Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 35

Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 35
Alþingiskosningar 1995 33 í 4. mgr. 115. gr. segir: „Framboðslisti í kjördæmi, sem hlotið hefur þingmann eða þingmenn kjöma. hefur rétt til jafnmargra varaþingmanna meðan nöfn endast á listanum.“ í töflu 4 er sýnt hvernig kjördæmistala er reiknuð skv. 111. gr. kosningalaga eftir alþingiskosningamar 1995. Sést þar að í öllum kjördæmum hefur orðið að fella brott atkvæðatölur lista vegna þess að þær námu minna en 2/3 kjördæmis- tölunnar, oftast á Suðurlandi, fimm sinnum, fjómm sinnum áVesturlandi.þrisvaráReykjanesi, Vestfjörðum,Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi og tvisvar í Reykja- vík. Auk kjördæmistölunnar í síðasta töludálki hvers kjördæmis em sýndar lágmarksatkvæðatölur þær sem getið er hér að framan í síðari mgr. 111. gr. og í 1. mgr. 113. gr. í töflu 5 er sýnd úthlutun þingsæta eftir úrslitum í kjör- dæmum samkvæmt 111. gr. kosningalaga. Samkvæmt 3. tölulið 1. mgr. á að úthluta eftir henni að minnsta kosti 3/4 hlutum þeirra sæta sem koma í hlut kjördæmis samkvæmt auglýsingu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem áður var getið. Þess vegna koma til úthlutunar eftir 111. gr. 15 sæti í Reykjavík, 10 á Reykjanesi, 5 á Norðurlandi eystra og Suðurlandi og 4 í hverju hinna kjördæmanna, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi. Eru þetta alls 50 sæti, en 13 sætum er þá enn óúthlutað. Fyrir hvert kjördæmi eru sýndar atkvæðatölur listanna, í upphafi og eftir að kjördæmistala hefur verið dregin frá svo oft sem reikna þarf til þess að úthlutun þingsætanna liggi ljós fyrir. Þar á eftir er sýnd úthlutunarröð þingsæta samkvæmt atkvæðatölum. Sjálfstæðisflokkur hlaut flest þingsæti í þessari úthlutun, 21, Framsóknarflokkur 15, Alþýðubandalag og óháðir 7, Alþýðuflokkur 5 og Þjóðvaki og Kvennalisti 1 þingsæti hvor. Kristileg stjórnmálahreyfmg, Náttúrulaga- flokkur, Suðurlandslistinn og Vestfjarðalistinn hlutu ekki þingsæti. Við úthlutun þingsæta samkvæmt kosningaúrslitum skal skv. 3. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar gæta þess svo sem 9. Breytingar á framboðslistum Changes in candidate lists Samkvæmt 84. gr. kosningalaga er kjósanda heimilað að breyta röð frambjóðenda á þeim lista er hann kýs með því að rita tölustafinn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir framan það nafn sem hann vill hafa annað í röðinni o. s. frv. Vilji kjósandi hafna frambjóðanda á þeim listasemhannkýs strikarhannyfirnafnhans. Frambjóðandinn hlýtur þá ekkert atkvæði af þeim seðli en þeir sem neðar standa á listanum færast upp um sæti. í 2. og 3. mgr. 115. gr. segir síðan hvemig finna skal hverjir frambjóðendur hafi náð kosningu á hverjum lista í kjördæmi. Reikna skal frambjóðendum atkvæðatölu á eftirfarandi hátt: „Yfirkjörstjórn tekur saman þá kjörseðla þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv. Næst tekur yfirkjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverjarbreytingar áröð frambjóðanda og telur atkvæði hvers frambjóðenda í hvert sæti listans. Landskjörstjóm skal raða nöfnurn frambjóðenda á hverjum kostur er að hver þingflokkur fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína. Er þá heimilt að úthluta allt að fjórðungi þingsæta hvers kjördæmis, þeim sem bundin em og þeim sem ráðstafað er fyrir kosningar, með hliðsjón af kosningaúrslitum á landinu öllu. Úthlutun þingsæta til landsframboða eftir úrslitum á landinu öllu, samkvæmt 112. gr. kosningalaga, er sýnd í töflu 6. Sjálfstæðisflokkur hlaut 4 sæti, Þjóðvaki 3 sæti en Alþýðu- flokkur, Alþýðubandalag og óháðir og Kvennalisti 2 sæti hver. Til þess að ráðstafa þessum 13 þingsætum þarf fyrst að reikna kjördæmistölu að nýju samkvæmt 2. mgr. 113. gr. kosningalaga. Sá reikningur er sýndur í töflu 7. Úthlutun þingsæta samkvæmt 113.gr. kosningalaga skiptist þannig á áfangana sem ákveðnir eru í 3. mgr.: 6 sætum var úthlutað í fyrsta áfanga, 3 í öðmm og 4 í þriðja áfanga. í töflu 8 er sýnt hvernig þingsætum var úthlutað sam- kvæmt 113. gr. I 20. yfirliti er sýnd tala þingsæta sem hvert landsframboð hlaut í hverju kjördæmi, í heild og eftir úthlutunarreglum 111. og 113. gr. Alls hlaut Sjálfstæðis- flokkur 25 þingsæti, Framsóknarflokkur 15, Alþýðubandalag og óháðir 9, Alþýðuflokkur 7, Þjóðvaki 4 og Kvennalisti 3 þingsæti. í töflu 6 sést hve mörg atkvæði reyndust að baki hverju þingsæti landsframboðanna. Að lokinni úthlutun allra þing- sæta eru flest atkvæði að baki þingmanna Þjóðvaka, 2.952. Alþýðuflokkur hefur 2.692 atkvæði að baki hverjum þing- manni, Kvennalisti 2.677, Alþýðubandalag og óháðir 2.622, Framsóknarflokkur 2.566 og Sjálfstæðisflokkur 2.447. Að lokinni úthlutun þingsæta samkvæmt 111. grein kosningalaga voru fæst atkvæði að baki hverjum þingmanni Framsóknarflokks, 2.566. Þegar lokið var úthlutun allra þingsæta átti ekkert landsframboðanna óúthlutað sæti með hærri atkvæðatölu að baki. Náðist því fullur jöfnuður milli þeirra við úthlutun þingsæta. Það gerðist einnig í kosningunum 1991. lista þannig að sá sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti, samkvæmt næstu málsgrein hér á undan, hlýtur það sæti. Sá frambjóðandi, að þessum slepptum, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt, hlýtur 2. sætið o. s. frv. uns raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans að ljóst sé hverjir teljast þingmenn hans í kjördæminu og hverjir varaþingmenn." Reglur þessar eru allt aðrar en þær sem giltu frá hausti 1959 til 1983. Samkvæmtþeimreglumskyldireiknaframbjóðanda atkvæðatölu að tveim þriðju hlutum eins og engin breyting hefði verið gerð á listanum, en að einum þriðja hluta eftir listanum að teknu tilliti til breytinga. Fyrsta sæti á lista hlaut atkvæðatölu listans, hvert sæti er á eftir fór hlaut það brot af þessari atkvæðatölu að í teljara væri tala þeirra þingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti, að frádreginni tölu þeirra sæta semáundanvoruá listanum, og í nefnara tala þeirra þingm anna og varaþingmanna sem kjósa átti. Fram til sumars 1959 var atkvæðatala frambjóðendareiknuð

x

Alþingiskosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.