönd. Svala Björgvins syngur og segir frá á Akureyri Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Sex slökkviliðsmenn af Norður- og Suðurlandi ætla að sleppa útihátíð- um um verslunarmannahelgina þetta árið og skella sér heldur í 340 kílómetra hálendishlaup til þess að safna fyrir barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Sexmenning- arnir munu hlaupa einskonar boðhlaup yfir há- lendið, 5 til 20 kílómetra í einu. Hlaupið hefst á Akureyri og lýkur því á Selfossi. Þrautaganga slökkviliðsmann- anna ber heitið Gengið af göflunum en slökkviliðsmenn frá Akureyri stóðu fyrir svipuðu verkefni árið 2017 þegar þeir gengu m.a. Eyja- fjarðarhringinn, sem er 30 kíló- metrar, í fullum slökkviliðsskrúða. „Þessi leið sem við förum núna er talsvert meiri áskorun. Við ætl- um ekki að vera í reykköfunarbún- ingum í þetta skipti enda er leiðin mjög löng,“ segir Hörður Hall- dórsson, skipuleggjandi og einn af slökkviliðsmönnunum sem ætla að taka þátt í hlaupinu. „Ég er enginn hlaupari svo þetta er fín ögrun og maður er með hjartað í buxunum yfir því að hafa tekið þessa ákvörðun. Ég hef fulla trú á því að við klárum þetta og gerum þetta vel en þetta er miklu stærra verkefni en síðast.“ Safna til að gefa til baka Síðast þegar slökkviliðsmenn- irnir stóðu fyrir verkefninu söfn- uðu þeir einnig fyrir barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þá söfn- uðu þeir fyrir svokallaðri ferða- fóstru en nú safna þeir fyrir hita- kössum. Spurður hvers vegna slökkviliðsmennirnir kjósi að leggja deildinni lið segir Hörður: „Við hugsuðum mikið um hvað við ættum að gera og af hverju. Við viljum að fólki sem er nýbúið að eignast börn líði vel með heil- brigðiskerfið í kringum sig. Það eru líka skemmtilegustu flutning- arnir okkar í sjúkraflutningum, þegar það gengur vel að hjálpa til í þessum tilvikum. Það eru lang- mestu verðlaunin einhvern veginn og við viljum gefa eitthvað til baka.“ Verða að fara eftir tilfinningu Hörður segir að Gengið af göfl- unum eigi ekki endilega að verða að árlegum viðburði. „Maður verður alltaf að keyra þetta á tilfinningu. Þetta er gríð- arleg vinna og rosalegt skipulag.“ Til þess að heita á slökkviliðs- mennina er best að leggja peninga inn á bankareikning Hollvina- samtaka Sjúkrahússins á Ak- ureyri. Kennitala samtakanna er 640216-0500 og reikningsnúmer 0565-26-10321. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lið Við upphaf göngunnar 2017. Þá gengu slökkviliðsmennirnir 30 km í fullum skrúða. Nú verða kílómetrarnir 340. Hlaupa 340 kílómetra á hálendinu fyrir hitakassa  Sex slökkviliðsmenn hlaupa frá Akureyri til Selfoss Hörður Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.