Fréttablaðið - 04.11.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.11.2019, Blaðsíða 2
Veður A 3-10 m/s, en 10-18 m/s með suðurströndinni. Víða bjart veður. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Breytileg átt, 3-8 m/s á morgun, og rigning eða slydda á S- og V-landi, en snjókoma til fjalla. SJÁ SÍÐU 14 Lurkum lamdir skraflarar 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 䔀爀 樀攀瀀瀀椀渀渀 爀愀昀洀愀最渀猀氀愀甀猀 㼀 猀琀愀爀琀 昀礀爀椀爀 樀攀瀀瀀愀渀渀  瘀攀琀甀爀嘀攀氀搀甀 爀甀最最琀 䴀氀甀洀 ∠ 匀欀椀瀀琀甀洀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀 „Við erum öll lurkum lamin og munum þurfa að lágmarki þrjár vikur til að jafna okkur,“ sagði í gær á Faecbook-síðu Skraf lfélags Íslands eftir að fjölmennasta Íslandsmótinu í skraf li lauk í gær. „Íslandsmeistari í skraf li í þriðja sinn er Gísli Ásgeirsson – sem hefði mögulega getað tapað ef Hildur Lilliendahl hefði unnið hann í lokaleiknum með rosalega miklum mun – en það gerðist sannarlega ekki,“ sagði á síðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMFÉLAG Guðlaugur Þór Þórðar­ son utanríkisráðherra baðst í gær afsökunar á því að hafa notað kynferðislega samlíkingu við hóp háskólanema sem heimsóttu ráðu­ neyti hans fyrir nokkrum dögum. Alexandra Ýr van Erven, einn háskólanemanna í ráðuneytinu umrætt sinn, skrifaði um málið á Twitter í gær. „Í spjalli við nemanda greip ég til sam líkingar sem eftir á að hyggja var ekki við eig andi. Hún var á þá leið að stjórn mála fræði og reynsla af störfum á vett vangi stjórn­ málanna væru á ein hvern hátt sam bæri leg reynslu og bók námi í kyn fræðslu,“ segir Guð laugur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kjölfar þess að Fréttablaðið bar málið undir hann. „Ég frá bið mér þær á sakanir sem settar hafa verið fram á sam fé lags­ miðlum um orð bragð og á setning sem mér er gerður þar upp,“ segir ráðherrann hins vegar og á þar við hvernig Alexandra Ýr lýsti orðum hans við nefnt tækifæri. Hafa aðrir sem voru viðstaddir einnig sagt að Alexandra Ýr hafi ekki haft orðrétt eftir ráðherranum. Hún segir hins vegar að það sé ekki kjarni málsins. „Hann átti ekkert að vera að tala um kynlíf yfirhöfuð. Framsetning Guðlaugs var augljóslega smækk­ andi fyrir mig og gerð til að slá sjálfum sér á brjóst. Ráðherra sýnir gríðarlegt dómgreindarleysi,“ segir Alexandra. – kdl, fbl Samlíking óviðeigandi Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNSÝSLA Mikil ólga hefur ríkt meðal starfsmanna Vinnueftirlits­ ins undanfarin misseri. Starfsandi er lélegur og mikill samskiptavandi milli stjórnenda og almennra starfs­ manna. Starfsmannavelta hefur verið mikil á árinu og eins og greint var frá í helgarblaði Fréttablaðsins leiddi nýleg könnun meðal starfsmanna í ljós að fjórði hver starfsmaður taldi sig hafa orðið fyrir einelti á vinnu­ staðnum. Hanna Sigríður Gunnsteins­ dóttir, sem tók við forstjórastöðu stofnunarinnar fyrir tæpu ári, sagði að niðurstöður könnunarinnar væru litnar mjög alvarlegum augum og að fyrirtækið hefði gripið til ýmissa aðgerða til þess að laga ástandið. Meðal annars var útbúin ný við­ bragðsáætlun þegar starfsmenn tilkynntu um möguleg eineltis­ tilvik og gerður var samningur við sálfræðistofu sem starfsmenn geta leitað til. Þá var skipulögð sérstök samskiptastofa til þess að bæta sam­ skipti innan stofnunarinnar og nýrri mannauðsáætlun ýtt úr vör. Vinnueftirlitið hefur key pt þjónustu frá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus varðandi mannauðsmál stofnunarinnar. Einn eigenda Atten­ tus sinnti verkefninu í byrjun árs en var gert að hverfa frá störfum fyrir meintan dónaskap í garð starfs­ manna. Samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins nefndi trúnaðarmaður við nefndan fulltrúa Attentus að margir starfsmenn vinnuvéladeildar stofnunarinnar íhuguðu að hætta störfum vegna óánægju með laun og ekki síður starfsanda innan eftirlits­ ins. Á hann að hafa svarað þessum áhyggjum trúnaðarmanns á þá leið að hann hefði engar áhyggjur af að missa starfsmennina því að þeir myndu aldrei fá vinnu annars staðar. Þegar ummælin spurðust út féllu þau í grýttan jarðveg meðal starfs­ manna Vinnueftirlitsins. Í kjölfarið skrifuðu fulltrúar starfsmanna hjá tveimur stéttar­ félögum, Sameyki og BHM, undir bréf þar sem þeir kröfðust þess að viðkomandi viki frá störfum vegna samskiptanna. Bréfið var sent á Ásmund Einar Daðason félagsmála­ ráðherra en að auki var það sent á Hönnu Sigríði forstjóra, Attentus og stéttarfélögin. Heimildir Fréttablaðsins herma að starfsmönnunum sem skrifuðu bréfið hafi verið skipað að draga það til baka og hótað málsókn ef ekki yrði orðið við því. Starfsmennirnir hafi þó staðið á sínu. Afleiðingarnar urðu þær að eigandinn fyrrnefndi sagði sig frá verkefninu og nýr ráð­ gjafi frá Attentus tók við verkefninu. bjornth@frettabladid.is Ráðgjafa vikið fyrir meintan dónaskap Einum eigenda ráðgjafarfyrirtækisins Attentus var gert að hætta störfum fyrir Vinnueftirlitið eftir meintan dónaskap í garð starfsmanna sem sendu kvört- unarbréf til félagsmálaráðherra. Annar úr eigendahópi Attentus tók síðar við. Vinnueftirlitið fylgist með umhverfi vinnandi fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Heimildir Fréttablaðsins herma að starfsmönnunum sem skrifuðu bréfið hafi verið skipað að draga það til baka og hótað málsókn ef ekki yrði orðið við því. Starfsmennirnir hafi þó staðið á sínu. VIÐSKIPTI Fjárfestingafélagið Yas Holding hefur gert samkomu­ lag við Alvotech um kaup á nýju hlutafé og samstarfssamning um þróun, framleiðslu og sölu líf­ tæknilyfja. Virði samkomulagsins er um 5,3 milljarðar króna (45 milljónir Bandaríkjadala) og felur í sér að Yas fái markaðsleyfi fyrir þrjú líftæknilyf sem eru í þróun hjá Alvotech og verða markaðssett á næstu árum. YAS verður jafnframt eigandi að 2,5% hlut í fyrirtækinu. YAS Holding er alþjóðlegur fjár­ festingasjóður með höfuðstöðvar í Abú Dabí og bætist nú í hóp hlut­ hafa Alvotech. Núverandi fjárfest­ ingar YAS nema um 87 milljörðum króna, tekjur fyrirtækisins eru um 250 milljarðar króna á ári og þar starfa um 5.000 starfsmenn. Fyrirtækið mun markaðssetja lyf Alvotech í Mið­Austurlöndum og Norður­Afríku með samstarfs­ fyrirtækjum sínum. – hae Kaupir hlutafé í Alvotech 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 5 -1 6 5 0 2 4 2 5 -1 5 1 4 2 4 2 5 -1 3 D 8 2 4 2 5 -1 2 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.