Útvegur - 01.08.2003, Side 16
14
Aðferðir og hugtök
skiptast í togara annars vegar og vélskip hins vegar. Togarar
eru þilfarsskip sem eru útbúin til að veiða með botnvörpu og
draga vörpuna inn að aftan (öðru nafni skuttogarar) en
vélskip eru þilfarsskip önnur en togarar. Afl aðalvéla er
mælt í kílówöttum og rúmmál skips í brúttótonnum, mælt
sem heildarrúmtak allra lokaðra rúma skipsins í rúmmetrum,
margfaldað með ákveðnum stuðli. Meðalaldur og miðtala
aldurs reiknast útfrá smíðaári til viðmiðunarárs. Ekki er
miðað við dagsetningu sjósetningar heldur telst skip eins
árs í árslok næsta ár eftir smíðaár.
Við stærðarmælingu íslenska fiskiskipastólsins var notast
við mælieininguna brúttórúmlestir fram til ársins 1998 en
frá og með árinu 1999 hefur verið notast við brúttótonn.
Þetta leiðir til þess að ekki er hægt að bera saman stærð
skipa nema fimm ár aftur í tímann. Mælieiningarnar eru það
frábrugðnar hvor annari að sum skip stækka á meðan önnur
minnka.
I töflum þar sem fram kemur fjöldi skipa er miðað við
skráningamúmer en ekki nafn skips. Því telst hvert skip
aðeins einu sinni þrátt fyrir að það komi fram undir tveimur
eða fleiri nöfnum.
Vert er þó að hafa í huga þegar tafla 5.10 er skoðuð að alls
lögðu 1.523 skip upp afla á árinu 2002. Að teknu tilliti til
þess að skip flytjast milli landshluta við flutning milli
heimahafna á árinu og færast á milli kvótaflokka í byrjun
nýs fiskveiðiárs þá verður heildarfjöldinn 1.606 í stað
1.523.
15. kafla er gerð grein fyrir afla og aflaverðmæti íslenskra
fiskiskipa og í 6. kafla er fjallað um ráðstöfun aflans. I
Utvegi2002 er allt töfluverk 5. og 6. kafla í fyrsta sinn unnið
út frá öllum afla íslenskra skipa en ekki einvörðungu afla af
skilgreindum Islandsmiðum eins og gert er í fyrri útgáfum.
Hafa ber þetta í huga við samanburð tala úr eldri útgáfum
Utvegs. Allur afli í ritinu umreiknaður í óslægðan afla (fisk
upp úr sjó). Aukaafurðir em ekki teknar með í heildartölum,
heldur er birt ein tafla í 6. kafla um aukaafurðir eftir vinnslu
þeirra (tafla 6.11). Aflanum er skipt í botnfiskafla, flat-
fiskafla, uppsjávarafla, skel- og krabbadýraafla og annan
afla. Samkvæmt eðli máls flokkast botnfisktegundir undir
botnfiskafla, flatfiskar til flatfiskafla, uppsjávarfiskar til
uppsjávarafla og skel- og krabbadýr til skel- og krabba-
dýraafla. Til annars afla telst afli sem ekki getur flokkast í
fyrrgreinda flokka. Aflanum er ennfremur skipt upp eftir
veiðisvæðum, tegund löndunar, ástandi við löndun, tegund
vinnslu, tegund viðskipta, ráðstöfun, kvótaflokkum skipa,
heimahöfnum skipa, löndunarsvæðum og staðsetningu
kaupenda
Við landshlutaskiptingu aflans er notuð hefðbundin
landshlutaskipting Hagstofunnar:
Höfuðborgarsvæði: Reykjavík, Kópavogur, Garðabær,
Hafnarfjörður, Seltjamames.
Suðurnes: Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði,
Garður, Vogar, Hafnir.
Vesturland: Akranes, Hellissandur, Rif, Ólafsvík,
Grundarfjörður, Stykkishólmur, Hellnar, Borgarnes,
Amarstapi, Búðardalur, Flatey á Breiðafirði.
Vestfirðir: Reykhólar, Barðaströnd, Brjánslækur, Patreks-
fjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur, Þingeyri, Flateyri,
Suðureyri, Bolungarvík, Hnífsdalur, Isafjörður, Súðavík,
Strandir, Drangsnes, Hólmavík.
Norðurland vestra: Hvammstangi, Blönduós, Skaga-
strönd, Sauðárkrókur, Hofsós, Haganesvík, Siglufjörður.
Norðurland eystra: Ólafsfjörður, Grímsey, Hrísey, Dal vík,
Arskógssandur, Arskógsströnd, Hauganes, Hjalteyri,
Akureyri, Grenivík, Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn, Þórs-
höfn.
Austurland: Bakkafjörður, Vopnafjörður, Egilsstaðir,
Borgarfjörður eystri, Seyðisfjörður, Mjóifjörður, Neskaup-
staður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður,
Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Djúpivogur, Homafjörður.
Suðurland: Vík, Stokkseyri, Eyrarbakki, Selfoss,
Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn.
Landshlutaskipting miðast ýmist við heimahafnir skipa,
löndunarhöfn aflans, staðsetningu kaupanda hans eða
verkunarstað. Skv. 5. gr. laga nr. 115/1985 skal skrá í
skipaskrá Siglingastofnunar heimahöfn skips þar sem eigandi
eða leigutaki ætlar því heimilisfang. I töflum þ.s. upplýsingar
eru greindar eftir heimahöfnum skipa er afli reiknaður fyrir
hvem dag ársins og því tekið tillit til breytinga á heima-
höfnum einstakra skipa. Löndunarhöfn aflans er sú höfn þar
sem aflanum er landað og hann veginn. Verkunarsvœði og
verkunarstaður eru landsvæði eða staður þar sem afli er
verkaður. Afli sem unninn er í útlöndum er fluttur út
óunninn.
Staðsetning kaupanda miðast við staðsetningu þeirrar
vinnslustöðvar sem fær aflann en ekki skrifstofur eða
„höfuðstöðvar" ef þær eru annarsstaðar. Með kaupanda er átt
við þann sem kaupir afla af íslensku skipi, hvort sem aflinn er
keyptur á fiskmarkaði eða af eigin skipum (bein viðskipti).
Þegar afli er seldur áfram á milli vinnslustöðva er hins vegar
ekki hægt að fylgjast með löndunarhöfn hans og því er
ómögulegt að fylgja aflanum frá löndunarstað til vinnslustaðar.
Upplýsingar um vinnslustaði er að finna í 6. kafla.
I ritinu er afla íslenskra fiskiskipa skipt niður á Islandsmið,
norska lögsögu, rússneska lögsögu, Flæmingjagmnn og
önnur veiðisvæði. Með Islandsmiðum er átt við fiskveiði-
lögsöguna eins og hún er afmörkuð í reglugerð nr. 299 frá
15. júlí 1975. Með samningi um samstarf á s viði sjávarútvegs
milli íslands, Noregs og Rússlands frá árinu 1999 er
íslenskum skipum óheimilar veiðar í Barentshafi á því haf-
svæði sem nefnt hefur verið „Smugan“ en hinsvegar heimilar
innan norskrar lögsögu og rússneskrar lögsögu. Tekið er
tillit til þessa í ritinu. Flœmingjagrunn er hafsvæði austur
af Nýfundnalandi en íslensk rækjuskip hafa veitt þar á svo-
kölluðum „Flæmska hatti“. Onnur veiðisvæði skýra sig
sjálf. f töflum yfir heimsafla, sem birtar eru í 9. kafla, er
notast við hafsvæði sem skilgreind hafa verið af Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) t.d.
Norðaustur-Atlantshaf og Norðvestur-Atlantshaf.
í textahluta 5. kafla er viðskiptum með nokkrar fisk-
tegundir gerð skil. Bein viðskipti eiga sér stað þegar útgerð
selur afla beint til vinnslustöðvar. Gámaviðskipti eiga sér
stað þegar afli er seldur til útlanda og er landað ferskum í
gám sem sendur er til kaupandans. Innlendir markaðir
teljast viðskipti með afla þ.s. aflinn er seldur í gegnum
uppboðsmarkað innanlands og er unninn innanlands.
Greint er á milli tegunda löndunar eftir því hvar og
hvemig aflanum er landað, í hvaða ástandi aflinn er og til
hvaða nota hann er ætlaður. Löndunartegundir em eftir-
farandi: