Útvegur - 01.08.2003, Side 18
16
Aðferðir og hugtök
• Verkað innanlands. Afli sem er verkaður innanlands er
samtala afla sem er landaður „til vinnslu innanlands" og
afla sem fer á „markað til vinnslu innanlands".
• Þar af í heimahöfn. Hér er átt við afla sem verkaður er
innanlands en er landaður og unninn í heimahöfn. Með
heimahöfn er átt við heimahafnir skipanna sem landa
aflanum. Við útreikning á þessum afla er tekið tillit til
tilfærslu skipa milli hafna með því að reikna aflann fyrir
hvem dag ársins.
• Landað unnið. Afli sem er landaður unninn er samtala
afla sem landaður er „sjófrystur", „sjófrystur til endur-
vinnslu innanlands" og „sjósaltaður".
• Landað erlendis. Afli sem er landaður erlendis er samtala
afla sem er „seldur úr skipi erlendis" og afla sem er
„landað erlendis til bræðslu“.
• Gámafiskur. Gámafiskur er afli sem landaður er „í gáma
til útflutnings" og afli sem fer „á markað, í gáma til út-
flutnings".
I 5. kafla er afla íslenskra fxskiskipa skipt niður á kvóta-
flokka skipanna. Kvótaflokkamir eru skilgreindir í lögum
nr. 38/1990 um stjóm fiskveiða. Flokkamir eru: togarar,
skip með aflamark, smábátar með aflamark, smábátar með
sóknardaga og krókaaflamarksbátar.
Osamræmi er milli einstakra taflna um afla í fimmta og
sjötta kafla. Þetta stafar af því að töflumar era unnar úr
tveimur meginskrám (vigtarskýrslum og ráðstöfunar-
skýrslum). Mismunur milli þessara tveggja skráa er tæknilegs
eðlis og má segja að hann stafi af eftirfarandi:
a) I ráðstöfunarskýrslunum er miðað við vinnslustað en
ekki löndunarstað afla. Þegar fyrsti kaupandi fisks selur
hluta aflans í annað sveitarfélag kemur fram misræmi
milli gagna úr vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum.
Dæmi: Vinnslustöð í Grindavík kaupir 10 tonn af bát.
Þau viðskipti eru skráð á kaupandann í Grindavik. Ef
hann selur síðan t.d. vinnslustöð í Keflavík 2 tonn af
þessum afla, skráist vinnslan á þessum tveimur tonnum í
Keflavík. Þetta hefur í för með sér að í ráðstöfunarskýrslu
er skráður afli bæði í Grindavík (8 tonn) og í Keflavík (2
tonn). Viðskiptin milli upphaflegs kaupanda og báts (10
tonn) sem fram koma í vigtarskýrslu eru hins vegar
eingöngu skráð í Grindavík.
b) Hafi afla ekki verið ráðstafað í ákveðna vinnslu er hann
talinn til birgða um mánaðamót. Því kemur fram mismunur
milli þessara skráa í samanburði á mánuðum og stafar það
af birgðabreytingum.
c) Tilfærsla milli tegunda getur orðið við að afli er ekki
vandlega tegundagreindur. Við vigtun koma stundum í
ljós tegundir sem ekki eru skráðar í viðskiptum báts og
stöðvar. Oftast er um óveralegt magn að ræða.
d) í einstaka tilfellum verður rýrnun á magni frá frumsölu til
vinnslu.
e) Afli er í flestum tilfellum skráður í tonnum og verð í
þúsundum króna. Einhver munur kemur fram þegar tölur
era hækkaðar eða lækkaðar í næstu heilu tölu.
í 7. kafla er gerð grein fyrir útflutningi sjávarafurða.
Upplýsingar um útfluttar sjávarafurðir koma frá Utanríkis-
verslunardeild Hagstofunnar. Þar hefur verið unnið að
endurskoðun og breytingum á því flokkunarkerfi sem lagt
er til grundvallar. Tölur yfir útflutning sem birtar era í
Útvegi eru hinar sömu og Utanríkisverslunardeildin birtir.
Samkvæmt þessari flokkun eru niðursoðnar sjávarafurðir
nú flokkaðar sem iðnararvara. Þessi endurskoðun þýðir að
töflur 7.4 og 7.5 (á geisladiski) innihalda ekki upplýsingar
um sjávarafurðir í loftvörðum umbúðum. Einnig gildir að
upplýsingar um árin 2001 og 2002 í töflu 7.3, myndum 7.1-
7.3 og mynd 7.9, eru unnar skv. þessari breyttu skilgreiningu.
Fyrir þá sem kynnu að sakna þess að niðursoðnar sjávar-
afurðir eru undanskildar, skal bent á að í töflum 7.1 og 7.2
er sérstakur dálkur þar sem gerð er grein fyrir magni og virði
niðursoðinna afurða aftur til ársins 1979. Samtölur þessarra
taflna eru því aðrar, en í töflum 7.3-7.5, fyrir árin 2000 til
2001. Stefnt er að því að flokka eldri gögn með þessari nýju
aðferð og verða töflur þá endurskoðaðar m.t.t. þess. I 7.
kafla er einnig greint frá útflutningi sjávarafurða í loftþéttum
umbúðum og upplýsingar birtar eftir löndum fyrir árin 2001
og 2002 sem og samsvarandi upplýsingar fyrir afurðir úr
fiskeldi. Þessar töflur (7.6 og 7.7) eru birtar á geisladiski.
Upplýsingar um afla erlendra skipa sem landað var til
vinnslu hérlendis eru birtar í töflum 8.1-8.7. Aftur á móti
eru afurðir úr þessu innflutta hráefni taldar með í töflum um
útflutning sjávarafurða í 7. kafla.
I kafla 9 er greint frá heimsafla. Hér að framan er greint
frá þeirri veiðisvæðaflokkun sem gengið er út frá í þessum
kafla. Þess ber þó að geta að töflur sem greina frá veiði
erlendra skipa á hafsvæðinu við Island og hafa að venju
verið í Útvegi, era ekki birtar í þessu riti þar sem Alþjóða
hafrannsóknarráðinu (ICES), sem safnarm.a. upplýsingum
um afla erlendra ríkja við Island, hafa ekki borist tæmandi
upplýsingar um veiði allra þeirra þjóða sem stunda veiðar
á svæðinu.
Framsetning efnis er með sama sniði og í Útvegi 2001.
Allar samtölur era feitletraðar fremst og efst á síðum. Þetta
verður til þess að fyrstu tölumar sem birtast eru samtalstölur
en þær era síðan brotnar niður til hægri á síðunni og ofan frá
og niður úr. Ritið er samansett af 9 köflum sem allir
innhalda texta og töflur. Textinn er studdur myndum sem
auðvelda lesandanum að glöggva sig á þróun, t.d. í veiðum
ákveðinnar fisktegundar o.s.frv. yfir nokkurra ára tímabil.
I töflum er síðan nánari útlistun á efni kaflanna.
1.3 Geisladiskur
1.3 CD-ROM
Sem fyrr býðst notendum Útvegs að fá efni ritsins á geisla-
diski. Geisladiskur auðveldar alla vinnslu með gögn þar
sem töflumar era á Excel-formi.
A geisladisknum eru allar sömu upplýsingar og í bókinni
auk mikils magns viðbótarupplýsinga.
I 5. kafla eru auk þeirra taflna, sem eru í bókinni, töflur
um afla og aflaverðmæti eftir tegund löndunar niður á
mánuði og tafla um meðalverð afla eftir tegund löndunar
niðurá mánuði. Nýmæli erað í5. kaflaeru töflursem greina
frá afla eftir kvótaflokkum skipa, heimahöfnum og fisk-
tegundum (5.11) og afla eftir fisktegundum og mánuðum
(5.20) þar sem búið er að brjóta upplýsingar niður á einstaka
staði landsins. Einnig eru þar töflur um afla allra skipa,
vélskipa, togara, opinna fiskibáta og rannsóknarskipa eftir
veiðarfærum, tegundum og mánuðum. Loks er að finna
töflu um afla og aflaverðmæti einstakra skipa.