Gistiskýrslur - 01.04.2003, Page 9
Inngangur
Introduction
1. Gistináttatalning Hagstofu íslands
1 ■ Overnight stays statistics
Gistiskýrslur 2002 er tíunda ritið sem Hagstofan gefur út í
ritröðinni Gistiskýrslur. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur
ásamt skýringartexta og myndum. Yfirlitin ná sum hver
aftur til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hag-
stofunnar. Önnur ná skemur aftur í tímann eða tvö til fjögur
ár. I töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir land-
svæðum, ríkisfangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hags-
tofunnar fer þannig fram að gististöðum og öllum þeim sem
selja gistiþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar
en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan
eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd,
þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og
Japan. Aðrir gestir teljast aðrir Evrópubúar eða íbúar
annarra landa. Fram til ársins 1995 var einungis safnað
tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess
byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Byrjun-
arörðugleikar háðu talningu gestakoma framan af og því
er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en frá og með árinu
1996.
Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu
upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gisti-
staði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undir þessi
lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari
fyrirmælum Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu
einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferða-
þjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa
sérstaklega sem atvinnugreinar." I samræmi við þessa
lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara
með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem
trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins
og fram kemur í þessu riti.
Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum
gistiþjónustu til útfyllingar era þrjú. Tvö þeirra eru svo-
kölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir
gistinætur. Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gisti-
stöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja
eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofu" er eina blaðið sem
senda skal Hagstofunni. Á það skal færa samtölur mánaðar-
ins af hjálparblöðunum ásamt upplýsingum um gistirými.
Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni
(Excel).
2. Skýringar
2. Explanatory notes
Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. I úrvinnslu Hag-
stofunnar er henni skipt í sex meginflokka.
Fyrsti flokkur er hátel og gistiheimili. Nánar tiltekið
hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumar-
hótel og sumargistiheimili. í þessum flokki eru öll hótel og
gistiheimili sem era með sérstaka gestamóttöku og bjóða
upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum
og salemum. Auk þess era í þessum flokki gistiheimili þar
sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða
fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr.
288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gisti-
þjónustu tekur til mest allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir
þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning Hagstofunnar
nær til eru á gististöðum í þessum flokki. Árið 1997 var
fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla
skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast
hótel. Á hóteli er gestamóttaka opin allan sólarhringinn og
morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á
a.m.k. 75% herbergja.
Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt
við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur
húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun meira en heima-
gistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gisting-
ar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem
leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og
starfsmannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem leigð
eru út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur
meðtalin.
Ekki er auðvelt fyrir gististaðaeigendur að fylgjast
nákvæmlega með fjölda gesta í sumarhúsunum. Oftast er
hægt að fylgjast með fjölda gesta þegar útlendingar eiga í
hlut en það er erfiðara með Islendinga. Umsjónarmönnum
hefur því verið bent á að þegar tala gesta er mjög á reiki þá
sé tekið mið af skráðu gistirými hússins. Gistinætur í húsi
með gistirými fyrir fjóra í eina nótt eru því fjórar.
Þriðji flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til
ársins 1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir
en var þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins
vegar heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem voru
árið 1995 með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk
eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir
minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll
gisting á einkaheimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á
sveitabýlum. Bændur era ósjaldan með eitt til tvö sumarhús
að auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu
nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heima-
gistingu er sú gisting talin með heimagistingunni. Leigi
bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga
er sú gisting ekki meðtalin hér. Ef um er að ræða þrjú eða
fleiri sumarhús eða smáhýsi flokkast gististaðurinn með
orlofshúsabyggðum.
Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla-
heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda
en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á
staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll
farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem á
aðild að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF).