Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 63
Seltjarnarnesbær hyggst endurnýja ytri vef sinn
og óskar nú eftir verðupplýsingum frá fagaðilum
í hönnun, smíði og uppsetningu á nýjum vef
bæjarins og helstu undirstofnunum hans.
Kostnaðaráætlun skal byggja á fyrirliggjandi
kröfulýsingu sem unnin hefur verið.
Áhugasamir þátttakendur óski eftir gögnum með
tölvupósti á maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Verðupplýsingum skal skilað inn í síðasta lagi
þriðjudaginn 21. maí 2019
Seltjarnarnesbær áskilur sér rétt til að semja
við hvern þann aðila sem bærinn telur uppfylla
best kröfurnar eða hafna öllum.
Verðkönnun
Nýr vefur Seltjarnarnesbæjar
seltjarnarnes.is
Langanesbyggð leitar að framfarasinnuðum, skapandi og farsælum
leiðtoga til að stýra Grunnskólanum á Þórshöfn frá og með næsta
skólaári.
Skólastjóri er fyrst og fremst faglegur leiðtogi sem þarf að fylkja liði
um stefnu skólans og árangursríka starfshætti. Leitað er að
bjartsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem
sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á velferð og
framfarir nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra.
Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum
og annarri starfsemi skólans og að skólastarf sé í samræmi við lög og
reglugerðir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókn fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem m.a.
komi fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
til starfsins.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í
þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun
fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega
þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi
spennandi skólaþróun.
Unnið er að því að koma á sameiginlegri skólastjórn Grunnskólans á
Þórshöfn og leikskólans Barnabóls. Skólastjórn sér um og stjórnar
sameiginlegum verkefnum og stefnumótun. Hvor skólastjóri um sig
sinnir daglegri stjórn á hvorum stað en munu m.a. sjá sameiginlega
um mannaráðningar og hafa þannig stjórnunarlegan stuðning hvor af
öðrum.
Umsóknarfrestur er til 31. maí og skulu umsóknir sendar rafrænt á
netfangið elias@langanesbyggd.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Elías Pétursson, sveitarstjóri í síma 4681220 eða 8920989, netfang:
elias@langanesbyggd.is
Gunnar Gíslason, ráðgjafi í síma 8921453, netfang: gg@akmennt.is
Skólastjóri óskast til starfa við
Grunnskólann á Þórshöfn
- Kennaramenntun og leyfisbréf grunnskólakennara
- Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum
í skólastarfi er skilyrði.
- Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg.
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og kennslufræða er
æskileg.
- Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í
samstarfi, sveiganleika og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði er kostur
- Gerð er krafa um vammleysi. s.s. að vera með gott orðspor og
að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist
starfinu.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru tæplega
70 nemendur og starfsmenn eru um
25. Starfsemi skólans einkennist af
kraftmiklu og framsæknu skólastarfi.
Samhliða skólanum er rekinn
tónlistarskóli og hefð er fyrir öflugu
íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa
skólans.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi
framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa
um 400 manns í fjölskylduvænu
umhverfi. Skólinn var endurnýjaður
árið 2016 og er öll aðstaða og
aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr
leikskóli er í byggingu og verður tekin
í gagnið í sumar Gott íbúðarhúsnæði
er til staðar og öll almenn þjónusta er
á Þórshöfn. Á staðnum er gott
íþróttahús og innisundlaug og
Ungmennafélag Langaness stendur
fyrir öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er
mikið og fjölbreytt félagslíf.
Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm
daga vikunnar til Reykjavíkur um
Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar
helstu náttúruperlur landsins og ótal
spennandi útivistarmöguleikar, s.s.
fallegar gönguleiðir og stang- og
skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum
aldri, af báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í samræmi
við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að
sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Sérfræðingur við verkefnið
Skólar á grænni grein
Grænfánaverkefni Landverndar
Landvernd óskar eftir að ráða sérfræðing við verkefnið Skólar
á grænni grein - Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt
menntaverkefni um umhverfismál og sjálfbærni sem rekið er í hátt í
200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Um er að ræða 75% stöðu
frá 1. september 2019 með möguleika á aukningu á árinu 2020.
Ítarlegri upplýsingar um starfið má finna á heimasíðu Landverndar,
landvernd.is.
Umsókn og frestur
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða
umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu er
lýst ásamt upplýsingum um tvo meðmælendur. Umsóknir skulu
sendar á caitlin@landvernd.is merktar „Grænfánaumsókn“.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2019
Nánari upplýsingar veitir
Katrín Magnúsdóttir
verkefnisstjóri
Skóla á grænni grein,
katrin@landvernd.is, s. 552-5242.
Job.is
Þú finnur
draumastarfið á
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Kennsla
Þú finnur draumastarfið á
Iðnaðarmenn
Þú finnur draumastarfið á
Heilbrigðisþjónusta
Veitingastaðir
ATVINNUAUGLÝSINGAR 19 L AU G A R DAG U R 1 8 . M A Í 2 0 1 9