Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Qupperneq 12
10
Utanríkisverslun 1995, Vöruflokkar og viðskiptalönd
stafirnir mynda kafla frá 01-97 og eru vörur flokkaðar innan
þessa flokkunarkerfis eftir efni þeirra. Þau ríki sem hafa
undirritað samninginn um notkun þessa samræmda kerfis
hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex stafa kerfi
en þeim er frjálst að beita nákvæmari flokkun með fleiri
stöfum. Flest ríki sem tekið hafa HS-skrána í notkun, nota
fleiri stafi en sex og sum allt upp í tíu. Islenska tollskráin er
átta stafa skrá þar sem HS-skránni er fylgt á sex stafi en í
ýmsum tilvikum eru síðustu tveir stafirnir notaðir til ná-
kvæmari flokkunar miðað við íslenskar þarfir. Tollskráin frá
1988 er mun sundurgreindari en tollskráin frá 1978. Þetta
stafar mest af því að HS-skráin, sem er sex stafa skrá, er
miklu ítarlegri en fyrri skrá Tollasamvinnuráðsins, svonefnd
CCCN-skrá, sem byggðist á fjögurra stafa flokkun og hafði
alls um 1.920 númer. I HS-skránni eru alls rösklega 5.000
vörunúmer. I tollskránni íslensku frá 1978 voru tæplega
2.900 númer en árið 1995 voru í henni nær 6.700 tollskrár-
númer. Þess má geta að á árinu 1995 kom einhver inn-
flutningur fram í 5.552 tollskrárnúmerum en útflutningur
kom aðeins fyrir í 1.131 númeri. Itarleg sundurliðun út-
flutnings og innflutnings eftir tollskrárnúmerum er birt í riti
Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrámúmerum.
SITC vöruflokkar (Standard Intemational Trade Classifi-
cation)
I þessu riti er aðalflokkun innflutnings samkvæmt alþjóð-
legri vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Standard In-
ternational Trade Classification, SITC). Einnig eru birtar
tölur um útflutning eftir SITC-flokkun. SITC-flokkunin er
sundurliðun eftir vörudeildum og vöruflokkum. Þessi skrá
er ætluð til hagskýrslugerðar og miðast við það að unnt sé
að skipa skyldum vörum saman í flokka og deildir. f tengslum
við samningu HS-skrárinnar var SITC-skráin endurskoðuð
í þriðja sinn. Sjálf vöruskráin hélst að mestu óbreytt og
endurskoðunin fólst aðallega í samningu einhlíts lykils milli
HS-skrárinnar og SITC-skrárinnar. Hagstofan tók upp þriðju
endurskoðun SITC-skrárinnar í ársbyrjun 1988 um leið og
ný tollskrá tók gildi. Flokkun SITC-skrárinnar er eftirfarandi:
10 eins stafs vörubálkar
67 tveggja stafa vörudeildir
261 þriggja stafa vöruflokkar
1.033 fjögurra stafa undirflokkar
3.118 fimm stafavöruliðir
I riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrár-
númerum, er birt við hvert tollskrárnúmer samsvarandi
vöruliður eftir SITC flokkunarkerfinu. Að baki hverjum
SITC vörulið stendur eitt eða fleiri tollskrárnúmer. í þessu
riti er SITC flokkunni beitt við sundurliðun í vörubálka,
vörudeildir og vöruflokka bæði fyrir útflutning (tafla 1) og
innflutning (tafla 3). Einnig er birtur innflutningur eftir
vörudeildum og markaðssvæðum (tafla 16) og sundurliðun
vörubálka og vörudeilda á innflutning frá einstökum löndum
(tafla 20).
Hagstofuflokkun
Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður samkvæmt
tollskrárnúmerum á sama hátt og innflutningur en áður hafði
flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi Hagstofunnar.
Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd, var sex stafa skrá,
dregin saman í kafla eftir tveimur fyrstu stöfum skrárinnar.
Eftir að farið var að flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988
var tveggja stafa Hagstofuflokkunin aflögð en um leið tekin
upp ný Hagstofuflokkun vegna innlendra þarfa þar sem toll-
skrá þótti ekki gefa færi á nægilegri sundurliðun sjávaraf-
urða. I þeirri flokkun er útfluttum vörum raðað eftir nýrri
þriggja stafa skrá Hagstofunnar og er sú röðun hliðstæð eldri
sundurgreiningu í tveggja stafa kafla. Nýja Hagstofu-
flokkunin er töluvert sundurgreindari en hin eldri og hefur
fleiri vöruliði en skrárnar eru þó að mestu sambærilegar.
Þessi flokkun er einkum ætluð til nota hérlendis og er áhersla
lögð á nákvæmari sundurgreiningu útflutnings Islendinga á
sjávarafurðum en fram kemur í hinum alþjóðlegu flokkunar-
kerfum. 1 Hagstofuflokkun eru vörur flokkaðar saman í
sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, iðnaðarvörur og aðrar
vörur. I þessu riti er útflutningur birtur eftir Hagstofuflokkun
(tafla 2), eftir Hagstofuflokkun og markaðssvæðum (tafla
15), eftir Hagstofuflokkun og einstökum löndum (tafla 19)
og eftir Hagstofuflokkun (völdum vöruflokkum), markaðs-
svæðum og einstökum löndum (tafla 21).
Hagrœn flokkun (BEC)
I verslunarskýrslum áranna 1969-1987 var innflutningur
flokkaður eftir svonefndum notkunarflokkum, þ.e. í neyslu-
vöru, rekstrarvöru og fjárfestingarvöru. Þessi flokkun var
séríslensk. Hún var felld niður árið 1988 en í stað hennar
var tekin upp hagræn flokkun hagstofu Sameinuðu þjóðanna
(Classification by Broad Economic Categories, BEC). Þessi
flokkun er mjög einföld í uppsetningu, þar sem hún skiptist
alls í 19 flokka sem dregnir eru saman í 7 aðalflokka. í útgáfu
Hagstofunnar um utanríkisverslun er bætt við tveimur
flokkum fyrir skip og flugvélar. Þessi flokkun er hér sýnd
fyrir útflutning (tafla 5), fyrir innflutning (tafla 6), útflutning
eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 17) og innflutning eftir
BEC og markaðssvæðum (tafla 18).
Vinnslugreinar
í allmörg ár hefur útflutningur verið flokkaður eftir vinnslu-
greinum. Þessi tilhögun hefur þótt skýr og notadrjúg og hana
má sjá í töflu 4.
Atvinnugreinaflokkun
Þær töflur um utanríkisverslun eftir atvinnugreinum sem hér
eru birtar fylgja íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95,
sem byggist á samræmdri atvinnugreinaflokkun Evrópu-
sambandsins (NACE, 1. endursk.). NACE er fjögurra stafa
flokkun en ISAT 95 er fimm stafa flokkun. í þessu riti er
notuð fjögurra stafa flokkun en til nánari sundurgreiningar
á vinnslu sjávarafurða eru þær flokkaðar á fimm stafi. ÍSAT
95 tók gildi í opinberri hagskýrslugerð 1. janúar 1995. Frá
þeim tíma hefur henni verið beitt í fyrirtækjaskrá, launa-
skýrslum, vinnumarkaðsskýrslum, atvinnuvegaskýrslum og
við þjóðhagsreikningagerð. Otvíræðir kostir eru því fylgjandi
fyrir greiningu þjóðhagsstærða að birta innflutning og út-
flutning eftir atvinnugreinum. Tafla 7 sýnir þessa flokkun í
útflutningi og tafla 8 í innflutningi.
Lönd
Við skilgreiningu á löndum fylgir Hagstofan hinum alþjóð-
lega staðli ISO-3166.
Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning