Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1992, Page 9
Inngangur
Introduction
1. Fjármál sveitarfélaga 1987 og 1988
The development oflocal govemment finances in 1987 and 1988
Afkoma sveitarfélaga 1987 og 1988. Umfang sveitarfélaga
eins og það kemur fram í þessari skýrslu er annað en það sem
mælt er í þjóðhagsreikningum. Munurinn skýrist einkum af
því að hér eru fjármál sveitarfélaga sett fram sérstaklega, en
í þjóðhagsreikningum eru þau talin hluti af starfsemi hins
opinbera í heild. Þetta snertir fyrst og fremst innbyrðis
viðskipti nkissjóðs og sveitarfélaga og þar með hvar útgjöld
af sameiginlegri starfsemi þessara aðila eru talin. I þjóð-
hagsreikningum eru tilfærslur frá rfkissjóði til sveitarfélaga
færðar sem útgjöid hjá ríkissjóði og koma til frádráttar
vergum (brúttó) útgjöldum sveitarfélaga. I reikningum
sveitarfélaga - og þar með í þessari skýrslu - eru þessar
tilfærslur taldar til tekna hjá þeim og koma þannig á móti
vergum útgjöldum þeirra. Þá koma tekjur af seldri þjónustu
sveitarfélaga til lækkunar á útgjöldum þeirra í uppgjöri
þjóðhagsreikningaogteljastíflestumtilvikumtileinkaneyslu.
Hjá sveitarfélögum eru þessar tekjur færðar í tekjuhlið
rekstrarreiknings og eru hluti af ráðstöfunarfé þeirra. Að
síðustu eru öll fjármál Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga talin hjá
sveitarfélögum í þjóðhagsreikningum. I þessari skýrslu
kemur fram hjá sveitarfélögum eingöngu sá hluti af fjármálum
Jöfnunarsjóðs, sem varðar viðskipti hans við þau, en fyrir-
greiðsla sjóðsins við aðra aðila er ekki meðtalin.
Vægi sveitarfélaga í opinberum fjármálum hér á landi er
fremur lítið samanborið við grannríki okkar á Norðurlöndum.
Arið 1987 voru sveitarfélögin 216 að tölu og hafði þeim
fækkað um sex frá árinu á undan. Sveitarfélögunum fækkaði
enn frekar seinna árið eða um tvö og voru því orðin 214 í
árslok 1988. Eins og fjöldi sveitarfélaga hér á landi gefur til
kynna eru flest þeirra tiltölulega lítil og fámenn. Af þessum
sökum er fjárhagur þeirra tiltölulega þröngur og miðast
fjármálastjórn þeirra við að hann sé sem næst í jafnvægi. I
reynd eru það aðeins fáir þéttbýlisstaðir sem geta eða hafa
þörf fyrir að ráðast í stærri framkvæmdir. 11. yfirliti er gefin
nokkur mynd af fjármálum sveitarfélaganna þessi tvö ár.
1. yfirlit. Tekjur og gjöld sveitarfélaga 1987 og 1988
Table 1. Local government revenue and expenditure 1987 and 1988
Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfall af VLF"
Million ISK at current prices Per cent ofGDP
1987 1988 1987 1988
Heildartekjur 17.999 24.657 8,7 9,7 Total revenue
Skatttekjur 11.802 16.475 5,7 6,5 Tax revenue
þ.a. beinir skattar 6.971 10.031 3,4 4,0 Direct taxes
þ.a. óbeinir skattar 4.831 6.444 2,3 2,5 Indirect taxes
Þjónustutekjur 2.830 3.769 1,4 1,5 Service revenue2)
Vaxtatekjur 953 1.138 0,5 0,4 Interest
Framlög til fjárfestingar 2.012 2.632 1,0 1,0 Capital transfers received
Ymsar tekjur 402 643 0,2 0,3 Other revenue
Heildargjöld 18.366 24.910 8,9 9,8 Total expenditure
Rekstrargjöld 12.612 16.462 6,1 6,5 Operational outlays
Fjármagnskostnaður 1.110 1.708 0,5 0,7 Interest
Gjöld til fjárfestingar 4.644 6.740 2,3 2,7 Investment outlays
Tekjujöfnuður -367 -253 -0,2 -0,1 Revenue balance
Verg landsframleiðsla
Revenue from service charges and current transfers received