Fréttablaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 26
Hljóðið í fossinum þegar vatnið fellur á klappirnar ómar stöðugt um allt húsið. Húsið að innan er hannað út frá arninum sem Wright sá fyrir sér að yrði aðalsam- komustaður fjölskyld- unnar Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Húsið sem stendur á klöppum á náttúruverndarsvæðinu Bear Run var upprunalega hugsað sem helgarheimili fyrir viðskiptajöfurinn og verslunar- eigandann Edgar Kaufmann og fjölskyldu hans. Fjölskyldan var vön að fara reglulega í frí að foss- inum og óskaði eftir því við Wright að hanna hús sem stæði á móti fossinum svo þau hefðu útsýni yfir hann. Wright aftur á móti ákvað að hanna húsið ofan á fossinum sjálfum og gera hann þannig að hluta af húsinu. Wright hafði lengi verið aðdáandi japanskrar byggingar- listar sem veitti honum innblástur við hönnun Fallingwater-hússins. Wright vildi skapa samspil milli mannsins og náttúrunnar og hafði það að leiðarljósi við hönnunina. Hljóðið í fossinum þegar vatnið fellur á klappirnar ómar stöðugt um allt húsið. Húsið að innan er hannað út frá arninum sem Wright sá fyrir sér að yrði aðalsamkomu- staður fjölskyldunnar. Klettur úr berginu brýst inn í arininn og gerir þannig náttúruna fyrir utan hluta af húsinu að innan. Öll hönnun innanhúss minnir á náttúruna í kring. Frá stofunni eru tröppur sem liggja beint út í fossinn fyrir neðan sem fjölskyldan nýtti sér oft til að dýfa sér í ána á heitum sumardögum. Það er lágt til lofts í herbergjum hússins til þess að augu fólk beinist út í átt að nátt- úrunni frekar en að leita upp á við. Utanhúss eru stórar svalir á nokkrum hæðum sem raðast upp líkt og klappirnar sem fossinn fellur niður um. Þessi hönnun á svölunum gerir það að verkum að húsið fellur einstaklega vel að náttúrunni. Húsið er að mestu byggt úr steinsteypu en einnig úr sandsteini frá náttúrunni í kring. Húsið er tæpir 1.700 fermetrar en árið 1939 var bætt við rúmlega 500 fermetra gestahúsi. Árið 2000 var Fallingwater valin fallegasta bygging 20. aldarinnar af samtökum bandarískra arki- tekta. Í dag er húsið friðað. Það er í eigu minjastofnunar í Pennsylvan- íu en sonur Kaufmann-hjónanna gaf stofnuninni húsið árið 1964. Í dag heimsækja hátt í 200 þúsund ferðamenn húsið árlega. Gestir geta fengið leiðsögn um húsið og gestafjöldi er takmarkaður. Stórkostlegt hús sem stendur á fossi Fallingwater er hús í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hannað af arkitektinum Frank Lloyd Wright árið 1935. Húsið þykir sérstakt því að það stendur að hluta til ofan á fossi sem fellur undir því. Húsið var valið fallegasta bygging 20. aldarinnar. NORDICPHOTOS/GETTY ÍSTAK er að verða 50 ára á næsta ári og er fyrst og fremst þekkt fyrir stórframkvæmdir eins og virkjanir, jarðgöng og stórar byggingar, en samhliða því hefur fyrirtækið líka sinnt stórum viðhalds- og endurbóta- verkefnum, m.a. á sendiráðum, Hallgrímskirkju, Alþingishúsinu, Bessastöðum og f leiri slíkum byggingum,“ segir Hermann Guðmundsson, verkefnastjóri viðhaldsþjónustu ÍSTAKS. „Fyrir tveimur árum stofn- uðum við svo sérstaka deild utan um slík verkefni og höfum sótt á þann markað samhliða stórfram- kvæmdunum,“ segir Hermann. „Það var bæði vegna þess að það var talið henta fyrirtækinu vel að víkka út starfsemina og vegna þess að það var þörf fyrir traustan verktaka á fasteignaviðhalds- markaði, en fagaðilar í fasteigna- rekstri eru helstu viðskiptavinir okkar. Þetta er sjálfstæð deild innan fyrirtækisins, sem tryggir lipurð og sveigjanleika,“ segir Hermann. „ÍSTAK er þekktast fyrir stórfram- kvæmdir en við þjónustum við- skiptavini líka með margt smátt.“ Í samstarfi við verkfræðistofur „Til að auka enn sérstöðu okkar og bæta þjónustu okkar til við- skiptavina höfum við svo sérhæft okkur í rakaskemmdum og myglu,“ segir Hermann. „Verk- fræðistofur hafa hvatt okkur til að koma inn á þann markað og við sjáum að mörg viðhaldsverkefni, sérstaklega þau sem eru tilkomin vegna skorts á viðhaldi, tengjast rakaskemmdum. Þá þarf sérhæfð vinnubrögð til að leysa úr mál- unum og lagfæra skemmdirnar. Við höfum átt í mjög góðu samstarfi við stóru verkfræði- stofurnar varðandi svona vinnu og höfum unnið verkefni tengd rakaskemmdum þar sem grunur var um myglu fyrir sveitarfélög og stofnanir, meðal annars í húsnæði Varmárskóla í Mosfellsbæ,“ segir Hermann. Við höfum fylgt verkferlum þessara verkfræðistofa, þar sem það er enginn samræmdur staðall í gildi hér á landi um hvernig eigi að vinna við þessar aðstæður,“ segir Hermann. „Við höfum skoðað erlenda staðla og rætt við verkfræðistofurnar um hvaða stöðlum sé best að fylgja og hvaða verkferlar eigi að vera í gildi í svona verkefnum. Við vinnum líka gæðaúttektir og gæðaeftirlit út frá þessum verkferlum.“ Stöðug fræðsla og góð reynsla „Til að verða sérfræðingar í við- gerðum á rakaskemmdum höfum við þjálfað mannskapinn okkar og erum stöðugt með hann í þjálfun,“ segir Hermann. „Við rekum fræðslueiningu innan ÍSTAKS þar sem boðið er upp á ýmis námskeið fyrir starfsfólk um vinnubrögð við viðgerðir á myglu- og rakaskemmdum auk ýmissa námskeiða sem tengjast byggingastarfsemi almennt. Við höfum líka komið okkur upp sérhæfðum tækjum, því það þarf að búa til ákveðnar aðstæður þegar það er verið að gera við raka- eða mygluskemmdir og setja upp góðar varnir fyrir bæði umhverfi og mannskap,“ segir Hermann. „Við tókum þá afstöðu að ganga alla leið í þessum verkefnum, taka þetta alvarlega og tryggja öryggi okkar og okkar viðskiptavina. Eftir að hafa unnið nokkur svona verkefni hefur orðið til þekking innan fyrirtækisins um hvernig eigi að meðhöndla svona verkefni og hún nýtist okkur í öllum verkefnum, hvort sem það er í viðhaldi eða nýbyggingum,“ segir Hermann. Sérfræðingar í rakaskemmdum Fyrir tveimur árum stofnaði ÍSTAK sérstaka deild til að sjá um viðhald á fasteignum. Deildin hefur sérhæft sig í viðgerðum á skemmdum vegna raka og myglu og er nú komin með góða reynslu. Það þarf að búa til sérstakar aðstæður þegar gert er við raka- eða myglu- skemmdir og setja upp góðar varnir fyrir bæði umhverfi og mannskap. MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON Hermann Guðmundsson, verkefna- stjóri viðhaldsþjónustu, og Stein- dór Gunnar Magnússon, verkefna- stjóri raka- og mygluteymis ÍSTAKS. ÍSTAK býr yfir mikilli sérfræðikunn- áttu varðandi viðgerðir á raka- skemmdum og myglu. Til að auka enn sérstöðu okkar og bæta þjónustu okkar til viðskiptavina höfum við svo sérhæft okkur í rakaskemmdum og myglu. 6 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RVERKFRÆÐI OG ARKITEKTÚR 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 D -7 C F 0 2 4 1 D -7 B B 4 2 4 1 D -7 A 7 8 2 4 1 D -7 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.