Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 24
Misvægi atkvæða getur ekki og má ekki vera skiptimynt á hinu pólitíska sviði. Sama atkvæðavægi á að gilda á milli landsmanna hvar sem þeir búa á landinu. Það voru kaldar kveðjur sem mættu íslenskum vísinda-mönnum í fjárlagafrumvarpi 2020 sem lagt var fyrir Alþingi í byrjun september. Kveðjurnar eru í formi niðurskurðar í Rannsóknasjóð Vísinda- og tækniráðs, helstu lífæð rannsókna á Íslandi. Niðurskurður- inn nemur 45 milljónum frá síðustu fjárlögum og lækkunin nemur um 80 milljónum frá því 2018. Af leiðingarnar verða að öllum líkindum þær að næsta úthlutun sjóðsins mun lækka um rúm fimm prósent. Upphæðin jafngildir rúm- lega átta ársverkum doktorsnema á Íslandi, en stór hluti styrkjanna fer í fjármögnun doktorsverkefna. Þessi niðurskurður er áætlaður þrátt fyrir að sjóðurinn hafi rýrnað að raun- virði ár eftir ár. Í kjölfarið er ljóst að af kastageta íslensks vísindasam- félags mun minnka. Árið 2016 kom innspýting úr fjár- lögum í samkeppnissjóði Vísinda- og tækniráðs og henni fylgdu fyrirheit um frekari aukningu sem ekki hefur verið staðið við. Áhrifa þessarar innspýtingar gætir víða í íslensku vísindalífi, en hún hefur eflt vísindi í landinu. Þannig hefur ungum íslenskum vísindamönnum fjölgað, fólk hefur snúið aftur til Íslands úr námi, eygjandi von um að geta stundað metnaðarfullar rannsóknir hér. Mikill sköpunarkraftur býr í íslensku vísindasamfélagi og þessi reynsla af auknu fjármagni í sjóðina sýnir það svart á hvítu hversu auð- velt það er að virkja þennan kraft og efla. Þó eru ýmis teikn á lofti um að íslenskt vísindasamfélag starfi nú langt undir getu vegna vanfjármögn- unar. Árangurshlutfall umsókna í Rannsóknasjóð er eitt merki þess, en í síðustu úthlutun hlutu einungis 17% verkefna styrk. Þessi lækkun árangurshlutfalls er einungis komin til vegna aukinnar sóknar í sjóðinn, þar sem fjárveitingar í hann hafa staðið nokkurn veginn í stað síðan 2016. Einnig berast fregnir af því að í ár hafi umsóknum í sjóðinn fjölgað enn og aftur. Það er því ljóst að ef ekkert verður að gert verður árangurshlutfall umsókna í sjóðinn í næstu úthlutun komið niður fyrir það lægsta sem gerðist árin eftir hrun á Íslandi. En hvað er þá til ráða? Erum við föst í vítahring þar sem aukin fjár- mögnun til samkeppnissjóða veldur því að sóknin í þá eykst stöðugt, sem þá sífellt lækkar árangurshlutfallið? Svarið við því er hreint og klárt nei. Ef íslenskt vísindasamfélag væri fjár- magnað þannig að það gæti starfað eftir bestu getu, ef fjármögnunin væri á pari við það sem gerist í þeim nágrannalöndum sem okkur er svo tamt að bera okkur saman við, er ólíklegt að hlutfallið væri svo lágt. En á meðan fjármögnun grunn- rannsókna er undir því sem gerist að meðaltali í OECD-löndum og langt undir því sem gengur og gerist t.d. í Bretlandi og á Norðurlöndunum, er ekki skrítið að aukið fjármagn leiði til aukinnar sóknar í sjóðina. Sífellt yfirvofandi niðurskurður á fjármagni til rannsókna vekur furðu okkar þar sem ríkisstjórnin hefur það að stefnu sinni að efla vísinda- starf á Íslandi. Yfirlýst stefna hennar er að auka fjárfestingu í rannsókn- um og nýsköpun úr 2% í 3% af lands- framleiðslu árið 2024. Niðurskurður nú gengur því þvert á kosningaloforð og yfirlýsta stefnu stjórnvalda. Sú gróska sem fylgdi í kjölfar þeirrar aukningar sem varð á fram- lögum í sjóðina árið 2016 er birt- ingarmynd þeirra jákvæðu áhrifa sem það hefur á hugvit íslenskra vísindamanna og af kastagetu að hækka fjármagn sem rennur til vís- inda. Sem dæmi má nefna að í kjöl- far aukningarinnar hefur Öndvegis- styrkjum úr Rannsóknasjóði fjölgað, en mjög öf lug Öndvegisverkefni hafa í kjölfarið hlotið hæstu styrki sem unnt er að fá frá rannsóknar- áætlun Evrópusambandsins. Þessi reynsla segir okkur að viðbót fjár- magns í innlenda sjóði skili sér jafn- vel margfalt til baka á formi erlends rannsóknafjár, enda eru á Íslandi framúrskarandi vísindamenn sem eiga fullt erindi í samkeppni um hæstu erlendu styrkina fái þeir þá forgjöf frá Íslandi sem til þarf. Í stað yfirvofandi niðurskurðar ár eftir ár ætti því að halda áfram á þeirri braut sem var hafin árin 2015-2016 og auka verulega fjármagn í íslenska samkeppnissjóði. Við undirrituð skorum á stjórn- völd að standa við gefin loforð og virkja þann kraft sem í íslensku vís- indasamfélagi býr, snúa vörn í sókn og auka við fjármögnun íslenskra samkeppnissjóða. Árangurinn í formi hagsældar fyrir íslenska þjóð mun ekki láta á sér standa. Vinnur íslenskt vísindasamfélag langt undir getu vegna vanfjármögnunar? Erna Magnúsdóttir dósent við Háskóla Íslands Eyja Margrét Brynjarsdóttir lektor við Háskóla Íslands Eyjólfur Ingi Ásgeirsson dósent við Háskólann í Reykjavík Oddur Vilhelmsson prófessor við Háskólann á Akureyri Sigrún Ólafsdóttir prófessor við Háskóla Íslands Snævar Sigurðsson sérfræðingur við Háskóla Íslands Þórdís Ingadóttir dósent við Háskólann í Reykjavík Höfundar eru í stjórn Vísindafélags Íslands Í stað yfirvofandi niður- skurðar ár eftir ár ætti því að halda áfram á þeirri braut sem var hafin árin 2015-2016 og auka verulega fjármagn í íslenska sam- keppnissjóði. Landið á að verða eitt kjör-dæmi. Sú eindregna skoðun mín að tryggja jafnan kosn- ingarétt undirstrikar grundvallar- mannréttindi í íslensku samfélagi, óháð efnahag, kyni eða búsetu. Saga misvægis atkvæða er saga pólitískra hrossakaupa. Löngu er mál að linni, þótt ekki séu allir stjórnmálaf lokkar sammála þeirri nálgun. Lýðræði, samkennd, skilningur Fyrir ríf lega tuttugu árum f lutti ég mína jómfrúarræðu með öran hjartslátt, komin átta mánuði á leið. Ekki einungis gætti titrings vegna þeirra forréttinda að vera kosin af fólkinu til setu á Alþingi heldur voru þetta spennandi tímar. Breytingar á stjórnarskrá voru til umræðu en þær tóku meðal annars til kjördæmaskipunar og jafnara atkvæðavægis. Þótt skref hafi verið tekin í rétta átt þá var engu að síður misvægi atkvæða við haldið. Og út á það óréttlæti gekk mín stutta ræða. Misvægi atkvæða getur ekki og má ekki vera skiptimynt á hinu pólitíska sviði. Sama atkvæða- vægi á að gilda á milli landsmanna hvar sem þeir búa á landinu. Þing- menn verði þingmenn allra lands- manna. Slíkt eykur samkennd, skilning, samstarf og yfirsýn og ýtir undir að þingmenn vinni að sam- keppnishæfara Íslandi í baráttu alþjóðasamfélagsins um lífsgæði, framfarir og ekki síst fólkið okkar. Í þeirri samkeppni er lykilatriði að Ísland sé allt undir og við þing- menn nálgumst málin með heildina í huga. Misvægi atkvæða og kjör- dæmaskiptingin er úrelt. Sagan sýnir að hún hefur frekar dregið taum sérhagsmuna en hagsmuna heildarinnar. Allir einstaklingar, sama hvaða hópi þeir tilheyra verða að hafa jafna möguleika til að kjósa og vera sjálfir kjörnir. „Jafnræði þegnanna til að hafa pólitísk áhrif er meðal grundvallaratriða lýðræðisins og borgaralegra réttinda,“ sagði í skýrslu sem unnin var fyrir stjórn- laganefnd um jafnt vægi atkvæða. Þessu er erfitt að andmæla. Mis- munandi vægi atkvæða eftir kjör- dæmum má líkja við það að vernd eignarréttinda væri ólík milli kjör- dæma. Ég leyfi mér að fullyrða að enginn myndi sætta sig við það. Með sömu rökum ætti enginn að sætta sig við búsetubundna mis- munun á atkvæði sínu. Heildarendurskoðun og forgangsröðun Í þjóðaratkvæðagreiðslu um til- lögur Stjórnlagaráðs og nú í niður- stöðum viðhorfskönnunar Félags- vísindastofnunar kom fram að það er eindreginn vilji þjóðarinnar að endurskoða það ranglæti sem felst í misvægi atkvæða. Við formenn stjórnmálaf lokk- ana verðum að taka afstöðu til þess hvort ekki sé rétt að taka forgangsröðun stjór narsk rár- vinnunnar til endurskoðunar en jafnt atkvæðavægi er látið bíða til næsta kjörtímabils. Sú biðstaða er ankannaleg þegar með sanngirni er rýnt í gögn sem sýna eindreginn vilja þjóðarinnar í þessum efnum. Hún vill jafnt atkvæðavægi, eins og nágrannar okkar í Danmörku og Svíþjóð njóta. Höfum í huga að atkvæðisrétturinn sjálfur, um einn einstakling eitt atkvæði, er grunnurinn að lýðræðinu. Sagan og pólitísk hrossakaup geta ekki lengur réttlætt viðhald þessarar misskiptingar í atkvæðavægi. Tjáningarfrelsið, rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar og önnur mannréttindi eru jöfn og algild án tillits til þess hvar á landinu þú átt lögheimili. Það sama á að gilda um kosningaréttinn. Það var afstaða taugaspenntrar konu í jóm- frúarræðunni hennar fyrir rúmum tveimur áratugum og það er afstaða hennar enn í dag. Einn einstaklingur – eitt atkvæði. Má bjóða þér heilan kosningarétt eða hálfan? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar No one is too small to make a difference er heiti bókar sem inniheldur samansafn af ræðum Gretu Thunberg sem hefur vakið mikla athygli undan- farið. Titill bókarinnar inniheldur brýn skilaboð: Ekkert okkar er of lítið til að hafa áhrif. Áreitið er mikið í samfélaginu í dag og á okkur dynja upplýsingar úr öllum áttum. Umhverfismál hvers konar, s.s. hamfarahlýnun, eru áberandi í allri umræðu. Um raunverulegar ógnir er að ræða og því brýnt að grípa í taumana eigi að takast að sporna við þessari þróun. Það getur hins vegar verið f lókið fyrir börn og ungmenni að henda reiður á öllum þessum upplýsing- um. Hvað þýðir þetta allt og verða af leiðingarnar raunverulega eins slæmar og talað er um? Það er auð- velt að fyllast kvíða og vonleysi yfir framtíðinni við þessar aðstæður og finnast maður lítils megnugur. Valdef ling og nemendalýðræði eru lykilþættir í alþjóðlega verk- efninu Skólum á grænni grein (Grænfánaverkefninu) sem er fyrir nemendur á öllum skóla- stigum.Landvernd hefur rekið verkefnið hér á landi frá árinu 2001 og taka nú um 200 íslenskir skólar þátt. Skólar á grænni grein starfa eftir hugmyndafræði sjálf- bærnimenntunar og hefur verið lýst af Sameinuðu þjóðunum sem einu helsta innleiðingartæki sjálf- bærnimenntunar í heiminum í dag. Í Skólum á grænni grein eru nemendur því hluti af umhverfis- nefnd skólans, sjá um að meta stöðu umhverf ismála og setja skólanum markmið til að bæta það sem þeim þykir brýnast. Þeir fylgja markmiðunum eftir með hjálp samnemenda og star fsmanna skólans og helst með þátttöku nærsamfélagsins. Auk þess fá allir nemendur skólans fræðslu um þau þemu eða markmið sem tekin eru fyrir hverju sinni. Nemendur eru þannig virkjaðir til áhrifa innan síns skóla og nærsamfélags og er lýðræðislegum aðferðum beitt til að sem f lestir komi að borð- inu. Þannig er nemendum kennt að þeir geti beitt áhrifum sínum til að stuðla að breytingum í sínu nærumhverfi. Ekkert okkar er of lítið til að hafa áhrif eru því orð sem eiga vel við í allri umhverfisumræðu – við getum öll haft áhrif! Valdefling á tímum hamfarahlýnunar Katrín Magnúsdóttir verkefnisstjóri Skólar á grænni grein / Græn- fáninn 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.