Útvegur - 01.08.2003, Side 15

Útvegur - 01.08.2003, Side 15
Aðferðir og hugtök 13 1. Aðferðir og hugtök 1. Methods and concepts Hagstofa íslands gefur nú út ársritið Útveg í fimmta sinn. Að þessu sinni er gerð grein fyrir sjávarútveginum á árinu 2002. Grunnskipulag Útvegs 2002 er það sama og í Útvegi 2001. Leitast er við að hafa samspil texta, mynda og taflna þannig úr garði gert að ritið sé í raun ársskýrsla um sjávarútveg sem innhaldi helstu lykilupplýsingar. Itarlegri vitneskja, t.d. um einstaka verkunarstaði, er að finna á samnefndum geisladiski og á heimasíðu Hagstofunnar. Þess er vænst að ritið nýtist áhugamönnum um íslenskan sjávarútveg, jafnt leikum sem lærðum. 1.1 Heimildir 1.1 Sources Megnið af þeim töium sem birtar eru £ ritinu eru fengnar úr vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum og annast Fiskistofa söfnun þeirra. Öllum ftskkaupendum og/eða fiskverkendum, þ.m.t. fiskmörkuðum og vinnsluskipum ber skylda til að skila Fiskistofu útfylltum vigtar- og ráðstöfunarskýrslum fyrir hvem mánuð ársins, sbr. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 57/ 1996. Fiskistofa skráir og yfirfer skýrslurnar og sendir niðurstöður þeirra til Hagstofunnar til frekari úrvinnslu. Vigtarskýrslur innihalda upplýsingar um aflakaup. Þar kemur m.a. fram nafn fiskkaupanda, númer skráningar o.fl. ásamt öllum nauðsynlegum upplýsingum um keyptan afla, svo sem fisktegund, magn og verð. Ein skýrsla er gerð fyrir hvert skip sem keypt er af og nær skýrslan í flestum tilfellum yfir mánaðarviðskipti ftskkaupandans við skipið, tilgreind eftir dögum. Fiskkaupandi útbýr vigtarskýrsluna og sendir Fiskistofu sem sér um skráningu hennar. Vigtarskýrslur eru sendar rafrænt eða eftir hefðbundnum leiðum. Við opinbert eftirlit sjávarafurða er leitast við að fylgja afla eftir, allt frá því að hann er veiddur og þar til búið er að vinna hann og afurðirnar komnar í hendur kaupenda. Hluti af eftirlitinu felst í því að fylgjast með vinnslu afla og myndun afurða hjá framleiðendum. I núverandi skipulagi fer þetta eftirlit þannig fram að framleiðendur (afla- kaupendur) senda Fiskistofu skýrslu um ráðstöfun afla. Ráðstöfunarskýrslur eru sendar Fiskistofu mánaðarlega. Greint er frá afla sem var til ráðstöfunar í hverjum mánuði og hvemig honum var ráðstafað. Afli til ráðstöfunar saman- stendur af birgðum í upphafi tímabils ásamt fiskkaupum samkvæmt vigtarskýrslum. Afli til ráðstöfunar er annað hvort unninn eða seldur óunninn. Því verður það aflamagn sem til ráðstöfunar er að vera jafnt því aflamagni sem er verkað eða selt óunnið. Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvaða verkun aflinn fær. Hins vegar er ekki hægt að sjá á ráð- stöfunarskýrslu hvaða afurðir verða til hjá framleiðendum. f stuttu máli veita vigtarskýrslurnar upplýsingar um allan afla upp úr sjó en ráðstöfunarskýrslurnar segja til um vinnsluaðferð hans. Fjölmargar upplýsingar sem birtast í Utvegi eru frá Hagstofu Islands, t.d. upplýsingar um starfsfólk í sjávar- útvegi og tölur um útflutning. Skipaskrá Siglingastofnunar íslands er notuð við gerð taflna um fiskiskipastólinn, Landssamband smábátaeigenda leggur til upplýsingar um grásleppuafla og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gögn um heimsaflaog skiptingu hans eftir löndum og veiðisvæðum. Eins og fyrr sagði varðveitir Fiskistofa vigtar- og ráðstöfunarskýrslur. 1.2 Skýringar 1.2 Explanatory notes Allur afli í ritinu er umreiknaður í óslægðan afla (fisk upp úr sjó) og skiptir þá ekki máli í hvaða ástandi honum er landað. Reiknistuðlar fyrir ákveðnar fisktegundir eru gefnir upp í töflu 1.1. aftar í þessum kafla. Verðmætatölur eru vergar (brúttótölur) nema annað sé tilgreint. Afli sem seldur er á markaði, hvort heldur sem er innanlands eða utan, er tilgreindur á söluverði. Verðmæti selds afla erlendis miðast við gengi á söludegi. Annar kafli fjallar um fjármunamyndun í sjávarútvegi. Upplýsingar um fjármunamyndun í sjávarútvegi eru að stærstum hluta unnar úr samræmdu skattframtali fyrirtækja í greininni (miðað við ISAT 95 flokkun). Sú aðferðafræði er notuð fyrir fjármunamyndun atvinnuveganna frá og með árinu 1997 og er mun nákvæmari og betri en fyrri aðferðir. Fjármunaeign (þjóðarauður) (e. gross capital stock) er skilgreind sem summan af árlegri fjárfestingu að frádreginni afskrift fastafjármuna. Fjármunaeignin er enn byggð á eldri framsetningu á fjármunamyndun og nær til ársins 2001. Fjármunaeigninni er skipt niður á fiskveiðar og fiskvinnslu. Von bráðar verður fjármunaeignin byggð á sömu aðferðum og fjármunamyndunin frá og með 1997 og gæti því tekið nokkrum breytingum frá þeim tölum sem nú eru birtar. Þriðji kafli, um vinnuafl í sjávarútvegi, er að öllu leyti unninn upp úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. I kaflanum koma fram upplýsingar um fjölda starfandi, starfs- aldur, vinnustundir og stéttarfélagsþátttöku starfsfólks í atvinnugreininni sjávarútvegi. Með sjávarútvegi er bæði átt við fiskveiðar og fiskvinnslu. Litið er svo á að við fisk- veiðar starfi bæði sjómenn sem og þeir sem starfa í landi við útgerð. Með fiskvinnslu er átt við vinnslu í landi. Fiskvinnsla um borð í fiskiskipum telst því til fiskveiða. Fjöldi starfandi í sjávarútvegi er áætlaður heildarfjöldi starfandi manna. Vinnustundir eru unnar klukkustundir. Með starfsaldri er átt við tímann frá þvi fólk hóf störf í tilgreindu fyrirtæki fram til viðmiðunarmánaðar. Með stéttarfélagi er átt við við hagsmunafélag launþega sem á sjálfstæða aðild að kjara- samningi í samræmi við lög um stéttarfélög og vinnudeilur (nr. 80/1938) og lög um opinbera starfsmenn (nr. 94/1986). Svarendur í vinnumarkaðsrannsókn eru sjálfir látnir meta hvort þeir séu félagsmenn í stéttarfélagi eða ekki og þannig er mæld stéttaifélagsþátttaka. Viðmiðunarvika byrjar á laugardegi og er síðasta heila vikan áður en viðtal fer fram. f fjórða kafla er fjallað um fiskiskipastól íslendinga. Fiskiskipastóllinn samanstendur af opnum fiskibátum, vélskipum og togurum. Opnir fiskihátar eru fiskibátar sem ekki eru með heilt, vatnsþétt þilfar. Þilfarsskip eru skip sem eru smíðuð með heilt, vatnsþétt þilfar stafna á milli sem aðeins er rofið með vatnsþéttum yfirbyggingum. Þilfarsskip
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Útvegur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.