Gistiskýrslur - 01.04.2003, Síða 5

Gistiskýrslur - 01.04.2003, Síða 5
Formáli Gistiskýrslur 2002 er tíunda rit Hagstofu íslands um niður- stöður talningar á gistinóttum og gestakomum á gististöðum í landinu. Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní 1984. Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gisti- þjónustu, að orlofshúsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta í því skyni að kanna meðallengd dvalar á gististað. Skýrsluskil frá öllum tegundum gististaða hafa verið góð, en að undanskildum flokki hótela hafa þau þó kostað tímafrekan eftirrekstur. Eigendur nýrra gististaða eru þó greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfnunarinnar því frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og vel. Af samtölum við þá sem ekki skila skýrslum hefur ósjaldan komið í ljós að þeir telja starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni að útbúa skýrslur. Þessar upplýs- ingar eru engu að síður mikilvægar því Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn sé opinn og í fullum rekstri. Flestir gestgjafar eru óhræddir við að senda Hagstofunni upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel kunnugt um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila, er farið sem trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hag- skýrsluupplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru aldrei látnar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einka- aðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin miðast við það að upplýsingarnar verði ekki raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær sem gestgjafar láta Hagstofu fslands í té koma ekki síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðsrannsóknir. A Hagstofunni hafa Guðfinna Harðardóttir og Þórarinna Söebech haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna. Þórarinna Söebech sá um gerð þessa rits og umbrot annaðist Sigurborg Steingrímsdóttir. Hagstofu íslands í aprfl 2003 Hallgrímur Snorrason Preface Tourist Accommodation 2002 is the tenth report issued by Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Iceland began collecting data on a regular basis on the supply and use of tourist accommodation. The data collection extended to overnight stays and arrivals in all types of tourist accommodation with the exception of trade- union summer houses. In 1995 the data collection was extended to cover guest arrivals in order to acquire information on average length of stay. Response rates have been very satisfactory from every type of accommodation, but with the exception of hotels, they have required time consuming data collection. Yet, owners of new tourist accommodation have tumed out to be well informed of the importance of tourist accommo- dation statistics and have responded well to requests for data. On the whole, the data collection has improved and coverage has increased appreciably. At Statistics Iceland, Guðfinna Harðardóttir and Þórarinna Söebech have been in charge of the collection of tourist accommodation reports and the subsequent data processing. Þórarinna Söebech edited this publication and the lay-out was in the hands of Sigurborg Steingnmsdóttir. Statistics Iceland in April 2003 Hallgrímur Snorrason

x

Gistiskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.