Útvegur - 01.08.2003, Page 16

Útvegur - 01.08.2003, Page 16
14 Aðferðir og hugtök skiptast í togara annars vegar og vélskip hins vegar. Togarar eru þilfarsskip sem eru útbúin til að veiða með botnvörpu og draga vörpuna inn að aftan (öðru nafni skuttogarar) en vélskip eru þilfarsskip önnur en togarar. Afl aðalvéla er mælt í kílówöttum og rúmmál skips í brúttótonnum, mælt sem heildarrúmtak allra lokaðra rúma skipsins í rúmmetrum, margfaldað með ákveðnum stuðli. Meðalaldur og miðtala aldurs reiknast útfrá smíðaári til viðmiðunarárs. Ekki er miðað við dagsetningu sjósetningar heldur telst skip eins árs í árslok næsta ár eftir smíðaár. Við stærðarmælingu íslenska fiskiskipastólsins var notast við mælieininguna brúttórúmlestir fram til ársins 1998 en frá og með árinu 1999 hefur verið notast við brúttótonn. Þetta leiðir til þess að ekki er hægt að bera saman stærð skipa nema fimm ár aftur í tímann. Mælieiningarnar eru það frábrugðnar hvor annari að sum skip stækka á meðan önnur minnka. I töflum þar sem fram kemur fjöldi skipa er miðað við skráningamúmer en ekki nafn skips. Því telst hvert skip aðeins einu sinni þrátt fyrir að það komi fram undir tveimur eða fleiri nöfnum. Vert er þó að hafa í huga þegar tafla 5.10 er skoðuð að alls lögðu 1.523 skip upp afla á árinu 2002. Að teknu tilliti til þess að skip flytjast milli landshluta við flutning milli heimahafna á árinu og færast á milli kvótaflokka í byrjun nýs fiskveiðiárs þá verður heildarfjöldinn 1.606 í stað 1.523. 15. kafla er gerð grein fyrir afla og aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa og í 6. kafla er fjallað um ráðstöfun aflans. I Utvegi2002 er allt töfluverk 5. og 6. kafla í fyrsta sinn unnið út frá öllum afla íslenskra skipa en ekki einvörðungu afla af skilgreindum Islandsmiðum eins og gert er í fyrri útgáfum. Hafa ber þetta í huga við samanburð tala úr eldri útgáfum Utvegs. Allur afli í ritinu umreiknaður í óslægðan afla (fisk upp úr sjó). Aukaafurðir em ekki teknar með í heildartölum, heldur er birt ein tafla í 6. kafla um aukaafurðir eftir vinnslu þeirra (tafla 6.11). Aflanum er skipt í botnfiskafla, flat- fiskafla, uppsjávarafla, skel- og krabbadýraafla og annan afla. Samkvæmt eðli máls flokkast botnfisktegundir undir botnfiskafla, flatfiskar til flatfiskafla, uppsjávarfiskar til uppsjávarafla og skel- og krabbadýr til skel- og krabba- dýraafla. Til annars afla telst afli sem ekki getur flokkast í fyrrgreinda flokka. Aflanum er ennfremur skipt upp eftir veiðisvæðum, tegund löndunar, ástandi við löndun, tegund vinnslu, tegund viðskipta, ráðstöfun, kvótaflokkum skipa, heimahöfnum skipa, löndunarsvæðum og staðsetningu kaupenda Við landshlutaskiptingu aflans er notuð hefðbundin landshlutaskipting Hagstofunnar: Höfuðborgarsvæði: Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjamames. Suðurnes: Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði, Garður, Vogar, Hafnir. Vesturland: Akranes, Hellissandur, Rif, Ólafsvík, Grundarfjörður, Stykkishólmur, Hellnar, Borgarnes, Amarstapi, Búðardalur, Flatey á Breiðafirði. Vestfirðir: Reykhólar, Barðaströnd, Brjánslækur, Patreks- fjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík, Hnífsdalur, Isafjörður, Súðavík, Strandir, Drangsnes, Hólmavík. Norðurland vestra: Hvammstangi, Blönduós, Skaga- strönd, Sauðárkrókur, Hofsós, Haganesvík, Siglufjörður. Norðurland eystra: Ólafsfjörður, Grímsey, Hrísey, Dal vík, Arskógssandur, Arskógsströnd, Hauganes, Hjalteyri, Akureyri, Grenivík, Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn, Þórs- höfn. Austurland: Bakkafjörður, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Borgarfjörður eystri, Seyðisfjörður, Mjóifjörður, Neskaup- staður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Djúpivogur, Homafjörður. Suðurland: Vík, Stokkseyri, Eyrarbakki, Selfoss, Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn. Landshlutaskipting miðast ýmist við heimahafnir skipa, löndunarhöfn aflans, staðsetningu kaupanda hans eða verkunarstað. Skv. 5. gr. laga nr. 115/1985 skal skrá í skipaskrá Siglingastofnunar heimahöfn skips þar sem eigandi eða leigutaki ætlar því heimilisfang. I töflum þ.s. upplýsingar eru greindar eftir heimahöfnum skipa er afli reiknaður fyrir hvem dag ársins og því tekið tillit til breytinga á heima- höfnum einstakra skipa. Löndunarhöfn aflans er sú höfn þar sem aflanum er landað og hann veginn. Verkunarsvœði og verkunarstaður eru landsvæði eða staður þar sem afli er verkaður. Afli sem unninn er í útlöndum er fluttur út óunninn. Staðsetning kaupanda miðast við staðsetningu þeirrar vinnslustöðvar sem fær aflann en ekki skrifstofur eða „höfuðstöðvar" ef þær eru annarsstaðar. Með kaupanda er átt við þann sem kaupir afla af íslensku skipi, hvort sem aflinn er keyptur á fiskmarkaði eða af eigin skipum (bein viðskipti). Þegar afli er seldur áfram á milli vinnslustöðva er hins vegar ekki hægt að fylgjast með löndunarhöfn hans og því er ómögulegt að fylgja aflanum frá löndunarstað til vinnslustaðar. Upplýsingar um vinnslustaði er að finna í 6. kafla. I ritinu er afla íslenskra fiskiskipa skipt niður á Islandsmið, norska lögsögu, rússneska lögsögu, Flæmingjagmnn og önnur veiðisvæði. Með Islandsmiðum er átt við fiskveiði- lögsöguna eins og hún er afmörkuð í reglugerð nr. 299 frá 15. júlí 1975. Með samningi um samstarf á s viði sjávarútvegs milli íslands, Noregs og Rússlands frá árinu 1999 er íslenskum skipum óheimilar veiðar í Barentshafi á því haf- svæði sem nefnt hefur verið „Smugan“ en hinsvegar heimilar innan norskrar lögsögu og rússneskrar lögsögu. Tekið er tillit til þessa í ritinu. Flœmingjagrunn er hafsvæði austur af Nýfundnalandi en íslensk rækjuskip hafa veitt þar á svo- kölluðum „Flæmska hatti“. Onnur veiðisvæði skýra sig sjálf. f töflum yfir heimsafla, sem birtar eru í 9. kafla, er notast við hafsvæði sem skilgreind hafa verið af Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) t.d. Norðaustur-Atlantshaf og Norðvestur-Atlantshaf. í textahluta 5. kafla er viðskiptum með nokkrar fisk- tegundir gerð skil. Bein viðskipti eiga sér stað þegar útgerð selur afla beint til vinnslustöðvar. Gámaviðskipti eiga sér stað þegar afli er seldur til útlanda og er landað ferskum í gám sem sendur er til kaupandans. Innlendir markaðir teljast viðskipti með afla þ.s. aflinn er seldur í gegnum uppboðsmarkað innanlands og er unninn innanlands. Greint er á milli tegunda löndunar eftir því hvar og hvemig aflanum er landað, í hvaða ástandi aflinn er og til hvaða nota hann er ætlaður. Löndunartegundir em eftir- farandi:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Útvegur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.