Fréttablaðið - 30.10.2019, Side 38
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Karls Guðmundssonar
fyrrum bónda í Bæ í Súgandafirði,
Vallarbraut 12, Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir góða umönnun.
Ingibjörg Jónsdóttir
Guðrún M. Karlsdóttir Þröstur Óskarsson
Þorgerður Karlsdóttir Arnar Sigþórsson
Þröstur Karlsson Ingibjörg Anna Elíasdóttir
Guðbjarni Karlsson
Alda B. Karlsdóttir Magnús Erlingsson
Hafþór Karlsson Ingunn V. Baldursdóttir
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðmunda Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur,
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
lést á Landspítalanum
föstudaginn 25. október.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn
1. nóvember kl. 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
Tryggvi Jónsson Ingveldur Bragadóttir
Sigurður Helgi Jónsson Liv Kari Tyvand
Jón Viðar Jónsson Þorbjörg Hróarsdóttir
Hreinn Jónsson Aðalheiður Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir afi og langafi,
Ólafur Ágústsson
frá Hraunteigi,
lést á hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð 25. október 2019.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
þann 31. október 2019 kl. 13.00.
Sigurþór Ólafsson Hallfríður Traustadóttir
Ágústa Hildur Ólafsdóttir Hjálmar Hallgrímsson
Íris Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju
vegna andláts og útfarar elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömma og langömmu,
Elínar Pálfríðar
Alexandersdóttur
Skipastíg 3, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks HSS fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Edvard Júlíusson
Alexander Georg Edvardsson Þuríður Dóra Ingvarsdóttir
Kristín Þórey Edvardsdóttir Ottó Hafliðason
Sigmar Júlíus Edvardsson Linda Oddsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinunn Gísladóttir
til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð, áður Gullsmára 7,
lést í faðmi fjölskyldunnar 23. október.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju
mánudaginn 4. nóvember kl. 13. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Sunnuhlíð og Alzheimersamtökin.
Hulda Leifsdóttir Bjarni Pálsson
Hafdís Leifsdóttir Sigurbjörn Sigurðsson
Ingibergur Sigurðsson Ingibjörg Magnúsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Eva Kristjánsdóttir
Skíðabraut 9,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ
á Dalvík 2. október. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Þakkir til starfsfólks
Dalbæjar fyrir umönnun og alúð undanfarin ár.
Rúnar K. Rósmundsson
Kristjana Rósmundsdóttir Karl Sigtryggsson
Snjólaug St. Rósmundsdóttir
barnabörn, makar þeirra og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Birna Valgerður
Jóhannesdóttir
frá Kirkjulundi í Vestmannaeyjum,
lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum
þann 22. október síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
föstudaginn 1. nóvember klukkan 11.00.
Jóhann Ingi Einarsson
Alda Jóhanna Jóhannsdóttir Óskar Ólafsson
Erna Sigríður Jóhannsdóttir Eggert Gottskálksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og besti vinur,
Lárus Grímsson
skipstjóri,
Dalprýði 6, Garðabæ,
lést þann 23. október á Krabbameinsdeild
11E í faðmi stelpnanna sinna. Útför hans fer fram frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á samtökin Einstök börn.
Jóhanna Daðey Kristmundsdóttir
Þórdís Harpa Lárusdóttir Hákon Bergmann Óttarsson
Gerða Kristín Lárusdóttir Andri Már Kristinsson
Karen Ýr Lárusdóttir Guðmundur Hafþórsson
Hanna Heiða Lárusdóttir Steindór Sigurgeirsson
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Reynir Guðbjartsson
Kjarlaksvöllum,
lést þann 17. október á dvalarheimilinu
Barmahlíð á Reykhólum.
Jarðsungið verður í Staðarhólskirkju
laugardaginn 2. nóvember kl. 13.00.
Helga Björg Sigurðardóttir
Úlfar Reynisson Svanborg Einarsdóttir
Sigurður Reynisson
Þröstur Reynisson
Hugrún Reynisdóttir Guðmundur Gunnarsson
Bjarki Reynisson Þórunn Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Stefán Ólafur Gíslason
fv. flugstjóri,
Sléttuvegi 11, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar þann
23. október á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin fer fram miðvikudaginn 6. nóvember í
Grafarvogskirkju klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins
(hringurinn.is) þar sem Stefán langafabarn hans hefur
notið aðhlynningar.
Elísabet Þórarinsdóttir
Þórarinn Örn Stefánsson Piya Damalee
Gísli Stefánsson Hulda Arndís Jóhannesdóttir
Rósa Stefánsdóttir Óskar S. Jóhannesson
Erna Stefánsdóttir Axel Skúlason
barnabörn og langafabörn.
Jónas Ásmundsson
fv. aðalbókari Háskóla Íslands,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á dvalarheimilinu Grund
aðfaranótt 19. október.
Jarðsungið verður frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 31. október klukkan 13.
Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason
Ásmundur Jónasson Guðrún Vignisdóttir
Gylfi Jónasson Ásdís Kristmundsdóttir
Helgi Þór Jónasson Kristín Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Félag áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar
stendur fyrir málþingi um
galdra og lækningar.
Lækningar voru í upphafi mjög nátengdar trúarbrögðum og galdraiðju,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur og einn fyrirlesara á málþingi
Félags áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar. Málþingið fjallar um galdra og
lækningar og fer fram í Þjóðminjasafninu
næstkomandi laugardag. Hefst málþingið
kl. 10.30.
Íslandssagan greinir frá fjölmörgum
galdramönnum sem reyndu að lækna
sjúka með galdri og aðra sem komu sjúk-
dómum í fólk með fjölkynngi. Fyrstu
læknarnir voru særingamenn sem börð-
ust við sjúkdóma með alls kyns tákn og
látbragð að vopni.
„Það vill svo vel til að ég er að gefa
út bók, Lífgrös og leyndir dómar, sem
fjallar um lækningar, töfra og trú í
sögulegu ljósi. Þar greini ég frá þróun
lækninganna, gömlum húslækningum
og aðferðum sem sumar þykja undar-
legar í dag en aðrar hafa staðist tímans
tönn. Í raun varð ekki aðskilnaður milli
galdra og lækninga fyrr en komið var
fram á 18. öld,“ segir Ólína. „Það er svo
auðvelt fyrir okkur í dag að horfa til
baka með fordómafullu augnaráði og
hnussa yfir þekkingu fólks á 17. öld. Öll
sú læknisþekking sem við eigum er samt
runnin frá þessum gömlu fræðum.“
Fleiri fyrirlesarar verða á málþinginu,
þar á meðal Stephen A. Mitchell, pró-
fessor í norrænum fræðum við Harvard-
háskóla og Óttar Guðmundsson geðlækn-
ir. Þá munu þrjár klassískar seiðkonur
kyrja galdraþulur. arib@frettabladid.is
Lækningar voru nátengdar göldrum
Ólína Kjerúlf er meðal fyrirlesara á málþinginu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
3
0
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
D
-7
3
1
0
2
4
1
D
-7
1
D
4
2
4
1
D
-7
0
9
8
2
4
1
D
-6
F
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K