Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1999, Síða 12

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1999, Síða 12
10 Utanríkisverslun 1998 - vöruflokkar og viðskiptalönd hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex stafa kerfi en þeim er frjálst að beita nákvæmari flokkun með fleiri stöfum. Flest ríki sem tekið hafa HS-skrána í notkun, nota fleiri stafi en sex og sum allt að tíu. Islenska tollskráin er átta stafa skrá þar sem HS-skránni er fylgt á sex stafi en í ýmsum tilvikum eru síðustu tveir stafirnir notaðir til ná- kvæmari flokkunar miðað við íslenskar þarfir. I HS-skránni eru alls rösklega 5.000 vörunúmer en í íslensku tollskránni voru nær 6.800 tollskrárnúmer árið 1998. Þess má geta að á árinu 1998 voru notuð 5.590 tollskrárnúmer fyrir innflutning en aðeins 1.558 númer fyrir útflutning. Itarleg sundurliðun útflutnings og innflutnings eftir tollskrámúmerum er birt í riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrámúmerum. SITC vöruflokkar (Standard International Trade Classi- fication) í þessu riti er aðalflokkun innflutnings samkvæmt alþjóð- legri vöruskrá Hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Standard In- ternational Trade Classification, SITC). Einnig eru birtar tölur um útflutning eftir SITC-flokkun. SITC-flokkunin er sundurliðun eftir vömdeildum og vömflokkum. Þessi skrá er ætluð til hagskýrslugerðar og miðast við það að unnt sé að skipa skyldum vömm saman í flokka og deildir. I tengslum við samningu HS-skrárinnar var SITC-skráin endurskoðuð í þriðja sinn. Sjálf vöruskráin hélst að mestu óbreytt og endurskoðunin fólst aðallega í samningu einhlíts lykils milli HS-skrárinnar og SITC-skrárinnar. Hagstofan tók upp þriðju endurskoðun SITC-skrárinnar í ársbyrjun 1988 um leið og ný tollskrá tók gildi. Flokkun SITC-skrárinnar er eftirfarandi: 10 eins stafs vörubálkar 67 tveggja stafa vömdeildir 261 þriggja stafa vömflokkar 1.033 fjögurra stafa undirflokkar 3.118 fimm stafa vöruliðir í riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrár- númerum, er birt við hvert tollskrárnúmer samsvarandi vömliður eftir SITC flokkunarkerfinu. Að baki hverjum SITC vömlið stendur eitt eða fleiri tollskrárnúmer. I þessu riti er SITC flokkunni beitt við sundurliðun í vörubálka, vörudeildir og vömflokka bæði fyrir útflutning (tafla 1) og innflutning (tafla 3). Einnig er birtur innflutningur eftir vörudeildum og markaðssvæðum (tafla 16) og sundurliðun innflutnings frá einstökum löndum eftir vörubálkum og vörudeildum (tafla 20). Hagstofuflokkun Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður samkvæmt tollskrámúmemm á sama hátt og innflutningur en áður hafði flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi Hagstofunnar. Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd. var sex stafa skrá, dregin saman í kafla eftir tveimur fyrstu stöfum skrárinnar. Eftir að farið var að flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988 var tveggja stafa Hagstofuflokkunin aflögð en um leið tekin upp ný Hagstofuflokkun þar sem tollskrá þótti ekki gefa færi á nægilegri sundurliðun sjávarafurða. I þeirri flokkun er út- fluttum vörum raðað eftir nýrri þriggja stafa skrá Hag- stofunnar og er sú röðun hliðstæð eldri sundurgreiningu í tveggja stafa kafla. Nýrri Hagstofuflokkunin er töluvert sundurgreindari en hin eldri og hefur fleiri vöruliði en skrárnar eru þó að mestu sambærilegar. í Hagstofuflokkun eru vörur flokkaðar saman í sjávarafurðir, landbúnaðar- afurðir, iðnaðarvörur og aðrar vörur. I þessu riti er út- flutningur birtur eftir Hagstofuflokkun (tafla 2), eftir Hag- stofuflokkun og markaðssvæðum (tafla 15), eftir Hagstofu- flokkun og einstökum löndum (tafla 19) og eftir Hagstofu- flokkun (völdum vöruflokkum), markaðssvæðum og einstök- um löndum (tafla 21). Hagræn flokkun (BEC) í verslunarskýrslum áranna 1969-1987 var innflutningur flokkaður eftir svonefndum notkunarflokkum, þ.e. í neyslu- vöru, rekstrarvöru og fjárfestingarvöru. Þessi flokkun var séríslensk. Hún var felld niður árið 1988 en í stað hennar var tekin upp hagræn flokkun Hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Classification by Broad Economic Categories, BEC). Þessi flokkun er mjög einföld í uppsetningu, þar sem hún skiptist alls í 19 flokka sem dregnir eru saman í 7 aðalflokka. I útgáfu Hagstofunnar um utanríkisverslun er bætt við tveimur flokkum fyrir skip og flugvélar. Þessi flokkun er hér sýnd fyrir útflutning (tafla 5), fyrir innflutning (tafla 6), útflutning eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 17) og innflutning eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 18). Vinnslugreinar í allmörg ár hefur útflutningur verið flokkaður eftir vinnslu- greinum. Þessi tilhögun hefur þótt skýr og notadrjúg og hana má sjá í töflu 4. Atvinnugreinaflokkun Þær töflur um utannkisverslun eftir atvinnugreinum sem hér eru birtar fylgja íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95, sem byggist á samræmdri atvinnugreinaflokkun Evrópu- sambandsins (NACE, 1. endursk.). NACE er fjögurra stafa flokkun en ÍSAT 95 er fimm stafa flokkun. í þessu riti er notuð fjögurra stafa flokkun en til nánari sundurgreiningar á vinnslu sjávarafurða eru þær flokkaðar á fimm stafi. ÍSAT 95 tók gildi í opinberri hagskýrslugerð 1. janúar 1995. Frá þeim tíma hefur henni verið beitt í fyrirtækjaskrá, launa- skýrslum, vinnumarkaðsskýrslum, atvinnuvegaskýrslum og við þjóðhagsreikningagerð. Otvíræðir kostir em því fylgjandi fyrir greiningu þjóðhagsstærða að birta innflutning og útflutning eftir atvinnugreinum. Tafla 7 sýnir þessa flokkun fyrir útflutning og tafla 8 fyrir innflutning. Lönd Við skilgreiningu á löndum fylgir Hagstofan hinum alþjóð- lega staðli ISO-3166. Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning snertir og framleiðslulönd hvað varðar innflutning. Þannig er leitast við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru og upprunaland innfluttrar vöm en ekki kaup- eða söluland eða það land sem útflutt vara fer til eða innflutt vara kemur frá. Fyrir kemur að útflytjanda eða innflytjenda er ókunnugt um endanlegt móttökuland eða upprunaland vörunnar og verður þá að skrá á skýrslu það land sem útflutt vara fer til eða innflutt vara kemur frá í stað notkunarlands eða uppmna- lands.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212

x

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd
https://timarit.is/publication/1381

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.