Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 28

Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 28
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 limtrevirnet.is Íslenskar einingar fyrir íslenskt veðurfar Hjá Límtré Vírnet færðu hinar einu og sönnu Yleiningar - stálsamlokueiningar með steinullareinangrun á milli. Hagkvæm, umhverfisvæn og myglufrí byggingarlausn. Stuttur afgreiðslufrestur. Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is. Söluskrifstofur - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Netfang - sala@limtrevirnet.is Andri segir Límtré Vírnet vinna samkvæmt metn-aðarfullri framtíðarsýn. „Áherslur fyrirtækisins eru á sjálf bærni og samfélagslega ábyrgð í byggingariðnaðinum,“ segir Andri. Þá er fyrirtækið nú að taka inn umhverfisvænt litað stál sem framleitt er í Svíþjóð (Green- Coat). Hann segir mikla eftir- væntingu og vonir bundnar við þessa nýju vöru, sem sé umhverf- isvæn og afurð umfangsmikillar vinnu og rannsókna undanfarinn áratug. Repjuolía notuð í stað jarðefnaeldsneytis „Varan byggir á svokallaðri „bio- based“ tækni sem framleiðandinn SSAB hefur tryggt sér einkaleyfi á. Þetta er umhverfisvænt klæðn- ingarefni sem er nýtt á markað- inum. Framleiðandinn hefur síðastliðin tíu ár lagt í umtals- verða rannsóknar- og þróunar- vinnu á þessari lausn,“ útskýrir Andri. „Þetta er litað stál, og hingað til hefur málningin verið framleidd úr jarðefnaeldsneyti en núna hefur framleiðandinn þróað aðferð til þess að nota repjuolíu í staðinn. Þeir eru, að stærstum hluta, búnir að skipta jarðefna- eldsneyti út fyrir repjuolíu,“ segir Andri. ,,Þetta er byltingar- kennd aðferð sem gerir vöruna að umhverfisvænni kosti. Mikil ábyrgð liggur hjá þeim sem sjá um innkaupin á vörum í byggingar- iðnaðnum, því hvert einasta skref – í átt að sjálf bærni og samfélags- ábyrgð – skiptir máli,“ segir Andri. Stálið er bæði notað í klæðn- ingar á þök og veggi og einnig til framleiðslu á steinullareiningum sem fyrirtækið framleiðir í nýrri verksmiðju á Flúðum. Stein- ullareiningarnar er hægt að nota meðal annars í vöruhús, f lugskýli, reiðhallir, iðnaðar- og verslunar- húsnæði sem og landbúnaðar- byggingar fyrir bændur. Andri segir kostina við stein- ullareiningar af þessu tagi ótalmarga. „Þær hafa af bragðs burðarþol sem gerir það að verk- um að hægt er að nota þær á léttar burðargrindur – það getur dregið úr byggingarkostnaði. Þá eru þær einnig raka- og vindþéttar ásamt því að hafa mikla brunamótstöðu og gott hljóðeinangrunargildi,“ segir hann. „Þær bjóða upp á góða einangrun og eru bæði auðveldar í uppsetningu og þrifum.“ Fjölþætt þjónusta Starfsemi fyrirtækisins er marg- þætt og fjölbreytt. „Við erum með byggingadeild á Lynghálsi 2. Við bjóðum upp á alhliða þjónustu, til dæmis fyrir verktaka. Þar sjáum um hönnunina og framleiðum vörurnar. Við erum í grunninn framleiðslufyrirtæki en við erum einnig með hönnunardeild. Hún sér um að hanna og teikna, veita ráðgjöf og þjónustu,“ segir Andri. „Við erum með teymi af verk- fræðingum og tæknifræðingum sem sjá um allar teikningar, skila þeim inn til byggingarfulltrúa og þess háttar. Við erum því ekki einungis að framleiða hrávörur, heldur erum við einnig með alhliða þjónustu þegar kemur að byggingum,“ segir Andri. „Helstu viðskiptavinir okkar eru bændur, verktakar, sveitar- félög og fyrirtæki. Eiginlega öll f lóran en mest „business to Stálheiðarleg framleiðsla með áherslu á sjálfbærni Límtré Vírnet sér um allt það helsta sem þarf til þess að hanna og búa til byggingar. Andri Daði Aðalsteinsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs, segir mikla eftirvæntingu um þessar mundir eftir umhverfisvænni stálklæðningu sem sé væntanleg á markaðinn. Andri Daði Aðalsteinsson, forstöðumaður sölu- og mark- aðssviðs, hjá Límtré Vírneti. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Eitt af verkefnum Límtrés Vírnets. business“, minnst einstaklingar, þótt það séu auðvitað alltaf ein- staklingar á bak við öll verkefni.“ Áratuga reynsla og þekking Límtré Vírnet var stofnað sem slíkt árið 2005 en sagan nær þó lengra og kemur úr ýmsum áttum. „Fyrir- tækið er afurð samruna margra fyrirtækja, og á rætur að rekja allt til ársins 1956,“ segir Andri. „Upp- haflega gekk reksturinn út á fram- leiðslu á nöglum í Borgarnesi.“ Andri segir verðmæti fyrir- tækisins ekki síst liggja í hugviti og yfirgripsmikilli reynslu. „Öll þekk- ingin og reynslan sem hefur byggst upp í fyrirtækinu er orðin gríðar- lega mikil. Svo erum við íslenskt framleiðslufyrirtæki þannig að stærstur hluti af því sem við bjóðum er innlend framleiðsla.“ Fyrirtækið leggi ríka áherslu á að velja hráefni á ábyrgan hátt með sjálf bærni að leiðarljósi. „Við sýnum mjög mikla ábyrgð í inn- kaupum á hráefnum, eins og til dæmis allt timbur sem við notum í límtré er einungis keypt af fram- leiðendum í Svíþjóð sem stunda sjálf bærni í skógrækt. Sama með steinullina sem við notum í einingarnar, hún kemur öll að norðan, sem gerir þetta eflaust að einni umhverfisvænstu steinullinni í heiminum í dag. Stálið sem við kaupum frá Svíþjóð er með umhverfisvænni stál- klæðningum sem fást á markaði. Við tökum þetta mjög alvarlega,“ segir Andri. Þá er ýmislegt á dagskrá og nefnir Andri sérstaklega kynningu frá sænska stálfyrirtækinu SSAB. „Við erum að fá aðila frá þessu fyrirtæki, SSAB, til landsins næsta miðvikudag, og við ætlum að vera með kynningu á umhverfisvæna stálinu hérna hjá okkur á föstu- daginn í næstu viku. Kynningin er hugsuð fyrir hönnuði, verkfræð- inga, arkitekta og aðra sem starfa í þessum geira og kjósa að velja umhverfisvænni kosti. Hágæðastál með minna kolefnisspori. Hljómar það ekki vel?“ Fjallakofi í Svíþjóð með GreenCoat klæðningu. Mikil ábyrgð liggur hjá þeim sem sjá um innkaupin á vörum í byggingariðn- aðnum, því hvert einasta skref – í átt að sjálf bærni og samfélagsábyrgð – skiptir máli. Andri Daði Aðalsteinsson 8 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RVERKFRÆÐI OG ARKITEKTÚR 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 D -9 0 B 0 2 4 1 D -8 F 7 4 2 4 1 D -8 E 3 8 2 4 1 D -8 C F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.