Fréttablaðið - 30.10.2019, Side 31
Ég hef verið hrædd-
ur við að kaupa
stærri fyrirtæki.
Það er auðvelt að
verða af aurum api.
Baltnesku löndin hafa verið framsækin í tölvuvæðingu. Þau byrjuðu á núllpunkti og eru ef til vill komin örlítið lengra á mörgum sviðum en við varðandi nýtingu upplýsingatækni, segir Jón Helgi Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
á heimamarkaði. Meðal annars
til Depo, stærstu byggingavöru-
verslanakeðju Lettlands. Ég kom
að stofnun verslanakeðjunnar árið
2005 ásamt baltneskum fjárfesting-
arsjóði og stjórnendum Depo. Fyrir
nokkrum árum vildi fjárfestingar-
sjóðurinn selja hlut sinn og ég ákvað
að selja á sama tíma. Reksturinn
gekk vel, þetta var mjög arðbær
fjárfesting.
Stór gluggaverksmiðja heyrir
einnig undir Byko Lat. Hún selur
fyrst og fremst til Bretlands en líka
töluvert til Íslands og nokkurt magn
til Svíþjóðar. Sú verksmiðja hefur
gengið vel. Auk þess framleiðum
við einingahús. Töluvert af eininga-
húsum hefur verið selt til Íslands.
Þriðja verksmiðjan er CED. Þar er
framleitt margvíslegt úr timbri fyrir
garða, eins og húsgögn, tröppur og
jafnvel sundlaugar. Stór hluti af
sölunni fer til Frakklands, þetta er
álitleg starfsemi,“ segir hann.
Höfn í Bretlandi
Jón Helgi bendir á að Norvik hafi
einnig lagt hafnarstarfsemi, sem
gekk áður undir nafninu Continen-
tal Wood, inn í Bergs Timber. Eftir
samrunann ber félagið nafnið Bergs
UK. „Þetta er öf lug grófvöruhöfn
sem annast aðallega stál og timbur.
Við keyptum hana fyrir nokkrum
árum en vorum áður með hana á
leigu.
Höfnin sinnir fyrst og fremst
öðrum viðskiptavinum en minna
þeim fyrirtækjum sem heyra undir
okkar samstæðu. Um 75 prósent af
veltunni má rekja til þriðja aðila.
Fyrirtækið annast líka dreifingu
fyrir viðskiptavini hafnarinnar.
Það fara um 80 skip á ári í gegnum
hana, það eru heilmikil umsvif.
Félagið á eitt skip og siglir reglu-
bundið á milli Riga og Bretlands.
Leiguskipum er bætt við eftir þörf-
um en við þjónustum fjölda ann-
arra skipa en þau sem eru á okkar
vegum,“ segir hann.
Jón Helgi segir að ákveðið hafi
verið að hefja rekstur hafnar vegna
þess að flutningskostnaður sé einn
stærsti þáttur í timburverði til neyt-
enda. „Þess vegna er lykilatriði að
vera með hagkvæma f lutninga og
svo hleðst utan á starfsemina þjón-
usta við önnur fyrirtæki.“
Íslenskar hafnir dýrar
Ég hugsa stundum um það sem
Íslendingur, búsettur á eyju langt frá
öðrum löndum, hvað flutningskostn-
aður geti verið hár. Hvað finnst þér?
„Við höfum siglt leiguskipum til
Íslands frá baltnesku löndunum í
mörg ár og það er ekki mikill verð-
munur á því og að stefna skipinu
til Bretlands. Þegar skip leggst að
bryggjunni hleðst hins vegar upp
kostnaður því hafnirnar hér eru
dýrar.“
Rússland fylgdi ekki með
Hvers vegna lögðuð þið erlend félög
ykkar inn í Bergs Timber?
„Hugmyndin var að geta byggt
upp reksturinn sem skráð félag á
markaði. Við höfum enn þá sýn að
rétt sé að stækka og efla starfsemina
enn frekar. Varðandi framtíð okkar
sem hluthafa, er gott að eiga skráð
hlutabréf. Það eykur seljanleika.
Við sameininguna fengum við
aðgang að öflugu stjórnendateymi
sem hefur tekið yfir allan daglegan
rekstur. Þetta var gott skref fyrir
okkur.
Norvik rekur enn sögunarmyllur
og skógarhögg í Rússland. Sú starf-
semi rann ekki í Bergs Timber því
við töldum að það hefði ekki góð
áhrif á ímynd sænska fyrirtækisins
að vera með rekstur þar í landi.
Svíum þætti það ekki álitlegt þótt
reynsla okkar sé allt önnur.
Reksturinn í Rússlandi hefur
verið erfiður en gengur nú ágætlega.
Upphaflega hugmyndin var að það
væri gott fyrir samstæðuna að hafa
aðgang að hráefni,“ segir Jón Helgi.
Eins og fyrr segir á Norvik 64 pró-
senta hlut í Bergs Timber en stefnir
á að selja hluta af eign sinni. Sú sala
hefur ekki verið tímasett.
Hefur sænskur hlutabréfamark-
aður góða þekkingu á þessari starf-
semi?
„Ég myndi ætla að sænski mark-
aðurinn væri sá sem þekkti timbur-
iðnað hvað best. Sænskir fjárfestar
vita að um sveif lukenndan iðnað
er að ræða. Það er mikið fjallað um
skógariðnað í sænskum fjölmiðlum.
Við erum eina hreinræktaða
sögunarmyllufélagið sem er skráð
á hlutabréfamarkaðinn en það eru
nokkur sænsk pappírsfyrirtæki
sem reka sögunarmyllur sem auka-
búgrein,“ segir hann.
Sveiflur í timbri
Hvernig hefur af koman verið í
timbrinu?
„Hún hefur verið afar sveif lu-
kennd. Við erum í lægð núna en það
sér vonandi fyrir endann á henni.
Stormar og skordýraárásir geta haft
mikil áhrif á reksturinn. Um þessar
mundir geisar grenibjöllufaraldur
sem ræðst á grenitré og drepur þau.
Mest hefur þetta verið í Austurríki,
Þýskalandi og Tékklandi og í minni
mæli í Suður-Svíþjóð. Skordýra-
faraldurinn hefur í þetta skiptið
hvorki náð til baltnesku landanna
né Finnlands.
Við aðstæður sem þessar grípa
eigendur skóga til þess ráðs að fella
trén sem fyrst því ella verða þau
ónýt f ljótt og þá er ekki hægt að
nýta þau í framleiðslu. Það þarf því
að fella gríðarlegt magn af skógi og
selja. Það skapar aukið framboð sem
lækkar verð á heimsmarkaði.“
Kína stór kaupandi
Hvað drífur eftirspurnina áfram?
„Eftirspurnin hefur verið ágæt.
Almennt er talið að heimsmarkað-
urinn vaxi um tvö til þrjú prósent á
ári. Það hefur enda verið hagvöxtur
á heimsvísu, þótt honum sé ekki
jafnt skipt.
Kína hefur keypt mikið af timbri
og Suðaustur-Asía fer vaxandi.
Eftirspurnin í Japan, sem er einn
af okkar stærstu mörkuðum, hefur
verið nokkuð stöðug. Um 30 pró-
sent af sölu sögunarmyllunnar fer
til Japans.“
Fjárfesti við fall Sovétríkjanna
Hvernig kom það til að þú ákvaðst
að timburframleiðsla og sala myndi
henta ykkar starfsemi?
„Við erum ættaðir úr þessari átt.
Byko var í fyrstu einkum að selja
timbur og gróft byggingarefni.
Timbur var einkum flutt til Íslands
frá Sovétríkjunum á þeim tíma. Við
fall þeirra árið 1993 snarbreyttust
þessi viðskipti enda voru ekki leng-
ur ríkisfyrirtæki að flytja út timbur.
Við hófumst því handa við að
leita leiða til að hefja útf lutning á
timbri. Að okkar mati var þarna
vænlegur en vanþróaður markaður.
Það hafði ekki verið nein þróun í
timburiðnaði í valdatíð kommún-
ista.
Lettland er skógríkast af balt-
nesku löndunum, um 60 prósent af
landinu eru þakin skógi og því var
ákveðið að drepa þar niður fæti. Þar
voru líka sterkar leifar af vestrænni
menningu. Sovétríkin náðu ekki að
bæla hana alveg niður. Við töldum
að þarna gæti orðið jákvæð þróun
og því álitlegt að stunda viðskipti og
vinna að uppbyggingu.
Við fórum rólega af stað. Vildum
ekki fara of geyst. Það var meðal
annars pólitísk áhætta fólgin í því
að hefja starfsemi í Lettlandi. Það
gat enginn vitað með vissu hver
þróunin yrði. Það hefur ræst vel úr,
ríkin gengu í Nató og Evrópusam-
bandið og tóku upp evru.
Ég er svo glaður með að fyrir fimm
árum afhenti landbúnaðarráðherra
landsins, en skógariðnaður heyrir
undir hann, mér viðurkenningu
fyrir að stuðla að jákvæðri uppbygg-
ingu lettnesks timburiðnaðar.
Það hefur verið skemmtileg vinna
og ánægjulegt að fylgjast með þess-
ari þróun. Baltnesku löndin hafa
verið framsækin í tölvuvæðingu.
Þau byrjuðu á núllpunkti og eru
ef til vill komin örlítið lengra á
mörgum sviðum en við varðandi
nýtingu upplýsingatækni. Þau
eru til að mynda framarlega í hag-
nýtingu upplýsingatækni í hjá hinu
opinbera.“
Ekki var við spillingu
Upplifir þú mikinn mun á að stunda
viðskipti í Austur-Evrópu og á
Íslandi?
„Við erum fyrst og fremst í
útflutningi og viðskiptavinir okkar
starfa í vestrænum ríkjum en
aðdrættirnir koma úr nærumhverfi
fyrirtækjanna sem og starfsfólk og
umgjörðin.
Ég verð að segja eins og er: Okkar
reynsla er býsna góð af því að eiga
viðskipti þarna. Margir óttast spill-
ingu en við höfum ekki orðið vör
við hana. Gera má ráð fyrir því að
spillingin hverfist mest um það
sem tengist brennivíni og tóbaki.
Timburviðskipti þykja ekki „sexy
business“. Þar er ekki auðfenginn
gróði.
Öll samskipti við hið opinbera
hafa verið jákvæð og góð. Betri en
við höfum upplifað hér á landi.“
1,4 milljarðar í skógi
Hvers vegna eigið þið ekki skóga til
að tryggja sögunarmyllunni hráefni?
„Það er allt önnur starfsemi að
fást við það að halda utan um skóg.
Af þeim sökum höfum við kosið að
kaupa tré af öðrum.
Að því sögðu er Norvik nokkuð
stór hluthafi í tiltölulega nýstofn-
uðu fyrirtæki sem heitir Green
Gold. Það á skóg í Svíþjóð, balt-
nesku löndunum og Rúmeníu. Þau
tré nýtast ekki beint í rekstri okkar
fyrirtækja. Þarna erum við að teygja
okkur inn í frumþáttinn á því sem
við erum að gera annars staðar.
Þetta er langtímafjárfesting. Það
er ekki mikil arðsemi af skógrækt
en ef það harðnar á dalnum eru trén
ekki höggvin og þau vaxa aðeins
lengur,“ segir hann.
Fjórtán prósenta hlutur í Green
Gold var bókfærður á tíu milljónir
evra eða um 1,4 milljarða króna í
ársreikningi Norvik fyrir árið 2018.
„Nitty-gritty“
Á hvað leggur þú mesta áherslu í
rekstri fyrirtækjanna til að þau nái
árangri?
„Það er mikilvægast að hafa gott
lið með sér í för. Ég er mikill rekstr-
arkarl, fer í smáatriðin, alveg „nitty-
gritty“. Ég held að það hafi hjálpað.
Við höfum farið varlega. Það
hjálpaði okkur að komast í gegnum
hrunið. Byko var eitt af fáum stærri
fyrirtækjum á Íslandi sem lifðu
hrunið af. Þá kom sér vel að hafa
verið í útrás því erlendu félögin
gátu stutt við bakið á starfseminni
hérlendis.“
Ekki miðstýrt af Norvik
Hvernig er hægt að byggja upp svona
fjölþætta starfsemi og fara varlega?
Þarf að fjárfesta víða til að koma
þessu öllu á koppinn?
„Dótturfélögin hafa ávallt verið
sjálfstæð. Starfsfólki er treyst til að
sinna sinni vinnu. Því hefur ekki
verið miðstýrt frá Norvik. Fjár-
festingar dótturfélaganna hafa
því alla tíð verið teknar á grund-
velli rekstrar hvers og eins félags
og þeim viðskiptatækifærum sem
bjóðast.
Við höfum fjárfest heilmikið í
félögunum. Vika Wood var að ljúka
við ellefu milljón evra fjárfestingu
[það jafngildir um 1,5 milljörðum
króna, innsk. blm.] í nýrri f lokkun-
arlínu fyrir verksmiðjuna og Byko
Lat fjárfesti nýverið fyrir svipaða
fjárhæð í umfangsmiklu verkefni
sem fólst meðal annars í að reisa
nýja byggingu fyrir húsaeininga-
verksmiðjuna, nýju kynditæki,
þurrkklefum og bættri gluggafram-
leiðslu.“
Þú hefur sagt í viðtali að þú hafir
almennt ekki keypt þér veltu nema í
tilviki Kaupáss. Viltu yfirleitt byggja
rekstur frá grunni? Hvers vegna
valdirðu þá stefnu?
„Við höfum yfirleitt byggt fyrir-
tæki frá grunni. Elko er þekkt dæmi
um það. Erlendis höfum við keypt
okkur inn í minni rekstur og byggt
hann upp.
Ég hef verið hræddur við að kaupa
stærri fyrirtæki. Ég held að það hafi
verið farsælt að fara þessa leið.
Maður veit aldrei hvað liggur undir
steini jafnvel þótt farið sé í miklar
gaumgæfiathuganir.“
Meiri stöðugleiki nú
Hvernig horfir efnahagslífið við þér
á Íslandi?
„Ég er orðinn gamall í hettunni
og hef farið í gegnum margar niður-
sveiflur. Sú fyrsta sem ég man eftir
var 1968. Ég man það langt! Og að
sjálfsögðu man ég eftir kreppunni
1974 sem kom í kjölfar olíukreppu.
Þetta voru miklar kollsteypur, geng-
isfellingar og öll sú óáran.
Það ríkir miklu meiri stöðug-
leiki núna, jafnvel þótt við færum
í gegnum hrunið árið 2008 sem var
toppurinn á þeim öllum.
Auðvitað hefur verið brattur
uppgangur síðustu ár. En ég held að
honum muni ekki fylgja jafn brött
niðursveif la og við höfum kynnst
áður. Ég vona það að minnsta kosti.
Það eru forsendur fyrir mjúkri
lendingu. Viðskiptajöfnuður er
jákvæður, verðbólgan er í sögulegu
samhengi lág og hefur verið það í
nokkuð langan tíma. Skuldsetning
í þjóðfélaginu er minni en oft hefur
verið. Ég held að það sé vegna þess
að yngra fólk er upplýstara en áður
var og gerir sínar ráðstafanir með
skynsamari hætti. Allt telur þetta.“
En byggingavörumarkaðurinn?
„Hann verður áfram sveif lu-
kenndur og það má búast við sam-
drætti á næsta ári í kjölfar mikils
uppgangs á byggingamarkaði. Við
finnum fyrir því í rekstri Byko að
það hægir á. Það er greinilega sam-
dráttur í sölu grófvara sem notaðar
eru á fyrri byggingarstigum en það
er enn mikið af húsnæði sem verið
er að vinna og klára. Salan mun því
jafnast aðeins út.
Stóra spurningin er hvernig bygg-
ingamarkaðurinn mun fara af stað
næsta vor.“
Ferðalögum fækkað
Þú ert 72 ára. Hefurðu hugsað um að
hægja á þér?
„Já, það hefur gefist tækifæri til
þess eftir að erlendu félögin runnu
inn í Bergs Timber. Þá þarf ég ekki
að vera jafn mikið í daglegum
rekstri heldur sit þess í stað í stjórn-
um. Það hefur fækkað ferðalögum
mikið.
Hægt og rólega hverfur maður
smám saman frá ýmsum verk-
efnum. Ég hugsa að nálgunin verði
með þeim hætti. Ég mun ekki snögg-
hætta. Ef maður heldur heilsu er
freistandi að halda áfram að vera
með.“
Norvik er fjölskyldufyrirtæki.
Hefurðu hugsað um hver tekur við
af þér?
„Fjölskyldan situr í stjórn Norvik
og Byko. Guðmundur sonur minn
hefur sinnt rekstrinum með mér
ásamt góðu fólki á borð við Brynju
Halldórsdóttur, fjármálastjóra sam-
stæðunnar, Sigurð Ragnarsson sem
rekur Smáragarð og Sigurð Páls-
son sem stýrir Byko, að ógleymdu
stjórnendateymi Bergs Timber.
Þótt ég hrykki upp af myndi það
ekki miklu breyta fyrir rekstur
fyrirtækisins.“
Barnabörnin berist ekki á
Hefurðu reynt að innprenta barna-
börnunum einhver gildi varðandi
peninga? Ég ímynda mér að þau geti
átt von á ágætis arfi.
„Sjálfsagt verður það raunin. Ég
veit ekki hvernig mér hefur tekist
upp með að innprenta þeim slík
gildi. Það þarf að sýna samfélagslega
ábyrgð og berast ekki á. Það er auð-
velt að verða af aurum api.“
Jón Helgi er klæddur í lopapeysu
þegar viðtalið fer fram enda ein-
staklega napur dagur.
Mín upplifun er að þú berist ekki
á. Lifir þú spart?
„Ég neita mér svo sem ekki um
neitt sem mig langar í. En þá er
spurningin að láta sig ekki langa í of
mikið. Ég hef getað ferðast og haft
það nokkurn veginn eins og ég hef
viljað.“
Grípa tækifæri sem koma
Hvernig sérðu næstu tíu árin fyrir
þér í rekstri fyrirtækjanna?
„Ég get ekki sagt til um næstu tíu
árin af skiljanlegum ástæðum en
næstu þrjú til fimm árin verðum við
áfram í sókn. Við finnum tækifæri.
Það á eftir að verða skemmtilegt.
Norvik er með ágætis efnahags-
stöðu og getur nýtt þau tækifæri
sem upp koma. Við munum horfa
vel í kringum okkar á næstu miss-
erum. Við horfum frekar til þess
sem tengist erlendu starfseminni.“
Býr í Riga í Lettlandi
„Ég hef verið með heimilisfesti í
Lettlandi í mörg ár og leigi íbúð
í Riga. Ég er mun meira þar en á
Íslandi. Borgin er vel í sveit sett
hvað varðar flugsamgöngur.
Þær hafa þróast með jákvæðum
hætti í seinni tíð. Það eru mörg
flug á dag til Stokkhólms, Kaup-
mannahafnar, Óslóar, Bretlands
og í allar áttir.
Það er ósköp þægilegt hvað
það er stutt upp á flugvöll.
Svo er ódýrt að búa þarna. Þar
er nokkuð annað verðlag en á
Íslandi. Maður hrekkur oft upp
við komuna hingað.“
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
3
0
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
D
-A
4
7
0
2
4
1
D
-A
3
3
4
2
4
1
D
-A
1
F
8
2
4
1
D
-A
0
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K