Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Blaðsíða 20
Íslenskir keppendur halda íslenska fánanum á
lofti á sviði í Braga í Portúgal en þar var hald-
in heimsmeistarakeppni í dansi í vikunni.
Í Braga í Portúgal var DanceWorld Cup haldin í tíundasinn í vikunni en danskeppni
þessi er sú stærsta í heimi fyrir
ungt fólk á aldrinum 4-25 ára. Ís-
land tók þátt í fyrsta skipti en
haldin var glæsileg forkeppni á
Íslandi í mars. Tíu íslenskir dans-
skólar fóru til Portúgal en í hópn-
um voru 120 íslenskir dansarar á
öllum aldri auk danskennara og
fjölskyldna keppenda.
Yfirskriftin var „Friendship
through the language of dance“
en alls tóku 12.000 þátttakendur
þátt í heimsmeistarakeppninni frá
62 löndum.
Smá kúltúrsjokk
Keppt er í sólódansi, dúettum,
tríóum og minni og stærri hópum
í fjölmörgum dansstílum.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt
og frábært að sjá okkar dansara
ná mjög góðum árangri í keppn-
inni því við erum nýliðar hér. Það
er auðvitað smá kúltúrsjokk að
sjá dansmenninguna baksviðs, því
þar labbaði maður bara beint í
flasið á alvöru dansmæðrum sem
eru búnar að líma gerviaugnhárin
á litlu stúlkurnar sem eru stífmál-
aðar, sumar í flegnum kjólum og í
raun ætlast til þess að þær geri
ekkert annað en að vinna sinn
flokk. Það eru fáir strákar hér, en
þannig er nú dansheimurinn, bæði
hér og heima. Fyrir okkur er
þetta svakalegur lærdómur og
auðvitað skemmtun, því við leggj-
um mikla áherslu á það að standa
okkur vel, sýna okkar besta og
hafa gaman af. Stelpurnar eru
mjög duglegar að hvetja hina
dansskólana, því hér komum við
fram eins og landsliðið í dansi í
þessum aldurshópi,“ segir Birna
Björnsdóttir danskennari og eig-
andi Dansskóla Birnu Björns.
„Keppnin er algjörlega til fyrir-
myndar, allt skipulag mjög gott
og dansinn á miklu hærri „stand-
ard“ en við áttum von á,“ segir
Guðný Ósk Karlsdóttir, danskenn-
ari og ein af fararstjórum Dans-
skóla Birnu Björns.
Svakaleg keyrsla
Magdalena Höskuldsdóttir, 16
ára, er meðal keppenda. „Það er
búið að vera mjög gaman og svo
er lærdómsríkt að sjá hin atriðin,“
segir hún og bætir við að íslensku
krakkarnir séu að kynnast krökk-
um frá ýmsum löndum.
„Það eru rosalega margir hérna
og svakaleg keyrsla; atriði eftir
atriði,“ segir hún og nefnir að
þrjár stúlkur úr Dansskóla Birnu
Björns hafi landað fjórða sætinu
af 36 atriðum um síðustu helgi.
Þess má geta að Íslendingar hafa
unnið eitt gull í Street Dans
Flokki, nokkur silfur og brons og
má því segja að árangur íslenska
hópsins sé afar góður.
„Okkur Íslendingunum hefur
gengið svo vel hérna úti sem er
svo gaman af því þetta er í fyrsta
skipti sem við erum að keppa,“
segir Magdalena.
Íslensku skólarnir sem keppa
eru Chantelle Carey school of
performing arts, Dans Brynju
Péturs, Danskompaní, Dans-
listaskóli JSB, Dansskóli Birnu
Björns, Dansstúdíó Alice, Dans-
stúdíó WC, Listdansskóli Íslands,
Plié listdansskóli og STEPS
Akureyri.
„Íslensku keppendurnir hafa
staðið sig stórkostlega, en við er-
um ekki með keppendur í öllum
flokkum og satt best að segja
standa keppendurnir sig miklu
betur en við áttum von á,“ segir
Chantelle Carey sem skipulagði
undankeppnina og hafði veg og
vanda af því að Ísland tekur nú
þátt í fyrsta skipti.
Innrás íslenskra dansara í Portúgal
Yfir hundrað íslensk ungmenni á aldrinum
fjögurra til 25 ára tóku þátt í fyrsta sinn í
Dance World Cup sem haldið var í Braga í
Portúgal í vikunni. Lögð var áhersla á vináttu
í gegnum tungumál dansins.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Magdalena Höskuldsdóttir dansari og Salka Hjálmars-
dóttir, systir keppanda, voru sælar í Braga í Portúgal.
Birna Björnsdóttir er hér ásamt nokkrum íslenskum dönsurum.
Gull-, silfur- og bronsverðlaun voru komin í hús.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2019
LÍFSSTÍLL
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE