Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2019
LÍFSSTÍLL
Inkaleiðin, sem endar í Machu Picchu í Andes-
fjöllum í Perú, er ein vinsælasta gönguleið heims.
Borgin, sem er í 2.430 metra hæð yfir sjávarmáli,
var reist fyrir komu Evrópubúa til Suður-Ameríku
en yfirgefin árið 1572. Hún var grafin undir gróðri
þegar hún fannst formlega aftur árið 1911 en þá
hafði margur ræninginn láta greipar sópa á svæð-
inu. Borgin er á heimsminjaskrá UNESCO.
Leiðin samanstendur af þremur gönguleiðum
sem hægt er að velja um. Aðeins er 500 manns
leyft að ganga leiðina á degi hverjum, þar af um
200 ferðamönnum. Aðrir eru leiðsögumenn og
aðrir starfsmenn svæðisins. Á háannatíma getur
því reynst ansi erfitt að komast að.
Þeir garpar sem hætta sér í gönguna eiga á
hættu að verða háfjallaveiki að bráð því leiðin nær
um 4.200 metra hæð yfir sjávarmáli um miðbikið.
Á leiðinni má sjá gamlar rústir borga, forn göng og
snævi þakta fjallstinda.
Musteri sólarinnar (e. Temple of the Sun) er í Machu
Picchu. Það er talið vera staðsett þar sem keisari Inka-
veldis hafði aðsetur á sínum tíma.
Ljósmyndir/Wikipedia
Inkaleiðin
Um síðustu helgi bárustfréttir af breskum ofur-hlaupara sem ætlaði sér
að hlaupa 700 kílómetra leið þvert
yfir Ísland á um það bil 14 dögum.
Hann ætlaði sér að hefja leika á
Seyðisfirði og enda í Keflavík.
Degi seinna gátu netverjar svo
lesið um tvo íslenska göngugarpa
sem ætluðu sér að ganga 500 kíló-
metra leið, frá fjöru í Lóni á Aust-
urlandi til fjöru í Borgarfirði.
Leiðin liggur yfir lítið annað en
óbyggðir og ber því nafn með
rentu; Öræfaleið. Þeir félagar
voru heldur hógværari í yfirlýs-
ingum um ferðahraða og áætluðu
um 30 daga í ferðina.
Þegar litið er út fyrir lands-
steinana má sjá að göngu- og
hlaupaferðir sem þessar eru ekki
nýjar af nálinni. Margur hefur
reynt sig á hinum ýmsu leiðum af
hinum ýmsu ástæðum. Einhverjir
fara vegna áskorunarinnar, útsýn-
isins eða jafnvel af trúarlegum
ástæðum.
Sunnudagsblaðið kynnti sér
nokkrar af þekktustu og vinsæl-
ustu gönguleiðum heims.
Skunda yfir fjöll
og firnindi
Borið hefur á því að bæði göngu- og hlaupagarpar ætli sér þvert fyrir
landið, yfir fjöll og firnindi. Slíkar ferðir eru þekktar um heim allan
og heldur fólk í þær af ýmsum ástæðum. Ákveðnar leiðir hafa mynd-
ast í þessu samhengi sem áhugavert er að kynna sér.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Appalasíustígurinn (e. Appalachi-
an Trail) í Bandaríkjunum er
stundum nefndur lengsta göngu-
leið heims, þótt hægt sé að deila
um það. Hann nær frá Georgíu í
suðri til Maine í norðri og er um
3.500 kílómetrar að lengd. Leiðin
liggur yfir Appalasíufjöll og er því
ekki auðveld yfirferðar. Hún nær
hæst 2.025 metra yfir sjávarmáli.
Um tvær milljónir manna ganga
hluta leiðarinnar á hverju ári. Fáir
ganga hana alla á innan við ári og
enn færri í einum rykk. Margir
sem reyna að fara hana alla gefast
upp og mistekst verkefni sitt.
Helstu hættur sem steðja að
þeim sem ganga eða hlaupa leið-
ina eru dýrin sem geta orðið á
vegi þeirra. Birnir, snákar og villi-
svín eru þau hættulegustu mönn-
um á leiðinni. Leiðin er þó ekki
talin hættulegri en aðrar göngu-
leiðir af þessu tagi.
Fljótastur til að fara leiðina án
hjálpar var Joe McConaughy sem
hljóp hana á rúmlega 45 dögum
árið 2017. Karel Sabbe fór á 41
degi ári seinna en naut hjálpar á
leiðinni, þ.e. bar ekki farangur
sinn, fékk mat á leiðinni ásamt
öðrum fríðindum.
Þeir sem hætta sér á Appalasíustíginn þurfa meðal annars að ganga yfir
Franconia-fjallshrygginn í New Hampshire í Bandaríkjunum.
Appalasíustígurinn
Aðalhluti Jakobsvegarins er á
Spáni en teygir þó anga sína eftir
mismunandi leiðum til annarra
landa Evrópu. Leiðin er ein helsta
pílagrímsferð kristinna manna.
Hún endar í dómkirkjunni í San-
tiago de Compostela í héraðinu
Galisíu, þar sem talið er að Jakob
postuli sé grafinn, en hefst víðs-
vegar um Evrópu.
Á seinni árum hafa menn ekki
aðeins gengið leiðina af trúar-
legum ástæðum heldur einnig til
að njóta fallegs útsýnis á göngunni
og reyna sig á þessari krefjandi
göngu. Þeir sem leggja leiðina
undir fætur ganga yfir Pýreneafjöll
og þaðan til vesturstrandar Spán-
ar.
Vinsælasta leiðin sem gengin er
að leiði Jakobs kallast franska leið-
in. Hún liggur frá Saint-Jean-Pied-
de-Port við rætur Pýreneafjalla í
Frakklandi og þaðan yfir fjöllin áð-
ur en leiðinni er haldið til San-
tiago de Compostela.
Franska leiðin er um 780 kíló-
metrar að lengd og oftast er gert
ráð fyrir að um fjórar vikur taki að
ganga hana.
Að komast að dómkirkjunni í Santiago de Compostela, þar sem talið er að
Jakob postuli sé grafinn, er markmið þeirra sem ganga Jakobsveginn.
Jakobsvegurinn
... stærsti uppskriftarvefur landsins!