Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1999, Blaðsíða 12
10
Utanríkisverslun 1998 - vöruflokkar og viðskiptalönd
hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex stafa kerfi
en þeim er frjálst að beita nákvæmari flokkun með fleiri
stöfum. Flest ríki sem tekið hafa HS-skrána í notkun, nota
fleiri stafi en sex og sum allt að tíu. Islenska tollskráin er
átta stafa skrá þar sem HS-skránni er fylgt á sex stafi en í
ýmsum tilvikum eru síðustu tveir stafirnir notaðir til ná-
kvæmari flokkunar miðað við íslenskar þarfir. I HS-skránni
eru alls rösklega 5.000 vörunúmer en í íslensku tollskránni
voru nær 6.800 tollskrárnúmer árið 1998. Þess má geta að á
árinu 1998 voru notuð 5.590 tollskrárnúmer fyrir innflutning
en aðeins 1.558 númer fyrir útflutning. Itarleg sundurliðun
útflutnings og innflutnings eftir tollskrámúmerum er birt í
riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrámúmerum.
SITC vöruflokkar (Standard International Trade Classi-
fication)
í þessu riti er aðalflokkun innflutnings samkvæmt alþjóð-
legri vöruskrá Hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Standard In-
ternational Trade Classification, SITC). Einnig eru birtar
tölur um útflutning eftir SITC-flokkun. SITC-flokkunin er
sundurliðun eftir vömdeildum og vömflokkum. Þessi skrá
er ætluð til hagskýrslugerðar og miðast við það að unnt sé
að skipa skyldum vömm saman í flokka og deildir. I tengslum
við samningu HS-skrárinnar var SITC-skráin endurskoðuð
í þriðja sinn. Sjálf vöruskráin hélst að mestu óbreytt og
endurskoðunin fólst aðallega í samningu einhlíts lykils milli
HS-skrárinnar og SITC-skrárinnar. Hagstofan tók upp þriðju
endurskoðun SITC-skrárinnar í ársbyrjun 1988 um leið og
ný tollskrá tók gildi. Flokkun SITC-skrárinnar er eftirfarandi:
10 eins stafs vörubálkar
67 tveggja stafa vömdeildir
261 þriggja stafa vömflokkar
1.033 fjögurra stafa undirflokkar
3.118 fimm stafa vöruliðir
í riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrár-
númerum, er birt við hvert tollskrárnúmer samsvarandi
vömliður eftir SITC flokkunarkerfinu. Að baki hverjum
SITC vömlið stendur eitt eða fleiri tollskrárnúmer. I þessu
riti er SITC flokkunni beitt við sundurliðun í vörubálka,
vörudeildir og vömflokka bæði fyrir útflutning (tafla 1) og
innflutning (tafla 3). Einnig er birtur innflutningur eftir
vörudeildum og markaðssvæðum (tafla 16) og sundurliðun
innflutnings frá einstökum löndum eftir vörubálkum og
vörudeildum (tafla 20).
Hagstofuflokkun
Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður samkvæmt
tollskrámúmemm á sama hátt og innflutningur en áður hafði
flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi Hagstofunnar.
Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd. var sex stafa skrá,
dregin saman í kafla eftir tveimur fyrstu stöfum skrárinnar.
Eftir að farið var að flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988
var tveggja stafa Hagstofuflokkunin aflögð en um leið tekin
upp ný Hagstofuflokkun þar sem tollskrá þótti ekki gefa færi
á nægilegri sundurliðun sjávarafurða. I þeirri flokkun er út-
fluttum vörum raðað eftir nýrri þriggja stafa skrá Hag-
stofunnar og er sú röðun hliðstæð eldri sundurgreiningu í
tveggja stafa kafla. Nýrri Hagstofuflokkunin er töluvert
sundurgreindari en hin eldri og hefur fleiri vöruliði en
skrárnar eru þó að mestu sambærilegar. í Hagstofuflokkun
eru vörur flokkaðar saman í sjávarafurðir, landbúnaðar-
afurðir, iðnaðarvörur og aðrar vörur. I þessu riti er út-
flutningur birtur eftir Hagstofuflokkun (tafla 2), eftir Hag-
stofuflokkun og markaðssvæðum (tafla 15), eftir Hagstofu-
flokkun og einstökum löndum (tafla 19) og eftir Hagstofu-
flokkun (völdum vöruflokkum), markaðssvæðum og einstök-
um löndum (tafla 21).
Hagræn flokkun (BEC)
í verslunarskýrslum áranna 1969-1987 var innflutningur
flokkaður eftir svonefndum notkunarflokkum, þ.e. í neyslu-
vöru, rekstrarvöru og fjárfestingarvöru. Þessi flokkun var
séríslensk. Hún var felld niður árið 1988 en í stað hennar
var tekin upp hagræn flokkun Hagstofu Sameinuðu þjóðanna
(Classification by Broad Economic Categories, BEC). Þessi
flokkun er mjög einföld í uppsetningu, þar sem hún skiptist
alls í 19 flokka sem dregnir eru saman í 7 aðalflokka. I útgáfu
Hagstofunnar um utanríkisverslun er bætt við tveimur
flokkum fyrir skip og flugvélar. Þessi flokkun er hér sýnd
fyrir útflutning (tafla 5), fyrir innflutning (tafla 6), útflutning
eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 17) og innflutning eftir
BEC og markaðssvæðum (tafla 18).
Vinnslugreinar
í allmörg ár hefur útflutningur verið flokkaður eftir vinnslu-
greinum. Þessi tilhögun hefur þótt skýr og notadrjúg og hana
má sjá í töflu 4.
Atvinnugreinaflokkun
Þær töflur um utannkisverslun eftir atvinnugreinum sem hér
eru birtar fylgja íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95,
sem byggist á samræmdri atvinnugreinaflokkun Evrópu-
sambandsins (NACE, 1. endursk.). NACE er fjögurra stafa
flokkun en ÍSAT 95 er fimm stafa flokkun. í þessu riti er
notuð fjögurra stafa flokkun en til nánari sundurgreiningar
á vinnslu sjávarafurða eru þær flokkaðar á fimm stafi. ÍSAT
95 tók gildi í opinberri hagskýrslugerð 1. janúar 1995. Frá
þeim tíma hefur henni verið beitt í fyrirtækjaskrá, launa-
skýrslum, vinnumarkaðsskýrslum, atvinnuvegaskýrslum og
við þjóðhagsreikningagerð. Otvíræðir kostir em því fylgjandi
fyrir greiningu þjóðhagsstærða að birta innflutning og
útflutning eftir atvinnugreinum. Tafla 7 sýnir þessa flokkun
fyrir útflutning og tafla 8 fyrir innflutning.
Lönd
Við skilgreiningu á löndum fylgir Hagstofan hinum alþjóð-
lega staðli ISO-3166.
Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning
snertir og framleiðslulönd hvað varðar innflutning. Þannig
er leitast við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru
og upprunaland innfluttrar vöm en ekki kaup- eða söluland
eða það land sem útflutt vara fer til eða innflutt vara kemur
frá. Fyrir kemur að útflytjanda eða innflytjenda er ókunnugt
um endanlegt móttökuland eða upprunaland vörunnar og
verður þá að skrá á skýrslu það land sem útflutt vara fer til
eða innflutt vara kemur frá í stað notkunarlands eða uppmna-
lands.