Útvegur - 01.08.2003, Blaðsíða 15
Aðferðir og hugtök
13
1. Aðferðir og hugtök
1. Methods and concepts
Hagstofa íslands gefur nú út ársritið Útveg í fimmta sinn.
Að þessu sinni er gerð grein fyrir sjávarútveginum á árinu
2002. Grunnskipulag Útvegs 2002 er það sama og í Útvegi
2001. Leitast er við að hafa samspil texta, mynda og taflna
þannig úr garði gert að ritið sé í raun ársskýrsla um
sjávarútveg sem innhaldi helstu lykilupplýsingar. Itarlegri
vitneskja, t.d. um einstaka verkunarstaði, er að finna á
samnefndum geisladiski og á heimasíðu Hagstofunnar.
Þess er vænst að ritið nýtist áhugamönnum um íslenskan
sjávarútveg, jafnt leikum sem lærðum.
1.1 Heimildir
1.1 Sources
Megnið af þeim töium sem birtar eru £ ritinu eru fengnar úr
vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum og annast Fiskistofa
söfnun þeirra. Öllum ftskkaupendum og/eða fiskverkendum,
þ.m.t. fiskmörkuðum og vinnsluskipum ber skylda til að
skila Fiskistofu útfylltum vigtar- og ráðstöfunarskýrslum
fyrir hvem mánuð ársins, sbr. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 57/
1996. Fiskistofa skráir og yfirfer skýrslurnar og sendir
niðurstöður þeirra til Hagstofunnar til frekari úrvinnslu.
Vigtarskýrslur innihalda upplýsingar um aflakaup. Þar
kemur m.a. fram nafn fiskkaupanda, númer skráningar o.fl.
ásamt öllum nauðsynlegum upplýsingum um keyptan afla,
svo sem fisktegund, magn og verð. Ein skýrsla er gerð fyrir
hvert skip sem keypt er af og nær skýrslan í flestum tilfellum
yfir mánaðarviðskipti ftskkaupandans við skipið, tilgreind
eftir dögum. Fiskkaupandi útbýr vigtarskýrsluna og sendir
Fiskistofu sem sér um skráningu hennar. Vigtarskýrslur eru
sendar rafrænt eða eftir hefðbundnum leiðum.
Við opinbert eftirlit sjávarafurða er leitast við að fylgja
afla eftir, allt frá því að hann er veiddur og þar til búið er að
vinna hann og afurðirnar komnar í hendur kaupenda. Hluti
af eftirlitinu felst í því að fylgjast með vinnslu afla og
myndun afurða hjá framleiðendum. I núverandi skipulagi
fer þetta eftirlit þannig fram að framleiðendur (afla-
kaupendur) senda Fiskistofu skýrslu um ráðstöfun afla.
Ráðstöfunarskýrslur eru sendar Fiskistofu mánaðarlega.
Greint er frá afla sem var til ráðstöfunar í hverjum mánuði
og hvemig honum var ráðstafað. Afli til ráðstöfunar saman-
stendur af birgðum í upphafi tímabils ásamt fiskkaupum
samkvæmt vigtarskýrslum. Afli til ráðstöfunar er annað
hvort unninn eða seldur óunninn. Því verður það aflamagn
sem til ráðstöfunar er að vera jafnt því aflamagni sem er
verkað eða selt óunnið. Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvaða
verkun aflinn fær. Hins vegar er ekki hægt að sjá á ráð-
stöfunarskýrslu hvaða afurðir verða til hjá framleiðendum.
f stuttu máli veita vigtarskýrslurnar upplýsingar um allan
afla upp úr sjó en ráðstöfunarskýrslurnar segja til um
vinnsluaðferð hans.
Fjölmargar upplýsingar sem birtast í Utvegi eru frá
Hagstofu Islands, t.d. upplýsingar um starfsfólk í sjávar-
útvegi og tölur um útflutning. Skipaskrá Siglingastofnunar
íslands er notuð við gerð taflna um fiskiskipastólinn,
Landssamband smábátaeigenda leggur til upplýsingar um
grásleppuafla og Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO) gögn um heimsaflaog skiptingu
hans eftir löndum og veiðisvæðum. Eins og fyrr sagði
varðveitir Fiskistofa vigtar- og ráðstöfunarskýrslur.
1.2 Skýringar
1.2 Explanatory notes
Allur afli í ritinu er umreiknaður í óslægðan afla (fisk upp
úr sjó) og skiptir þá ekki máli í hvaða ástandi honum er
landað. Reiknistuðlar fyrir ákveðnar fisktegundir eru gefnir
upp í töflu 1.1. aftar í þessum kafla. Verðmætatölur eru
vergar (brúttótölur) nema annað sé tilgreint. Afli sem seldur
er á markaði, hvort heldur sem er innanlands eða utan, er
tilgreindur á söluverði. Verðmæti selds afla erlendis miðast
við gengi á söludegi.
Annar kafli fjallar um fjármunamyndun í sjávarútvegi.
Upplýsingar um fjármunamyndun í sjávarútvegi eru að
stærstum hluta unnar úr samræmdu skattframtali fyrirtækja
í greininni (miðað við ISAT 95 flokkun). Sú aðferðafræði
er notuð fyrir fjármunamyndun atvinnuveganna frá og með
árinu 1997 og er mun nákvæmari og betri en fyrri aðferðir.
Fjármunaeign (þjóðarauður) (e. gross capital stock) er
skilgreind sem summan af árlegri fjárfestingu að frádreginni
afskrift fastafjármuna. Fjármunaeignin er enn byggð á eldri
framsetningu á fjármunamyndun og nær til ársins 2001.
Fjármunaeigninni er skipt niður á fiskveiðar og fiskvinnslu.
Von bráðar verður fjármunaeignin byggð á sömu aðferðum
og fjármunamyndunin frá og með 1997 og gæti því tekið
nokkrum breytingum frá þeim tölum sem nú eru birtar.
Þriðji kafli, um vinnuafl í sjávarútvegi, er að öllu leyti
unninn upp úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. I
kaflanum koma fram upplýsingar um fjölda starfandi, starfs-
aldur, vinnustundir og stéttarfélagsþátttöku starfsfólks í
atvinnugreininni sjávarútvegi. Með sjávarútvegi er bæði átt
við fiskveiðar og fiskvinnslu. Litið er svo á að við fisk-
veiðar starfi bæði sjómenn sem og þeir sem starfa í landi við
útgerð. Með fiskvinnslu er átt við vinnslu í landi. Fiskvinnsla
um borð í fiskiskipum telst því til fiskveiða. Fjöldi starfandi
í sjávarútvegi er áætlaður heildarfjöldi starfandi manna.
Vinnustundir eru unnar klukkustundir. Með starfsaldri er
átt við tímann frá þvi fólk hóf störf í tilgreindu fyrirtæki
fram til viðmiðunarmánaðar. Með stéttarfélagi er átt við við
hagsmunafélag launþega sem á sjálfstæða aðild að kjara-
samningi í samræmi við lög um stéttarfélög og vinnudeilur
(nr. 80/1938) og lög um opinbera starfsmenn (nr. 94/1986).
Svarendur í vinnumarkaðsrannsókn eru sjálfir látnir meta
hvort þeir séu félagsmenn í stéttarfélagi eða ekki og þannig
er mæld stéttaifélagsþátttaka. Viðmiðunarvika byrjar á
laugardegi og er síðasta heila vikan áður en viðtal fer fram.
f fjórða kafla er fjallað um fiskiskipastól íslendinga.
Fiskiskipastóllinn samanstendur af opnum fiskibátum,
vélskipum og togurum. Opnir fiskihátar eru fiskibátar sem
ekki eru með heilt, vatnsþétt þilfar. Þilfarsskip eru skip sem
eru smíðuð með heilt, vatnsþétt þilfar stafna á milli sem
aðeins er rofið með vatnsþéttum yfirbyggingum. Þilfarsskip