Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 14
Vinnustaðir eru með opin rými þar sem heyrist í kaffivélum í bland við reglu-legar símhringingar. Skvaldur vinnufé- laganna rennur saman við suðið í tölvunum sem hljómar undir niðri á meðan símarnir hringja. Úti er stöðugur umferðarniðurinn og reglulegar bílf lautur og bremsu- ískur. Inn í þennan kokteil blandast högg frá smíðavinnu og hávaði frá vegagerð. Á sumrin eru það sláttu- vélarnar sem eru bakgrunnstónn- inn á sólríkum sumardögum, ein- mitt þegar nýbúið er að stilla upp sólstólnum á pallinum. Fyrir utan þennan utanaðkom- andi hávaða eru ýmisleg hljóð sem við veljum okkur að hlýða á eins og að hlusta á tónlist og horfa á sjón- varp. Stundum er það gert í nafni þess að slaka á og njóta. Gott og vel en þegar sjónvarpið er bara á í bak- grunninum á meðan það er verið að gera annað og heyrnartólin eru alltaf á í göngutúrnum eða í heima- náminu með stærðfræðidæmunum, þá má velta fyrir sér hvort það sé örugglega hjálplegt að hlusta á eitthvað á meðan. Hljóðmengun í hversdagslífinu er orðin svo algeng að það er erfitt að muna hvenær maður upplifði síðast algjöra þögn. Öll hljóð eru ekki endilega hávaði, eins og tónlist sem mann langar að hlusta á (öfugt við lyftutónlist eða jólalög í október) sem hefur góð áhrif á mann eða náttúruhljóð á borð við seitlandi læk, en leitin að þögninni er ekki auðveld. Fimm dagar í þögn Anna Dóra Frostadóttir, sálfræðingur og núvit- undarkennari hjá Núvitundarsetr- inu, er nýkomin Þögnin hið innra Þögn er að verða sífellt fágætari í dag- legu lífi okkar en hún hefur mikilvægu hlutverki að gegna til að hvíla heilann. Áreitið er úti um allt þannig að við þurf- um að læra að takast á við það og finna þögnina innra með okkur. Umhverfis- hljóð og tónlist hafa heilmikil áhrif. úr fimm daga þöglu hlédragi eða kyrrðar- dögum sem haldnir voru í Sólheimum í Grímsnesi. Hún segir þessa þöglu daga vera hugs- aða til að dýpka núvitundariðkun sína. „Við erum leidd í gegnum núvit- undaræfingar í þögn með okkur sjálfum. Við tökum tíma til að vera með okkur og setjumst niður í sjálfsskoðun,“ segir Anna Dóra og útskýrir nánar: „Í gegnum æfing- arnar erum við að þjálfa athyglina og vakna til vitundar um virkni hugans. Við tökum eftir því þegar hugurinn reikar burt og færum athyglina mjúklega aftur á það sem við erum að þjálfa athyglina til að hvíla á hverju sinni,“ segir hún en dæmi um það er að hvíla athyglina á önduninni. Núvitundarþjálfun felur í sér „endurtekið stefnumót við sjálfan sig. Þar sem við leyfum athyglinni að falla inn á við og fylgjumst með eigin hugsunum, tilfinningum, lík- amskenndum og hvötum koma og fara. Þetta er mild leið til að kynnast sjálfum sér.“ Hvernig er að vera fimm heila daga í þögn? „Á hefðbundnum núvitundar- námskeiðum býr fólk við þetta daglega amstur og fer heim að hug- leiða á meðan hundurinn geltir og börnin banka á hurðina. Það er yfirleitt eitthvert áreiti og þá er hjálplegt að geta leyft athyglinni að falla inn á við, sama hvað er í gangi. Þetta er mjög mikilvæg færni sem við erum að þjálfa, að ná að líta inn á við þrátt fyrir atið og áreitið allt um kring. En með því að fara í lengri tíma, eins og á kyrrðardaga, þá eru skapaðar aðstæður þar sem maður er í þögn og núvitundariðkunin nær að dýpka enn frekar. Fyrstu tvo, þrjá dagana er hugurinn oft enn þá að vinna úr þessum blessaða verkefnalista okkar og við erum enn víruð í takt við samfélagið. Það tekur tíma að komast í annað tempó þar sem maður er að þjálfa sig í bara „að vera“. Við erum alltaf svo mikið „að gera“. Þarna skapast skilyrði og tækifæri til að skoða af forvitni og mildi: Hvernig er það að vera ég og hvað er að gerast innra með mér? Og hlusta á svörin innra með sér.“ Virkja viskuna Anna Dóra segir að algengt sé að á öðrum eða þriðja degi fari öldurnar í huganum að lægja. „Það má líkja þessu við snjókúlu, sem maður hristir og snjókornin fara á f lug en hægt og rólega falla þau niður. Þá kemur þessi skýrleiki og yfirsýn. Þessar venjubundnu hugsanir falla niður og maður nær að stíga úr verk- efnalistanum og dýpra inn í sjálfan sig, hlusta á sjálfan sig og vera til staðar í því sem maður er að gera. Þarna nær maður að virkja þessa visku sem býr innra með okkur öllum en við veitum okkur kannski ekki tækifæri, tíma eða skilyrði til að taka eftir og hlusta á.“ Það gefast sjaldnast tækifæri til að vera fimm daga í þögn. Hvað gerir þú til að vera í þögn þess á milli? „Þá er það bara mín daglega núvitundariðkun, ég er með fasta tíma þar sem ég tek æfingu og staldra reglulega við í gegnum daginn til að núllstilla mig. Síðan er alltaf hægt að færa athyglina á öndunina sem getur reynst dýr- mætt athvarf innra með okkur á hlaupunum,“ segir hún. Þögn getur hjálpað til við að endurtengjast sjálfum sér en líka er mikilvægt að kunna að takast á við áreitið. „Það er máttur þjálfunar hugans að láta ekki trufla sig og geta fundið þögnina innra með sjálfum sér þrátt fyrir erilinn allt um kring,“ segir Anna Dóra. „Til þess að þjálfa sig í þeim bjarg- ráðum þarf maður að hafa gefið sér reglulegan tíma með sjálfum sér, þetta kemur ekki bara allt í einu. Það er eðli hugans að reika burt og með hugarþjálfun er hægt að beisla Þessi kyrrð og hugarró sem við leitum að næst ekki endilega þegar heimurinn staðnæm- ist og allt fellur í ljúfa löð heldur kannski einmitt með því að ná þessu innra með sér og leyfa hlutunum að vera eins og þeir eru. Anna Dóra Frostadóttir Hávaði er vanmetin hætta sem getur valdið ýmsum heilsufarsvanda- málum, samkvæmt Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni WHO. Á meðal vandamála sem geta skapast til styttri og lengri tíma eru svefnvanda- mál, áhrif á hjarta- og æðakerfi, verra vinnu- og lærdómsumhverfi, heyrnar- skaði og fleira. Í Evrópu er kvartað sífellt oftar undan hljóðmengun. hann aðeins og ná tökum á honum svo athyglin hvíli á því sem maður vill að hún hvíli á hverju sinni,“ segir hún, eins og til dæmis á önduninni í stað hávaðans í kring. „Við búum öll yfir þessum bjargráðum, það þarf bara að virkja þau.“ Hvað finnst þér? Hraðinn og áreitið er mikið í þjóð- félaginu. „Eins og dagskipulag barna í dag þar sem nánast hver klukku- tími er bókaður. Það gefst lítill tími fyrir þau að fá bara „að vera“ og kynnast sjálfum sér í stað þess að sogast inn í ský samfélagsins,“ segir Anna Dóra en mikilvægt er að börnin fái tækifæri til að velta fyrir sér hvað þeim sjálfum finnst, ekki bara því sem samfélagið segir að sé töff og sniðugt. „Þessi kyrrð og hugarró sem við leitum að næst ekki endilega þegar heimurinn staðnæmist og allt fellur í ljúfa löð heldur kannski einmitt með því að ná þessu innra með sér og leyfa hlutunum að vera eins og þeir eru og vera í tengslum við sjálfan sig. Ef ásetningurinn er að vera bara með þessari innöndun og þessari útöndun þá næst þessi hugarró með sjálfum sér jafnvel þó það sé ys og þys allt um kring.“ Eitt í einu Er mikilvægt að minnka áreitið þegar hægt er? „Já, tvímælalaust og gera bara eitt í einu. Þegar maður er að borða, að vera bara að borða, ekki hafa sjónvarpið eða útvarpið í gangi. Ef maður er að drekka morgunkaffi- bollann, að veita þeirri upplifun alla sína athygli. Og ef maður er að hlusta á barnið sitt, að hlusta á það heilshugar án þess að vera að gera eitthvað annað á sama tíma, eins og að vinna í tölvunni eða búa til matinn eða eitthvað því um líkt.“ Hún ítrekar mikilvægi þess að finna þögnina innra með sér. „Það getur verið styðjandi að skapa þessar aðstæður þar sem maður nær að vera í lengri tíma í þögninni en það er líka mikilvægt að virkja innri bjargráð til að leyfa þögninni að koma með í hversdagslífið og finna þögnina innra með sér líka. Sumir ætla sér að hugleiða en segja að það gangi ekki vegna vegaframkvæmda í nágrenninu eða umferðarhljóða en ef maður ætlar alltaf að líta á það sem hindrun, byrjar maður aldrei. Það er hjálplegt að reyna að skapa sér eins góð skilyrði og hægt er, hafa áhrif á það sem maður getur haft áhrif á en vera ekki með óraunhæfar væntingar. Finna leiðir til að skapa okkur innri frið og þögn þrátt fyrir áreitið allt um kring,“ segir Anna Dóra og heldur áfram: „Sumir eiga erfitt með að þola við í þögninni, kunna illa við hana og forðast hana með ýmsum hætti. Sumir eru hræddir við hverju þeir mæta þegar þeir mæta sjálfum sér og ýta í burtu upplifun sinni, hvort sem það er kvíði, hræðsla eða annað. En ef við ýtum okkur alltaf í burtu eða höfnum okkur, þá náum við aldrei að gangast við okkur eins og við erum, samþykkja okkur eða þykja vænt um okkur sjálf.“ Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@frettabladid.is Börn eru viðkv æmari fyrir há vaða á nóttunni en að rir hópar þar s em þau sofa lengur. Langve ikt fólk og eldr a fólk er líka viðkvæmt fyri r truflunum. F ólk sem vinnu r vaktavinnu er einnig í meiri hættu vegna hávaðamengu nar vegna óreg lulegs svefn- munsturs. Fátæ kara fólk sem h efur ekki kost á því að b úa í rólegum h verfum eða einangra heim ili sín vel þjáis t meira en aðrir hópar ve gna hávaða. Bi lið milli ríkra o g fátækra mun l íklega aukast e f ríkisstjórnum tekst ekki að t aka á hávaðam engun. TILVERAN 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.