Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1996, Qupperneq 38
36
Sveitarsjóðareikningar 1995
niðurstöðutala en ekki er lagt upp úr að sýna eiginfjárstöðu
í samræmi við almennar reikningsskilaaðferðir atvinnufyrir-
tækja. Sveitarsjóðum ber því að beita sértækri reiknings-
skilaaðferð sbr. a. lið 9. gr. reglugerðar nr. 280/1989. Þar
skipta eftirfarandi atriði mestu máli:
a. Skatttekjur. ráðstöfun þeirra og fjármagnshreyfingar
með samanburði við fjárhagsáætlun.
b. Peningaleg staða í upphafi og við lok tímabils.
c. Lykiltölur.
d. Skýringar.
Almenn aðferð
Rekstrarreikningur
„Sjóðstreymi" (hét einnig
fjármagnsyfirlit en var í raun
sjóðstreymi)
Efnahagsreikn. (eiginfjárstaða)
Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu frávik í reikningsyfirlitum
sem byggjast á almennum reikningsskilum annars vegar og
þar sem beitt er sértækri reikningsskilaaðferð hins vegar.
Sveitarfélögin hafa smám saman verið að þróa uppgjörsað-
ferðir sínar í átt til sértækra reikningsskila og kemur hér
einnig fram hvenær helstu breytingar áttu sér stað.
Sértœk aðferð
Rekstrar- og framkvæmdayfirlit
Fjármagnsyfirlit
Hvenœr breytt
Með ársreikningi 1979
Með ársreikningi 1990
(nýtt fjármagnsyfirlit)
Efnahagsreikn.(peningaleg staða)
Raunbreyting peningalegrar stöðu
Lykiltölur
Með ársreikningi 1990
Með ársreikningi 1990
Með ársreikningi 1990
Uppsetning rekstrar- og framkvæmdayfirlits var svipuð
bæði árin 1989 og 1990. Þó errétt að nefna tvær breytingar.
Árið 1990 voru allar skatttekjur færðar undir liðinn sam-
eiginlegar tekjur en ýmsar tekjur, sem voru áður færðar á
þennan lið, bókfærast nú á viðkomandi málaflokka. Fram til
ársins 1989 voru færslur vaxta í reikningsskilum sveitarfél-
aga mismunandi og hefur það gert samanburð á reikningum
þeirra erfiðari. Frá 1990 er sveitarfélögum gert að færa allar
vaxtatekjur, vaxtagjöld og verðbætur í málaflokk 28 og þar
er einnig gert ráð fyrir möguleika á færslum reiknaðra
fjármagnsliða.
Meginmarkmið efnahagsreiknings sveitarsjóðs og þeirra
fyrirtækja og stofnana sveitarfélaga sem beita sértækum
reikningsskilaaðferðum er að draga fram peningalega stöðu
þeirra í árslok. Peningaleg staða er í raun sú fjárhæð í efna-
hagsreikningi sveitarsjóðs sem mestu rnáli skiptir. Fastafjár-
munir eru sýndir ósundurliðaðir í hinni nýju uppsetningu
efnahagsreikningsins. Sundurliðun þeirra kemur fram í sér-
stöku yfirliti sem Hagstofan óskar eftir frá sveitarfélögunum.
Gert er ráð fyrir að fjárfesting sveitarfélaga verði í auknum
mæli gjaldfærð á komandi árum. Ástæðan er sú að með
nákvæmri skilgreiningu á peningalegri stöðu skiptir færsla
annarra eigna í efnahagsreikningi sveitarsjóðs minna máli en
áður. Einnig er mikilvægt ákvæði í reglugerð nr. 280/1989
þess efnis að sveitarfélög eigi að halda nákvæma eignaskrá.
Gert er ráð fyrir að í efnahagsreikningi komi fram tilvísun í
skýringar á eignum og skuldbindingum utan efnahags-
reiknings. Fram til ársins 1989 miðaði úrvinnsla Hagstofu
við að „hrein eign eigin fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag"
færðist sem sjálfstæður liður í eignahlið efnahagsreiknings
sveitarsjóðs. Frá ársbyrjun 1990 var þessi liður felldur úr
efnahagsreikningnum.
Frá árinu 1990 er raunbreyting á peningalegri stöðu frá
upphafi reikningsárs til ársloka miðað við vísitölu by ggingar-
kostnaðar reiknuð út á sérstöku yfirliti í reikningum sveitar-
sjóða. Breytingu á peningalegri stöðu má stemma af við
heildarniðurstöður á rekstrar- og framkvæmdayfirliti þegar
sú fjárhæð hefur verið færð til verðlags í árslok.
Hinu nýja fjármagnsyfirliti er fyrst og fremst ætlað að sýna
ráðstöfun á skatttekjum sveitarfélagsins og aðrar peninga-
legar hreyfingar á því tímabili sem það tekur til.
Urvinnsla ársreikninga 1995.
Bókhaldslykill sveitarfélaga gerir meðal annars ráð fyrir að
útgjöld til málaflokka séu brúttófærð. Við það er einnig
rniðað á eyðublöðum Hagstofu. f þessari skýrslu eru sýndar
þrj ár megintöflur fy rir fj ármál s veitarfélaga á árinu 1995, ein
tafla fyrir fjármál fyrirtækja sveitarfélaga, tvær töflur um
fjármál þeirra eftir kjördæmum og loks eru níu töflur um
félagsþjónustu sveitarfélaga.
Tafla I sýnir úrvinnslu á reikningum sveitarfélaga eftir
kjördæmum, kaupstöðum, sýslum og hreppum með fleiri en
400 fbúa. Tafla I hefst áað sýnd erheildarfjárhæðsa/neígí'H-
legra tekna og sundurliðun þeirra. Til sameiginlegra tekna
sveitarfélaga eru taldar almennar skatttekjur, þ.e. skattar sem
ekki eru markaðir til ákveðinna verkefna. Þéi sýnir taflan
heildarfjárhæðirrekstrargjalda ogrekstrartekna og sundur-
liðun þeirra á 21 málaflokk með nokkurri greiningu á deildir
og starfsemisþætti innan málaflokka. íþriðja hluta töflunnar
kernur fram svipuð skipting gjaldfœrðrar og eignfœrðrar
fjárfestingar á málaflokka. Fjórði hluti töflunnar sýnir
raunbreytingu peningalegrar stöðu milli ára. Fimmti hluti
töflunnar sýnvcefnahagsreikning en framsetning hans dregur
fram peningalega stöðu. Loks sýnir taflan fjármagnsyfirlit,
þar sem fram kemur ráðstöfun skatttekna sveitarfélaganna
og aðrar peningalegar hreyfingar á árinu.
Tafla II sýnir fjárhæðir meginstærða í töflu I í krónum á
hvern fbúa sveitarfélaga eftir sömu skiptingu á kjördæmi,
kaupstaði, sýslur og hreppa. Þessi tafla einfaldar mjög inn-
byrðis samanburð milli sveitarfélaga.
Tafla III sýnir sundurliðun á gjöldum, tekjum, eignum og
skuldum sveitarfélaga með færri en 400 íbúa, þ.e. þeirra
sveitarfélaga sem ekki eru sýnd sérstaklega í töflum I og II
heldur koma þar aðeins fram í samtölum.
Tafla IV sýnir sundurliðun á rekstrartekjum, rekstrar-
gjöldum, eignum og skuldum vatnsveitna, rafveitna, hita-