Gistiskýrslur - 01.04.2003, Side 15
Gistiskýrslur 2002
13
Mynd 4. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgarsvæðinu eftir mánuðum 1999 og 2002
J FMAMJ JÁ SOND JFMAMJ JÁ SOND
1999 2002
6. yfirlit. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum eftir landsvæðum 1999-2002
Summary 6. Overnight stays at hotels and guesthouses by region 1999-2002
Gistinætur alls, þús.
Overnight stays, thous.
Hlutfallsleg
breyting milli ára
Change
between years, %
2001-
1999-
Hlutfall útlendinga, %
Foreigners, percent of total
1999 2000 2001 2002 2002 2002 1999 2000 2001 2002
Alls Total 1.183,7 1.186,5 1.180,6 1.260,5 6,8 6,5 72,9 75,4 76,8 77,0 Total
Höfuðborgarsvæði 639,3 647,2 638,6 655,4 2,6 2,5 85,7 87,1 89,9 88,9 Capital region
Suðurnes 32,6 36,0 39,1 39,6 1,2 21,4 67,0 63,4 73,7 73,5 Southwest
Vesturland 62,8 64,1 66,0 70,3 6,6 12,0 52,6 55,6 52,6 61,8 West
Vestfirðir 27,2 25,5 30,0 29,3 -2,2 7,8 27,7 31,6 37,8 32,1 Westfjords
Norðurland vestra 32,6 26,6 26,2 28,2 7,8 -13,4 52,0 55,6 58,3 62,5 Northwest
Norðurland eystra 145,5 145,6 147,1 156,9 6,7 7,8 58,9 65,1 65,9 65,2 Northeast
Austurland 99,6 94,2 99,0 115,3 16,4 15,7 62,3 67,5 68,6 70,0 East
Suðurland 144,1 147,2 134,7 165,5 22,9 14,8 60,9 62,3 57,7 63,7 South
og Vestfjörðum bættust við fjórir staðir. Á höfuðborgar-
svæðinu sem og á Norðurlandi eystra fjölgaði gististöðunum
um þrjá og á Suðurnesjum og Norðurlandi vestra bættist
við einn á hvoru landsvæði. Fjöldi hótela og gistiheimila
er sá sami milli ára á Austurlandi. Herbergjum í þessum
flokki fjölgaði einnig árið 2002, eða um rúm 10%.
Gististöðum er skipt í tvo stærðarflokka, „1-59 rúm“ og
„60 rúm og fleiri". Milli áranna 1994 og 1995 var mikil
aukning í fjölda hótela og gistiheimila sem skýrist af því
að árið 1995 var 24 gististöðum sem áður flokkuðust sem
bændagististaðir bætt við þennan flokk gististaða. Gistirými
þessara staða var 682 rúm í 278 herbergjum. Taka verður
tillit til þessa í samanburði við fyrri ár, bæði hvað varðar
gistirými og fjölda gistinátta. Samanburður við árið 1985
er þó raunhæfur þar sem bændagististaðir voru á þeim tíma
smáir og hefðu þá ekki getað talist til hótela og gistiheimila.
Árið 1985 voru hótel og gistiheimili 88 talsins en 273 árið
2002, eða rúmlega þrefalt fleiri.
Ef litið er á tímabilið 1995-2002 eftir að breyting var
gerð á flokkun gististaða sést að herbergjum hefur fjölgað
öll árin, að undanskildu árinu 2000 þegar þeim fækkaði.
Á þessu tímabili hefur herbergjum að meðaltali fjölgað um
rúm 6% milli ára. Gististöðum í þessu flokki hefur ekki
einungis fjölgað vegna nýrra gististaða heldur vegna þess
að gististaðir sem áður tilheyrðu öðrum flokkum gistingar,
t.d. farfuglaheimilum eða heimagististöðum, tilheyra nú