Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Page 12

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Page 12
10 Utanríkisverslun 1995, Vöruflokkar og viðskiptalönd stafirnir mynda kafla frá 01-97 og eru vörur flokkaðar innan þessa flokkunarkerfis eftir efni þeirra. Þau ríki sem hafa undirritað samninginn um notkun þessa samræmda kerfis hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex stafa kerfi en þeim er frjálst að beita nákvæmari flokkun með fleiri stöfum. Flest ríki sem tekið hafa HS-skrána í notkun, nota fleiri stafi en sex og sum allt upp í tíu. Islenska tollskráin er átta stafa skrá þar sem HS-skránni er fylgt á sex stafi en í ýmsum tilvikum eru síðustu tveir stafirnir notaðir til ná- kvæmari flokkunar miðað við íslenskar þarfir. Tollskráin frá 1988 er mun sundurgreindari en tollskráin frá 1978. Þetta stafar mest af því að HS-skráin, sem er sex stafa skrá, er miklu ítarlegri en fyrri skrá Tollasamvinnuráðsins, svonefnd CCCN-skrá, sem byggðist á fjögurra stafa flokkun og hafði alls um 1.920 númer. I HS-skránni eru alls rösklega 5.000 vörunúmer. I tollskránni íslensku frá 1978 voru tæplega 2.900 númer en árið 1995 voru í henni nær 6.700 tollskrár- númer. Þess má geta að á árinu 1995 kom einhver inn- flutningur fram í 5.552 tollskrárnúmerum en útflutningur kom aðeins fyrir í 1.131 númeri. Itarleg sundurliðun út- flutnings og innflutnings eftir tollskrárnúmerum er birt í riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrámúmerum. SITC vöruflokkar (Standard Intemational Trade Classifi- cation) I þessu riti er aðalflokkun innflutnings samkvæmt alþjóð- legri vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Standard In- ternational Trade Classification, SITC). Einnig eru birtar tölur um útflutning eftir SITC-flokkun. SITC-flokkunin er sundurliðun eftir vörudeildum og vöruflokkum. Þessi skrá er ætluð til hagskýrslugerðar og miðast við það að unnt sé að skipa skyldum vörum saman í flokka og deildir. f tengslum við samningu HS-skrárinnar var SITC-skráin endurskoðuð í þriðja sinn. Sjálf vöruskráin hélst að mestu óbreytt og endurskoðunin fólst aðallega í samningu einhlíts lykils milli HS-skrárinnar og SITC-skrárinnar. Hagstofan tók upp þriðju endurskoðun SITC-skrárinnar í ársbyrjun 1988 um leið og ný tollskrá tók gildi. Flokkun SITC-skrárinnar er eftirfarandi: 10 eins stafs vörubálkar 67 tveggja stafa vörudeildir 261 þriggja stafa vöruflokkar 1.033 fjögurra stafa undirflokkar 3.118 fimm stafavöruliðir I riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrár- númerum, er birt við hvert tollskrárnúmer samsvarandi vöruliður eftir SITC flokkunarkerfinu. Að baki hverjum SITC vörulið stendur eitt eða fleiri tollskrárnúmer. í þessu riti er SITC flokkunni beitt við sundurliðun í vörubálka, vörudeildir og vöruflokka bæði fyrir útflutning (tafla 1) og innflutning (tafla 3). Einnig er birtur innflutningur eftir vörudeildum og markaðssvæðum (tafla 16) og sundurliðun vörubálka og vörudeilda á innflutning frá einstökum löndum (tafla 20). Hagstofuflokkun Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður samkvæmt tollskrárnúmerum á sama hátt og innflutningur en áður hafði flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi Hagstofunnar. Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd, var sex stafa skrá, dregin saman í kafla eftir tveimur fyrstu stöfum skrárinnar. Eftir að farið var að flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988 var tveggja stafa Hagstofuflokkunin aflögð en um leið tekin upp ný Hagstofuflokkun vegna innlendra þarfa þar sem toll- skrá þótti ekki gefa færi á nægilegri sundurliðun sjávaraf- urða. I þeirri flokkun er útfluttum vörum raðað eftir nýrri þriggja stafa skrá Hagstofunnar og er sú röðun hliðstæð eldri sundurgreiningu í tveggja stafa kafla. Nýja Hagstofu- flokkunin er töluvert sundurgreindari en hin eldri og hefur fleiri vöruliði en skrárnar eru þó að mestu sambærilegar. Þessi flokkun er einkum ætluð til nota hérlendis og er áhersla lögð á nákvæmari sundurgreiningu útflutnings Islendinga á sjávarafurðum en fram kemur í hinum alþjóðlegu flokkunar- kerfum. 1 Hagstofuflokkun eru vörur flokkaðar saman í sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, iðnaðarvörur og aðrar vörur. I þessu riti er útflutningur birtur eftir Hagstofuflokkun (tafla 2), eftir Hagstofuflokkun og markaðssvæðum (tafla 15), eftir Hagstofuflokkun og einstökum löndum (tafla 19) og eftir Hagstofuflokkun (völdum vöruflokkum), markaðs- svæðum og einstökum löndum (tafla 21). Hagrœn flokkun (BEC) I verslunarskýrslum áranna 1969-1987 var innflutningur flokkaður eftir svonefndum notkunarflokkum, þ.e. í neyslu- vöru, rekstrarvöru og fjárfestingarvöru. Þessi flokkun var séríslensk. Hún var felld niður árið 1988 en í stað hennar var tekin upp hagræn flokkun hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Classification by Broad Economic Categories, BEC). Þessi flokkun er mjög einföld í uppsetningu, þar sem hún skiptist alls í 19 flokka sem dregnir eru saman í 7 aðalflokka. í útgáfu Hagstofunnar um utanríkisverslun er bætt við tveimur flokkum fyrir skip og flugvélar. Þessi flokkun er hér sýnd fyrir útflutning (tafla 5), fyrir innflutning (tafla 6), útflutning eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 17) og innflutning eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 18). Vinnslugreinar í allmörg ár hefur útflutningur verið flokkaður eftir vinnslu- greinum. Þessi tilhögun hefur þótt skýr og notadrjúg og hana má sjá í töflu 4. Atvinnugreinaflokkun Þær töflur um utanríkisverslun eftir atvinnugreinum sem hér eru birtar fylgja íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95, sem byggist á samræmdri atvinnugreinaflokkun Evrópu- sambandsins (NACE, 1. endursk.). NACE er fjögurra stafa flokkun en ISAT 95 er fimm stafa flokkun. í þessu riti er notuð fjögurra stafa flokkun en til nánari sundurgreiningar á vinnslu sjávarafurða eru þær flokkaðar á fimm stafi. ÍSAT 95 tók gildi í opinberri hagskýrslugerð 1. janúar 1995. Frá þeim tíma hefur henni verið beitt í fyrirtækjaskrá, launa- skýrslum, vinnumarkaðsskýrslum, atvinnuvegaskýrslum og við þjóðhagsreikningagerð. Otvíræðir kostir eru því fylgjandi fyrir greiningu þjóðhagsstærða að birta innflutning og út- flutning eftir atvinnugreinum. Tafla 7 sýnir þessa flokkun í útflutningi og tafla 8 í innflutningi. Lönd Við skilgreiningu á löndum fylgir Hagstofan hinum alþjóð- lega staðli ISO-3166. Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198

x

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd
https://timarit.is/publication/1381

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.