Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 62
BÍLAR Það vekur at hygli að í ár eru tveir flokkar raf bíla sem ber vott um tíðar­andann en ekki þótti rétt að setja alla raf bíla í sama flokk vegna fjölda þeirra og fjöl breytni. Flokkarnir sem eru í valinu í ár eru minni fjöl skyldu­ bílar, stærri fjöl skyldu bílar, jepp­ lingar, jeppar, raf bílar og raf jeppar. Í lok vikunnar kemur saman hópur bílablaðamanna miðla eins og Fréttablaðsins, Morgunblaðsins, Bændablaðsins, FÍB blaðsins, Visir. is, Bilablogg.is og billinn.is og mun hópurinn prófa saman hvern flokk Bíll ársins á Íslandi 2020 kynntur næsta miðvikudag Banda lag ís lenskra bíla blaða manna hefur skilað af sér for vali fyrir Bíl ársins 2020. Á tján bílar eru í úr slitum í sex flokkum, þrír bílar í hverjum flokki. Bílarnir verða nú bornir saman og prófaðir en til kynnt verður um val á Bíl ársins mið viku daginn 16. októ ber. Danmörk í samvinnu við 10 önnur Evrópulönd vill að Evr­ópusambandið sameinist um þá stefnu að banna alla dísil­ og bens­ ínbíla fyrir árið 2030, til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Dan­ mörk lagði þetta til á fundi um­ hverfis málaráðherra í Evrópu sem haldinn var í Brussel á föstudaginn. Nýr forseti Evrópusambandsins, Ursula van der Leyen, hefur sagt að Evrópa eigi að verða fyrsta kolefnis­ lausa heimsálfan fyrir árið 2050. Til að ná því marki segir danska sendinefndin að draga þurfi úr mengun innan samgöngugeirans fyrst og fremst, sem er sá eini þar sem mengun er enn að aukast. „Við þurfum að viðurkenna að við erum í kapphlaupi við tímann,“ sagði umhverfismálaráðherra Danmerk­ ur, Dan Jörgensen, eftir fundinn. Danmörk ákvað í fyrra að banna alla bíla með sprengihreyflum eftir 2030 en lét af því vegna þess að það var á skjön við reglur í Evrópu. Lönd frá austurblokkinni svokölluðu, lönd eins og Litháen, Lettland, Slóv­ enía og Búlgaría, sögðu einnig að meira þyrfti að gera til að koma í veg fyrir „kolefnislekann“ en notaðir bílar sem menga meira eru nú seldir í miklu magni til landa í Austur­Evr­ ópu. Að sögn Jörgensens er næsta skrefið að löndin 11 sameinist um aðgerðir til að banna með öllu sölu bíla með sprengihreyflum fyrir 2030 og mögulega sölu á þeim til annarra landa í Evrópusambandinu. Vilja banna sprengihreyfla Hennessey Per for mance hefur staðfest tækniupp­lýsingar nýja Venom F5 ofurbílsins og samkvæmt þeim er vélin í honum 1.817 hestöf l. Vélin, sem er 6,6 lítra V8 vél með tveimur forþjöppum, skilar auk þess 1.617 Newtonmetra togi og ætla má að bíll þessi muni keppa um að komast í heimsmetabók Guinness ef að líkum lætur. Aðeins verða smíðuð 24 eintök af þessum ofurbíl sem mun kosta 185 milljónir króna stykkið. Sam­ kvæmt Hennessey Perfomance mun bíllinn fara úr kyrrstöðu í 300 km á klst. á undir tíu sekúnd­ um sem er sneggra en formúlubíll af bestu sort. Hröðun í 400 km á klst. og nið­ urhröðun í kyrrstöðu aftur, ætti samkvæmt þessu að vera mögu­ leg á innan við 30 sekúndum sem þýðir að bíllinn gæti bætt núver­ andi met Koenigsegg Agera RS um nokkrar sekúndur. Hennessey setti markið á 466 km hámarks­ hraða með þessum bíl sem gerir hann að mögulegum keppanda um hraðaheimsmet fjöldafram­ leiddra bíla. Núverandi heims­ methaf i er Koenigsegg Agera RS með 447 km hraða á klst. en Bugatti Chiron SuperSport setti óstaðfest met á dögunum rétt undir 490 km á klst. Yfirbygg­ ing bílsins er úr koltrefjum svo að hann er aðeins 1.338 kíló og miðað við það er hann sá öf lug­ asti miðað við þyngd á markaði. Vélin í Hennessey ofurbílnum verður meira en 1.800 hestöfl Í september sendi Porsche frá sér myndband af nýjum Porsche Taycan setja nýtt hraðamet á Nurburghringnum þar sem nýi bíllinn fór hringinn á aðeins 7 mín­ útum og 42 sekúndum. Þetta met setti Tesla af stað og hefur banda­ ríski framleiðandinn prófað nýja gerð Model S Plaid á Hringnum en sá bíll er með þremur rafmótorum og stífari undirvagni en hefðbund­ inn Model S. Nú hefur framleiðslustjóri Tayc­ an hjá Porsche, Lukas Kramer, látið hafa eftir sér að bíllinn í myndband­ inu hafi verið Taycan Turbo en ekki öflugri útfærsla hans, Turbo S. Báðir bílarnir eru reyndar 616 hestöfl en hægt er að auka af l þeirra beggja, Turbo bílsins í 670 hestöfl en Turbo S í 750 hestöfl. Þar að auki er Turbo S með keramikbremsum og aftur­ Porsche Taycan og Tesla Model S etja kappi á Nurburghringnum Sprengihreyflar eru í flestum bílum heims í dag. NORDICPHOTOS/GETTY Danmörk vill banna sprengihreyfla í nýjum bílum í allri Evrópu fyrir árið 2030. Ekki er ólíklegt að stefni í slag á milli heimsálfanna um hvaða bíll setji nýtt met á Hringnum. Í fyrra var það Volvo V60 sem vann titilinn nokkuð örugglega með 807 stig alls. MYND/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Porsche Taycan setti nýtt hraðamet á Nurburghringnum í september. Hennessey mun fara frá kyrrstöðu í 300 km á klst. á undir tíu sekúndum. hjólastýringu, auk stöðugleikabún­ aðar í undirvagni sem gerir honum betur kleift að bæta núverandi met. Ekki er ólíklegt að stefni í slag á milli heimsálfanna um hvaða bíll setji nýtt met á Hringnum. Til­ raunaútgáfur Tesla Model S Plaid náðu mjög góðum tímum á dög­ unum en þeir bílar voru á breiðari dekkjum en framleiðslubílar Tesla auk þess sem búið var að taka inn­ réttinguna úr þeim svo að tímar þeirra teljast ekki gildir, en þeir voru nálægt 7 mínútum og 20 sek­ úndum. Minni fjöl skyldu bílar n Mazda 3 n Toyota Cor olla n VW T-Cross Stærri fjöl skyldu bílar n Mercedes-Benz B-lína n Peu geot 508 n Toyota Camry Jepp lingar n Honda CRV n Mazda CX-30 n Toyota RAV4 Jeppar n Jeep Wrang ler n Ss angYong Rexton n Suzuki Jimny Raf bílar n Hyundai Kona n EV, Kia e-Soul n Opel Ampera Raf jeppar n Audi e-Tron, n Jaguar I-Pace n Mercedes-Benz EQC ✿ Bílar í úrslitum í hverjum flokki og bera saman. Að lokum eru bílun­ um gefin stig þar sem tekið er tillit til þátta eins og verðs, hagkvæmni, öryggis, aksturseiginleika og margs fleira. Í fyrra var það Volvo V60 sem vann titilinn nokkuð örugglega með 807 stig alls en Kia Ceed var bíll ársins í f lokki minni fólksbíla, Volkswagen T­Roc í f lokki minni jeppa og Volkswagen Touareg í f lokki stærri jeppa. Bílarnir sem keppa þurfa að vera af nýrri kyn­ slóð eða nýir á markaði og dugir ekki að bíllinn sé með nýrri vél eða hafi fengið andlitslyftingu. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.