Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 5
ÁRÉTTING
Vegna forsíðumyndatexta í gær
er áréttað að UNESCO hefur
ekki skorið úr um hvort umsvif
köfunarfyrirtækja samrýmist
stöðu Þingvalla á heimsminjaskrá.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Al var legt vinnu slys: Klemmdist á milli bíl hræs og vinnu
vélar Maðurinn var að störfum hjá
málmvinnslufyrirtækinu Furu.
2 Fjórtán álftir drepnar: „Bara lög brot og ekkert flóknara
en það“ Gunnar Þór Hallgrímsson
fuglafræðingur segir að eðlilegast
væri að kæra atburðinn beint til
lögreglu.
3 Níu ára barn á kært fyrir að hafa myrt fimm manns
Dauðsföllin urðu eftir íkveikju
í hjólhýsagarði í Illinois fylki í
Bandaríkjunum.
GOÐSÖGNIN NÝR JEEP® WRANGLER
jeep.is
JEEP® WRANGLER RUBICON
Rock-Track® fjórhjóladrif, Select-Trac® millikassi, Tru-Lock® 100%
driflæsingar að framan og aftan, aftengjanleg jafnvægisstöng að
framan, Heavy Duty fram- og afturhásing, 17” álfelgur, 32” BF
Goodrich Mudtrack hjólbarðar, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð,
bakkskynjarar, aðgerðarstýri, hraðastillir, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
og fjarstýrðar samlæsingar.
WRANGLER RUBICON BENSÍN 273 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
WRANLGER RUBICON DÍSEL 200 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
STJÓRNSÝSLA Samband íslenskra
sveitarfélaga krefst þess í bréfi til
félagsmálaráðherra að ráðuneytið
„dragi tafarlaust til baka ráðagerðir"
um „gerbreyttan útreikning á hlut-
deild ríkisins í samningsfjárhæðum
NPA-samninga. Ráðuneytið segir
NPA „ekki hugsað fyrir börn“.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri
SÍS, segir í bréfi til Ásmundar Einars
Daðasonar, félags- og barnamála-
ráðherra, að það komi „sambandinu
algerlega á óvart að ráðuneytið væri
að boða til fundar þau sveitarfélög
sem hafa NPA-samninga“ eftir að
áður hafi verið ákveðið að leysa úr
ágreiningi í samræmi við bráða-
birgðaákvæði í lögum. „Umrædd
breyting samræmist hvorki gildandi
lögum, reglugerð né viðtekinni fram-
kvæmd við innleiðingu NPA allt frá
2012. Nái hún fram að ganga myndi
það kollvarpa fjárhagslegum sam-
skiptum vegna verkefnisins enda
sætu sveitarfélög uppi með útgjalda-
auka sem gæti numið allt að 100
milljónum króna á ársgrundvelli.“
Karl segir sambandið krefjast þess
að ráðuneytið dragi þessar ráðagerðir
til baka tafarlaust. „Má augljóst vera
að útspil af þessu tagi – án nokkurs
samráðs við sambandið – er til þess
fallið að skaða traust og trúnað í sam-
skiptum mili stjórnsýslustiga,“ undir-
strikar framkvæmdastjórinn.
Bréfi framkvæmdastjórans fylgir
minnisblað frá lögfræðisviði sam-
bandsins. Er þar vitnað til fundar-
gerðar frá 18. september. „Ráðu-
neytið segir það skýrt að NPA er ekki
hugsað fyrir börn, en gæti mögulega
átt við fyrir ungmenni,“ er rakið úr
fundargerðinni. gar@frettabladid.is
Sakar ráðherra um trúnaðarbrest vegna NPA fyrir börn
REYKJAVÍK „Mér finnst þetta bera
keim af vanhugsaðri verktaka-
græðgi. Þarna er um að ræða lóðir
sem voru seldar með mjög skýrum
kvöðum um að taka þátt í innviða-
kostnaði á svæðinu,“ segir Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri.
Beri keim af
verktakagræðgi
Líkt og kom fram í gær hafa verk-
takafyrirtæki, í samstarfi við Sam-
tök iðnaðarins, stefnt Reykjavíkur-
borg vegna innviðagjalda.
Dagur segir það ekki ganga upp
að ætla að láta borgarbúa borga
reikninginn þegar búið var að
semja um annað. „Það lá algjörlega
fyrir hver þeirra hlutur hvers og
eins væri, og það hafði áhrif á það
sem þeir borguðu fyrir byggingar-
réttinn.“ – ab
Dagur B.
Eggertsson.
LÖGREGLUMÁL Íslensk stjórnvöld
hafa móttekið 355 milljónir króna
frá bandarískum yfirvöldum fyrir
aðstoð við upprætingu umfangs-
mikilla fíkniefnaviðskipta á sölu-
síðunni Silk Road. Um er að ræða
söluandvirði tugþúsunda bitcoina
sem hýst voru í gagnaveri hér á
landi og haldlögð voru í samstilltum
aðgerðum íslensku lögreglunnar og
bandarísku alríkislögreglunnar í
október 2013.
„Eftir að ljóst varð að upphæð
þessi yrði lögð inn í ríkissjóð var
ákveðið að hún rynni í sérstakan
löggæslusjóð á forræði dómsmála-
ráðherra,“ segir Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra.
Veitt verði úr sjóðnum í þágu rann-
sókna á skipulagðri brotastarfsemi.
Þessi ráðstöfun hafi þegar verið
samþykkt í ríkisstjórn og fjárhæðin
verið lögð inn í sjóðinn.
Í Bandaríkjunum er ekki óal-
gengt að andvirði ólöglegs ávinn-
ings af lögbrotum sé látið renna til
lögreglunnar eða þess embættis
sem rannsakar og upplýsir um
þau og var það vilji saksóknara
Silk Road-málsins vestanhafs að
íslenska lögreglan fengi tæpar 2,9
milljónir dollara eða 15 prósent
þess fjár sem fékkst fyrir þau bit-
coin sem gerð voru upptæk í mál-
inu. Samkvæmt íslenskum lögum
rennur andvirði upptekinna verð-
mæta hins vegar óskipt í ríkissjóð
og getur því ekki farið beint til lög-
reglunnar að óbreyttum lögum.
Spurð nánar um fjárveitingar úr
sjóðnum segir Áslaug að tekið verði
mið af tillögum nefndar sem skipuð
var í kjölfar útkomu skýrslu ríkis-
lögreglustjóra um skipulagða brota-
starfsemi í vor.
Það var ungur tölvunörd, Ross
Ulbricht, sem opnaði Silk Road árið
2011 sem vettvang frjálsra viðskipta
án afskipta yfirvalda. Ulbrict hefur
verið lýst sem áköfum frjálshyggju-
manni, stuðningsmanni kenninga
Ayn Rand og hörðum andstæðingi
stríðsins gegn fíkniefnum. Síðan
var að mestu leyti vettvangur fíkni-
efnasölu en þar var einnig hægt að
kaupa annan varning eins og vopn,
leiðbeiningar um skjalafals og jafn-
vel lista yfir leigumorðingja. Öll
viðskipti á síðunni fóru fram með
rafmyntinni bitcoin sem tryggði
nafnleysi í viðskiptunum.
Framan af gekk bandarísku al-
ríkis lögreglunni illa að finna hýs-
ingarstað síðunnar en þegar loks
tókst að staðsetja hýsinguna í gagna-
veri Advania á Íslandi var óskað
eftir samvinnu íslenskra yfirvalda.
Í október 2013 eftir margra mánaða
undirbúning var farið í samstilltar
aðgerðir og Silk Road-vefsíðan var
tekin niður hér á landi og hald lagt á
bitcoin að jafnvirði um þriggja millj-
óna Bandaríkjadala. Ulbricht var á
sama tíma handtekinn á bókasafni
í San Francisco þar sem hann sat við
fartölvu sína með síðuna opna og
opna tengingu inn á bitcoin-veskið
sitt. Veskið var það sönn un argagn
sem vó þyngst í sak fell ingu hans.
Rannsókn málsins var bæði
umfangsmikil og jafnvel drama-
tísk á köf lum. Einn rannsakenda
brá sér til að mynda í gervi leigu-
morðingja á vefsvæðinu og bauð
sig fram þegar Ulbricht kallaði
eftir aftöku meints uppljóstrara á
síðunni. Umræddur rannsakandi
endaði svo sjálfur á sakamanna-
bekk í málinu ásamt starfsfélaga
sínum hjá A lr ík islög reglunni
er upp komst að þeir hefðu nýtt
aðstöðu sína til að kúga fé af not-
endum síðunnar. Fengu þeir báðir
nokkurra ára fangelsi fyrir brot
sín. Forsprakkinn Ross Ulbricht
afplánar hins vegar tvöfaldan lífs-
tíðardóm. adalheidur@frettabladid.is
Fé fyrir Silk Road-rannsókn
komið í nýjan löggæslusjóð
Bandarísk stjórnvöld hafa afhent íslenskum stjórnvöldum tæpar þrjár milljónir dollara vegna að-
stoðar við upprætingu ólöglegu sölusíðunnar Silk Road. Síðan var hýst hér á landi. Féð, alls 355 millj-
ónir króna, hefur þegar verið afhent. Því verður varið til rannsókna á skipulagðri brotastarfsemi.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri og Karl Steinar Valsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, sem fer fyrir rannsóknum á skipulagðri brotastarfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sjá nánar á frettabladid.is
Karl Björnsson,
framkvæmda
stjóri SÍS.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð