Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Blaðsíða 15
7.7. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 arhöfundur. Annie gæti jafnvel samið tónlist sérhannaða fyrir þig og þitt hugarástand. Framrásin stöðvast ekki þar. Ýmis störf sem við teljum ómögulegt að gervigreind geti unnið í dag gætu verið unnin þannig í framtíð- inni. Sérfræðingar telja að jafnvel öll störf geti verið orðin sjálfvirk einhvern tímann í framtíð- inni svo lengi sem þróun gervigreindar lendir ekki í svokölluðum flöskuhálsi þar sem fram- farir eru ómögulegar. Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, lét eitt sinn hafa eft- ir sér að „vélmenni munu geta gert allt betur en við“. Hann bætti svo við: „Betur en við öll.“ Kóðaðir lögfræðingar Í fljótu bragði virðist líklegast að þau störf sem krefjast mikillar menntunar séu í hvað minnstri hættu á að verða gerð sjálfvirk. Svo þarf þó ekki að vera. Nú þegar sjáum við að lögfræðingar þurfa í minna mæli að skima lög- in og gömul mál í von um upplýsingar sem nýt- ist þeim í starfi. Slíkt verkefni getur gervi- greind tekið að sér sem gerir það að verkum að mun færri lögfræðinga, sem margir hverjir eru aðstoðarmenn reyndari lögfræðinga, er þörf. Ef tækninni fleytir nægjanlega fram gætum við séð heilaskanna sem virka sem fullkomlega áreiðanlegt lygapróf. Hver væri tilgangurinn með lögmönnum þá? Stjórnendur eru heldur ekki óhultir. Skutl- þjónustan Uber stjórnar til að mynda sínum milljónum bílstjóra að miklu leyti með gervi- greind. Sérfræðinga greinir á um hversu mikill hluti þeirra starfa sem til eru muni hverfa. Tölur geta verið frá því að 47% starfa hverfi á næstu 20 árum og niður í 5%. Skilgrein- ingin á því hversu afmarkað starfið sem um ræðir er er mikilvæg í þessu samhengi. Aug- ljóst er að nánast öll störf munu verða fyrir áhrifum sjálfvirknivæðingar en að mismiklu leyti. Samvinna milli manna og tölva Líklegt er að sjálfvirkni muni breyta störfum mikið en það þurfa ekki að vera slæmar fréttir. Samvinna milli gervigreindar og mennskra starfsmanna getur auðveldað störf manna og aukið framleiðni þeirra. Eftir að DeepBlue sigraði Kasparov komu fram teymi manna og skákforrita sem nýttu sér styrkleika beggja. Þessar breytingar kalla þó á sveiganleika með- al starfsmanna ætli þeir ekki að verða úreltir. Samvinna af þessu tagi gæti aukið eftirspurn eftir starfs- mönnum sem þarf til að nýta tæknina sem innleidd hefur verið. Þeir sem fylgjast með knattspyrnu, og þar með innreið VAR- tækninnar inn í íþróttina, þar sem her dómara fylgist með myndbandsupptökum, hafa líklega tekið eftir þessu. Öllum spám af þessu tagi verður einnig að taka með fyrirvara. Eins og áður sagði er ómögulegt að vita nákvæmlega hvað framtíðin ber í skauti sér. Árið 2004 birtu tveir prófess- orar frá MIT og Harvard grein þar sem mögu- leiki á sjálfvirkni ýmissa starfa var skoðaður. Starf vörubílstjóra var nefnt sem starf sem ólíklegt væri að yrði gert sjálfvirkt í nálægri framtíð. Síðan þá hafa fyrirtæki eins og Tesla og fleiri komist nær því að framleiða sjálfvirkan bíl en nokkurn óraði fyrir. Svo mikill var árangurinn að margir töldu einungis tíma- spursmál hvenær allir væru komnir á full- komlega sjálfvirka bíla. Það virðist hins vegar ekki vera raunin. Nokkuð langt er í að sjálf- virkir bílar geti leyst öll þau vandamál sem steðja að mennskum bílstjórum. Gamla vinnulíkanið að deyja? Störfin sem við vinnum munu ekki einungis breytast heldur einnig vinnumarkaðurinn sjálfur. Hið almenna líkan af vinnumarkaðnum þar sem einstaklingur er í fullu starfi hjá einu fyrirtæki mun að einhverju leyti víkja fyrir lausamennsku. Tækniþróun hefur orðið til þess að mun auðveldara er en áður að starfa sem sjálfstæður verktaki eða lausamaður. Margir kjósa það frelsi og þann sveigjan- leika sem þessu fylgir auk þess sem fyrirtæki vilja í meira mæli ráða fólk í tímabundið starf. Oft eru þetta störf sem krefjast lítillar sérhæf- ingar og eru líkleg til að verða gerð sjálfvirk í framtíðinni. Sem dæmi má aftur nefna skutl- þjónusutuna Uber. Allir ökumenn fyrir- tækisins eru, samkvæmt Uber, sjálfstæðir verktakar, og er lofað að stjórna sínum eigin vinnutíma. (Ekki eru þó allir starfsmenn Uber sáttir með hag sinn því Uber virðist reyna að stjórna þeim meira en eðlilegt getur talist við þessar kringumstæður.) Mótmælt fyrir daufum eyrum Ef svo heldur fram sem horfir er alls ekki ljóst hvernig best sé að hátta stjórnum ríkja. Það stjórnkerfi sem nú er til staðar byggist á því að allir séu nauðsynlegir. Ef stór hluti mannkyns verður tilgangslaus er ekki víst að það gangi upp. Möguleiki er að þegar störf hverfa safnist fjármagn á mjög fáar hendur, þeirra sem eiga gervigreindina og vélarnar. Áður fyrr (og nú) þegar almenningi fannst á réttindum sínum brotið gat fólk lagt niður störf og sýnt fjár- magnseigendum hve mikið þeir stóluðu á þá. Ef tölvurnar hafa hins vegar tekið yfir stóran hluta starfa getur fólk farið í eins mörg verk- föll og það vill; þeim sem eiga tækin verður al- veg sama. Ein lausn á þessu er að setja á borgaralaun. Hver maður fái þá laun óháð því hvort hann vinnur eður ei. Viðkomandi getur þá varið tíma sínum í það sem gefur lífi hans lit. Hvort sem það er að mála, stunda íþróttir, leysa stærð- fræðijöfnur eða horfa á allar þáttaraðirnar af Friends skiptir ekki máli. Við munum ráða okkar tíma en lifa samt góðu lífi. Spurningin er þó hversu góðu lífi. Eigum við að geta farið í þrjár utanlandsferðir á ári? Heimsreisu? Þurfum við að eiga fyrir 200 fer- metra húsi eða 30? Svo er það vandamálið með öll hin löndin. Þótt sjálfvirknivæðingin verði til bóta á Íslandi og öðrum vestrænum ríkjum þarf svo ekki að vera í fátækari ríkjum heims. Eiga íbúar þeirra að skrimta á meðan við fáum laun fyrir að fara í reisu þangað? Eins og nefnt var hér á undan gæti verið að fólk þyrfti að skipta um starfsgrein, með til- heyrandi endurmenntun, nokkrum sinnum yf- ir ævina. Slíkt mun ekki vera einungis fjár- hagslega erfitt heldur einnig leggjast þungt á sálartetur fólks. Að þurfa í sífellu að endur- skilgreina sig verður ekki auðvelt. Ein hug- mynd væri að setja á fót kerfi sem styður við fólk sem gengur í gegnum þessi tímamót, bæði fjárhagslega og andlega. Að lokum má nefna styttri vinnuviku. Tilraunir með slíkt hafa gefið vísbendingar um aukin afköst og bætta líðan starfsfólks. Mann- fræðingurinn David Graeber hefur til að mynda talað fyrir því að framleiðni starfsfólks sé nægilega mikil til að fólk geti unnið 15 tíma vinnuviku. Við vinnum hins vegar svona mikið því sköpuð hafa verið störf sem þjóna engum tilgangi fyrir samfélagið auk þess sem bætt hefur verið tilgangslausum athöfnum, eins og að svara tölvupósti, við störf okkar allra. Hvað með Ísland? En hvernig horfir þetta allt við Íslandi? Í skýrslu nefndar forsætisráðherra um fjórðu iðnbyltinuna sem gefin var út fyrr á árinu kemur fram að um 28% prósent íslensks vinnumarkaðar vinna störf sem mjög líkleg eru til að verða sjálfvirknivædd á næstu 10-15 árum. Við þetta bætast um 58% sem vinna störf sem eru talin miðlungslíkleg til sjálf- virknivæðingar. Þetta eru störf sem að öllum líkindum munu breytast mikið þótt þau hverfi ekki alveg. Það eru því aðeins 14% sem vinna störf sem litlar líkur eru á að verði sjálfvirkni að bráð í náinni framtíð. Í skýrslunni kemur einnig fram að karlar eru líklegri til að vinna störf sem verða fyrir áhrifum sjálfvirknivæðingar. Það sama má segja um fólk sem býr í dreifbýli og ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumark- aði. Ekki örvænta En hvað á ég þá að gera? Mun ég þurfa að skipta um starfsgrein á næstu árum? Þess- um spurningum er erfitt að svara. Framtíð- arspá af þessu tagi veltur á tækniframförum sem sérstaklega erfitt er að segja fyrir um. Það eru þó ákveðnir þættir sem hafa má í huga. Störf sem krefjast allrar þeirrar flóru eig- inleika sem maðurinn býr yfir eins og fín- hreyfinga og tilfinningagreindar munu að öllum líkindum halda sér vegna þess hve erf- itt er að forrita þessa eiginleika. Þessum störfum mun líklega fjölga vegna hækkandi aldurs jarðarbúa. Fleiri munu því starfa við umönnun í náinni framtíð. Einnig gætu framfarir í heilbrigðisþjónustu aukið ævi- líkur og þar með fjölgað eldra fólki enn frek- ar. Ekki halda að þér sé borgið lærir þú for- ritun eða, eins og í dæminu hér fremst, hug- búnaðarverkfræði. Slíkt starf er mjög sérhæft og hver veit hvenær gervigreind getur farið að forrita sig sjálfa að öllu leyti. En ekki örvænta. Vel getur verið að margir áratugir séu í að þær framtíðarsýnir sem sett- ar hafa verið hér fram rætist, geri þær það nokkurn tímann. Hafðu þó opinn hug því við þurfum, bæði einstaklingar og stjórnvöld, að vera viðbúin. Í kvikmyndinni Ex Machina tekur gervigreind á sig mynd ungrar fallegrar konu. Ólík- legt er að það muni gerast í framtíðinni enda slíkt óþarfi. IMDB ’Vélmennimunu geta gertallt betur en við.Betur en við öll. Fjármálageirinn hefur ekki farið varhluta af sjálfvirknivæðingunni síðustu ár. Sífellt færri vinna við þjónustustörf hjá bönkum og verðbréfaviðskipti eru framkvæmd í miklum mæli af algóriþmum. Sér- fræðistörfum hefur að einhverju leyti fjölgað en sumir telja jafnvel sprenglærða starfsmenn innan fjármálageirans verða úrelta í náinni framtíð. Uppsagnir hafa verið tíðar í bönkum landsins að undanförnu. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, sagði í samtali við mbl.is í lok maímánaðar að félagsmenn hefðu miklar áhyggjur af stöðunni og tækju jafnvel til á skrif- borðum sínum við hver mánaðarmót, slík væri óvissan. Uppsagnirnar sagði Friðbert af völdum lokunar útibúa og sameiningar deilda sem koma til vegna sjálfvirknivæðingar innan bankanna. Bankarnir hafa í auknum mæli þurft að mæta utanaðkomandi samkeppni frá óhefðbundnum aðilum á markaði. Sem dæmi má nefna Auði sem er ný fjár- málaþjónusta Kviku banka sem tók til starfa í mars síðastliðnum. Auður býður hærri vexti á óbundnum sparnaðar- reikningum en gengur og gerist hjá öðr- um bönkum. Bankaþjónustan fer alfarið fram á netinu og því sé enginn eiginlegur banki til staðar. Það geri Auði kleift að bjóða betri kjör en aðrir og leiðir til þess að hefðbundnu bankarnir þurfa að hag- ræða í starfsemi sinni til að verða ekki undir. Breytingar í fjármálageiranum Árið 2011 sigraði gervigreindin Watson tvo fyrrverandi meistara í sjónvarpsleiknum Jeopardy! Nú ætlar Watson að verða læknir og hrekja í leiðinni marga kollega sína úr starfi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.