Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Side 11
Inngangur
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utanríkisverslun byggjast að mestu leyti á
aðflutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum út-
flytjenda. Aðflutningsskýrslur eru tölvuskráðar hjá toll-
stjórum og hefur Hagstofan aðgang að gagnaskrám Ríkis-
tollstjóra og sækir þangað upplýsingar með vélrænum hætti.
Þessar upplýsingar eru yfirfarnar og leiðréttar eins og kostur
er. Oft er haft samband við viðkomandi innflytjendur og
útflytjendur til nánari útskýringa eða til leiðréttingar. Toll-
yfirvöld hafa ekki hafið tölvuskráningu útflutningsskýrslna
og því fór skráning þeirra enn fram á Hagstofunni á árinu
1995 eins og verið hefur. Hagstofan skráir einnig aðflutnings-
skýrslur frá Tollpóststofu.
Víðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en af
tollskýrslum. Má þar nefna að Siglingastofnun íslands
(Skipaskrá) og Flugmálastjóm, Loftferðaeftirlit, gefa upp-
lýsingar urn kaup og sölu á flugvélum og skipum og er haft
samband við viðkomandi kaupendur og seljendur til nánari
upplýsinga. Hjá Fiskveiðasjóði Islands er leitað upplýsinga
um lán til innlendra útgerðarfyrirtækja vegna endurbóta á
íslenskum fiskiskipum og Siglingastofnun gefur upplýsingar
um hvaða skip fara utan til breytinga. I framhaldi af því er
haft samband við hlutaðeigandi fyrirtæki til nánari upp-
lýsinga. Sendar eru fyrirspurnir til fyrirtækja í viðkomandi
atvinnugrein um endurbætur á erlendum skipum fram-
kvæmdar af íslenskum fyrirtækjum. Fiskifélag Islands gefur
upplýsingar um landanir íslenskra fiskiskipa í erlendum
höfnum og fiskiskipa í eigu íslenskra aðila sem eru skráð
erlendis (þ.e. sigla undir hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgir að mestu leiðbeiningum Sameinuðu
þjóðanna um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um
utanríkisverslun (United Nations: International Trade Sta-
tistics, Concepts and Definitions), þ.e. hvað er tekið með,
hvernig og hVenær. Um er að ræða vöruviðskipti og er
almenna skilgreiningin sú að allur innflutningur og
útflutningur sem eykur eða skerðir efnislegar auðlindir lands
á að teljast með í utanríkisverslunartölum. Venja er að greina
á milli tvenns konar grundvallarreglna um skýrslur varðandi
utanríkisverslun, almennra verslunarreglna (general trade
system) og sértækra verslunarreglna (special trade system).
Munur á þessum reglum felst aðallega í skráningu á vöru
sem flutt er í tollvörugeymslu og á frísvæði. Samkvæmt
almennu verslunarreglunum er vara skráð í utanríkisverslun
þegar hún kemur inn í tollvörugeymslu/frísvæði en
samkvæmt sértæku verslunarreglunum er varan skráð þegar
hún fer úr tollvörugeymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis
hefur almennu verslunarreglunum verið fylgt.
Dæmi um liði sem eru meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Gull til almennra nota
- Vörur sendarípósti, að verðmæti meiraen 25.000 krónur
- Vörur sem fluttar eru inn í landið eða út úr landinu til
frekari vinnslu
- Ymsar vörur með hátt hlutfall þjónustu (t.d. skipulags-
teikningar, spólur. hugbúnaður o.s.frv.)
- Skip og flugvélar í förum milli landa
- Landanir erlendra fiskiskipa í innlendum höfnum
- Landanir íslenskra fiskiskipa erlendis og einnig landanir
hentifánaskipa erlendis, skipa í eigu Islendinga
- Vörur í eignarleigu (eitt ár eða lengur)
- Endursendar vörur
- Meiri háttar viðgerðir og endurbætur
Dæmi um liði sem ekki eru innifaldir í íslenskum skýrslum
um utanrfkisverslun:
- Vörur sem koma til landsins til áframhaldandi flutnings
úr landinu (transit)
- Tímabundinn innflutningur og útflutningur (t.d. fyrir
ýmiss konar sýningar)
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng seld erlendum skipum
eða flugvélum innanlands
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng keypt erlendis fyrir
íslensk skip eða flugvélar
- Ólögleg verslun
- Vörur frá ríkisstjórn til sendiráða og fulltrúa ríkis
erlendis og aðsendar vörur til sendiráða og fulltrúa
erlends ríkis innanlands
- Gull til myntsláttu
- Vörur í afnotaleigu (innan við eitt ár)
- Verðlítil sýnishorn
- Keypt eða seld hentifánaskip
- Afli sem hentifánaskip í eigu Islendinga landar í
íslenskri höfn
- Vöruviðskipti vamarliðsins á Keflavfkurflugvelli
- Vörusala íslensks markaðar hf. á Keflavfkurflugvelli
- Vörusala Fríhafnar á Keflavíkurflugvelli
Flokkun
Tollskrárnúmer
Flokkun vörutegunda í utanríkisverslun byggist á tollskrá.
Núgildandi tollskrá tók gildi hinn 1. janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 um breyting á tollalögum nr. 55/1987. Með
þessari tollskrá varð gjörbreyting á vöruflokkun í samræmi
við þær breytingar sem þá höfðu verið gerðar á hinni al-
þjóðlegu vöruflokkunarskrá Tollasamvinnuráðsins í Brussel.
Þessi skrá er nefnd Hið samræmda flokkunarkerfi, og er
þekkt undir skammstöfuninni HS eftir hinu enska heiti sínu
(the Harmonized Commodity Description and Coding Sys-
tem). HS-skráin var viðtekin með samningi Tollasamvinnu-
ráðsinsíBrusselíjúní 1983oggefin útárið 1985. Islendingar
voru aðilar að þessum samningi og var hann fullgiltur af
íslands hálfu í júní 1986. HS-skráin tók gildi í flestum
aðildarríkjum Tollasamvinnuráðsins frá og með I. janúar
1988.
HS-skráin er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir fyrstu